Jóakimshús á upphaflegum stað. Ljósm. úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Jóakimshús á upphaflegum stað. Ljósm. úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Jóakimshús, Aðalgötu 20, Siglufirði

Heiti: Jóakimshús
Byggingarár: 1914
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jóakim Meyvantsson og Ólína Friðrika Ólafsdóttir
Aðrir eigendur:
1966 ?: Ægir Jóakimsson
Upphafleg staðsetning: Lindargata 4 (?), Siglufirði
Fyrst flutt: 1999 að Norðurgötu 3, Siglufirði
Aftur flutt:
2011 að Aðalgötu 20, Siglufirði
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Jóakim

Jóakimshús sett niður á lóð númer 3 við Norðurgötu á Siglufirði árið 1999. Ljósm. úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Jóakim 2

Jóakimshús, Aðalgötu 20, Siglufirði, árið 2017. Heimild: Birna Lárusdóttir og Birkir Einarsson (2018). Verndarsvæði í byggð. Þormóðseyri Siglufirði. Skráning fornleifa, húsa og mannvirkja, bls. 47. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.

Saga:

Árið 1914 reistu hjónin Jóakim Meyvatnsson (1886-1945) og Ólína Friðrika Ólafsdóttir (1886-1966) sér lítið timburhús við Lindargötu á Siglufirði en þau höfðu gengið í hjónaband þremur árum áður. Húsið náði ekki 40 fermetrum að grunnfleti en þau hjón eignuðust átta börn. Talið er að Jóakim hafi byggt hús sitt sjálfur, en það stóð nálægt þeim stað sem kirkjutröppurnar á Siglufirði eru nú. Heimildum ber ekki saman um númer hússins við Lindargötu, ýmist er það skráð 7b, 2b, 3c eða 4.1Birna Lárusdóttir og Birkir Einarsson (2018). Verndarsvæði í byggð. Þormóðseyri Siglufirði. Skráning fornleifa, húsa og mannvirkja, bls. 47. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands; Síldarminjasafn Ísland. Ljósmyndasafn. Mynd nr. G-1546c; Gögn úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Í upphafi var húsið klætt með timbri að utan, en líklega á þriðja áratug síðustu aldar var það klætt með bárujárni.2Gögn úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Framan af ævi var Meyvant í vinnumennsku á ýmsum stöðum og lagði einnig stund á sjómennsku, bæði á hákarlaskipum og við þorsk- og síldveiðar. Síðari ár stundaði hann ýmsa verkamannvinnu.3Minning: Jóakim Meyvantsson (1945, 27. september). Neisti, 13. árg., 16. tbl., bls. 3.

Þegar húsið þurfti að víkja úr brekkunni fyrir neðan kirkjuna var ákveðið að forða því frá niðurrifi og flytja það án bíslagsins á lóðina Norðurgötu 3 til geymslu. Þar stóð húsið á járnbitum til ársins 2011 þegar þegar var sett á nýjan grunn á næstu lóð, Aðalgötu 20. Þar hefur húsið fengið nýtt bíslag og klætt aftur með timburklæðningu og sjá má að það nýtur góðrar umhirðu.4Gögn úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2025