Ísaksbær fyrir miðri mynd. Kirkjuhús til vinstri. Myndhluti. Sótt 18. júlí 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=878559195573045&set=gm.402052106668941.
Ísaksbær fyrir miðri mynd. Kirkjuhús til vinstri. Myndhluti. Sótt 18. júlí 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=878559195573045&set=gm.402052106668941.

Ísaksbær, Eyrarbakka

Heiti: Ísakshús - Ísaksbær - Garðbær
Byggingarár: 1890
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ísak Jónsson og Ólöf Ólafsdóttir
Aðrir eigendur:
1912: Ólöf Ólafsdóttir
1922: Sigríður Jónsdóttir
1930: Ottó Guðjónsson
1932: Jón Gíslason
1949: Eyrarbakkahreppur
Upphafleg staðsetning: Eyrargata, Eyrarbakka, á milli Kirkjuhúss (Eyrargötu 81) og Garðbæjar (Eyrargötu 79)
Fyrst flutt: 1966 á bæjarhlað Sólvangs ofan (norðan) Eyrarbakka
Aftur flutt:
2000 að Hafnarbrú á Eyrarbakka
Hvernig flutt: Í heilu lagi
597_ISAK

Ísaksbær á hlaðinu á Sólvangi. Ljósm.: Gísli Kristjánsson. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

User comments

Ísaksbær fluttur til Eyrarbakka frá Sólvangi árið 2000. Ljósm.: Gísli Kristjánsson. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Ísaksbær 2

Ísaksbær bíður viðgerðar á Eyrarbakka. Ljósm.: Sigurður Bogi Sævarsson. Heimild: Sigurður Bogi Sævarsson (2013, 7. nóvember). Úrvalsviður aldamóta, Morgunblaðið, 101. árg., 259. tbl., bls. 20-21.

HDR Bracket = 0,8,-10 FaceNum=0    FocusArea=000001110

Viðgerð hafin á Ísaksbæ. Ljósm.: Gísli Kristjánsson. Úr gagnasafni Minjastofnunar.

Saga:

Árið 1890 byggðu Ísak Jakob Jónsson (1852-1912) verslunarmaður og kona hans Ólöf Ólafsdóttir (1859-1945) sér íbúðarhús vestan Garðbæjar, þar sem nú (2025) er bílastæði milli húsa númer 79 (Garðbæjar) og 81 (Kirkjuhúss) við Eyrargötu á Eyrarbakka. Húsið var kallað Ísaksbær eða Ísakshús en taldist til Garðbæjar.

Húsinu var ekki lýst þegar það var virt í árslok 1890, en þegar það var brunavirt árið 1916 er húsinu lýst þannig:

Íbúðarhús. Úr timbri, klætt undir járn á þaki með skarsúð. Að innan allt þiljað og málað og sumpart klætt veggfóðri, skipt í 2 herbergi og eldhús, geymslu og gang. Uppi á loftinu geymsla óinnréttuð. Gamalt og mjög lélegt.

Af myndum má sjá að húsið var í upphafi klætt með liggjandi timurklæðningu á gafli götumegin með listum á húshornum. Yfir gluggum voru bjórar. Austurhlið hússins var pappaklætt með listum. Gengið var inn í húsið um skúrbyggingu sem var með fram langhlið þess að vestanverðu.

Þegar brunavirðing var uppfærð árið 1934 höfðu miklar endurbætur verið gerðar á húsinu. Þá var búið að klæða húsið með bárujárni, en eftir að Eyrarbakkahreppur eignaðist húsið árið 1949 var það forskalað.1Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 107. Eyrarbakka: Laugabúð.

Ísak Jónsson var verslunarmaður við Lefolii-verslun þau 40 ár sem hann bjó á Eyrarbakka. Fyrri kona hans var Guðríður Magnúsdóttir (1853-1883). Þau eignuðust fimm dætur. Árið 1888 kvæntist Ísak Ólöfu Ólafsdóttur og eignaðist með henni 8 börn.2Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 111; Eftirmæli (1912, 15. júní). Suðurland, 3. árg., 2. tbl., bls. 1.

Árið 1966 var húsið flutt á bæjarhlað Sólvangs ofan Eyrarbakka og nýtt þar sem hænsnakofi. Fyrir flutninginn var skúrbyggingin við vesturhlið rifin burt.

Árið 2000 fluttu smiðirnir Gísli og Guðmundur Kristjánssynir húsið á athafnasvæði sitt við Hafnarbrú á Eyrarbakka þar sem hafin er viðgerð á húsinu.3Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 107.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júlí, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 107. Eyrarbakka: Laugabúð.
  • 2
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 111; Eftirmæli (1912, 15. júní). Suðurland, 3. árg., 2. tbl., bls. 1.
  • 3
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 107.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júlí, 2025