Iðavellir, Skagaströnd
Saga:
Í upphafi 20. aldar myndaðist svolítill vísir að þorpi í Kálfshamarsvík, sem er á norðanverðum Skaga, um 23 km fyrir norðan Skagaströnd. Fyrsta húsið var líklega byggt þar árið 1903 eða 1904 og um 1930 var 151 maður búsettur í víkinni. Frá Kálfshamarsvík var góð hafnaraðstaða frá náttúrunnar hendi og stutt á gjöful fiskimið en þegar fiskur frá að tregast í Húnaflóa, fiskverð lækkaði í kjölfar heimskreppunnar og svo fámenn byggð hafði ekki bolmagn til að aðlagast breyttum atvinnuháttum og kaupa stærri báta og reisa frystihús um og upp úr 1930, fækkaði fólkinu þar smátt og smátt þar til veturinn 1947-1948 að síðustu íbúarnir fluttu burt. Einnig má segja að bygging frystihúsa á Skagaströnd 1938 og 1944 hafi veikt mjög undirstöður búsetu í Kálfshamarsvík. Í þorpinu voru tvær bryggjur, fiskverkunarhús, salthús, verbúðir, verslun, samkomuhús sem málfundafélagið byggði og jafnframt var skóli auk íbúðarhúsa, sem flest voru um 14 talsins, aðallega byggð á gamalkunnan íslenskan hátt með veggjum úr torfi og grjóti og þiljum og stöfnum úr timbri. Þegar íbúarnir fluttu burt fóru hús þessi ýmist í eyði, voru rifin eða þau flutt burtu.

Iðavellir á Skagaströnd. Sótt 22. nóvember 2023 af https://guidetoiceland.is/accommodation/guesthouses/idavellir-guesthouse?adults=2&rooms=1.
Á fyrsta áratug aldarinnar byggði Jóhannes Jóhannesson formaður myndarlegt timburhús sem hann nefndi Iðavelli. Þar bjó hann ásamt fjölskyldu sinni og skipshöfn. Í manntali, sem tekið var í desember 1930, kemur fram að Jóhannes bjó á Iðavöllum ásamt konu sinni Guðrúnu Guðjónsdóttur, tveimur börnum þeirra hjóna og þremur sjómönnum. Jóhannes var einn forvígismanna um stofnun lestrarfélags í Skagahreppi. Jóhannes flutti til Skagastrandar árið 1938 og árið eftir var húsið einnig flutt þangað, þar sem það stendur enn skammt frá kirkjunni við Oddagötu og ber enn sama nafn.1Bjarni Th. Guðmundsson (1982). Byggð á Kálfshamarsnesi og næsta nágrenni. Húnavaka, 22. árg., 1. tbl., bls. 32-44; Magnús B. Jónsson (2010, 19. apríl). Tölvupóstur; Jón Torfason (2007). Húnaþing eystra frá jöklum til ystu stranda, bls. 197-199. Árbók Ferðafélags Íslands 2007. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; En þar er nú allt í auðn. Rætt við Friðgeir Eiríksson bónda á Sviðningi um þorpið í Kálfshamarsvík (1968, 15. ágúst). Alþýðublaðið, bls. 8-9 og 12; Þorpið sem hvarf. Gengið um Kálfshamarsvík á Skaga með Friðgeiri Eiríkssyni, vitaverði og bónda á Sviðningi, og rifjað upp mannlíf sem var (1983, 20. september). Þjóðviljinn, bls. 8; Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna (ódags.). Kálfshamarsvík. Sótt 23. apríl 2010 af http://www.simnet.is/reykirmuseum/kalfshamarsvik.htm; Pétur Þ. Ingjaldsson (1982). Vitavörður í hálfa öld. Viðtal við Friðgeir Eiríksson bónda og vitavörð á Sviðningi í Skagahreppi. Húnavaka, 22. árg., 1. tbl., bls. 84-93; Kristján Sveinsson (1990). Byggð í Nesjum 1880-1940. Upphaf, þróun og endalok byggðar á Kálfshamarsnesi, bls. 32. Óbirt lokaritgerð í sagnfræði frá Háskóla Íslands; Bjarni Guðmarsson (1989). Byggðin undir Borginni. Saga Skagastrandar og Höfðahrepps, bls. 219. Akureyri: Höfðahreppur; Guðmundur St. Sigurðarson og Bryndís Zoëga (2012). Fornleifaskráning Skagabyggðar: Kálfshamar, Saurar og Ós, bls. 24-25. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsóknaskýrslur. 2012/122.
Leitarorð: Skagi – Kálfshamarsnes
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Bjarni Th. Guðmundsson (1982). Byggð á Kálfshamarsnesi og næsta nágrenni. Húnavaka, 22. árg., 1. tbl., bls. 32-44; Magnús B. Jónsson (2010, 19. apríl). Tölvupóstur; Jón Torfason (2007). Húnaþing eystra frá jöklum til ystu stranda, bls. 197-199. Árbók Ferðafélags Íslands 2007. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; En þar er nú allt í auðn. Rætt við Friðgeir Eiríksson bónda á Sviðningi um þorpið í Kálfshamarsvík (1968, 15. ágúst). Alþýðublaðið, bls. 8-9 og 12; Þorpið sem hvarf. Gengið um Kálfshamarsvík á Skaga með Friðgeiri Eiríkssyni, vitaverði og bónda á Sviðningi, og rifjað upp mannlíf sem var (1983, 20. september). Þjóðviljinn, bls. 8; Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna (ódags.). Kálfshamarsvík. Sótt 23. apríl 2010 af http://www.simnet.is/reykirmuseum/kalfshamarsvik.htm; Pétur Þ. Ingjaldsson (1982). Vitavörður í hálfa öld. Viðtal við Friðgeir Eiríksson bónda og vitavörð á Sviðningi í Skagahreppi. Húnavaka, 22. árg., 1. tbl., bls. 84-93; Kristján Sveinsson (1990). Byggð í Nesjum 1880-1940. Upphaf, þróun og endalok byggðar á Kálfshamarsnesi, bls. 32. Óbirt lokaritgerð í sagnfræði frá Háskóla Íslands; Bjarni Guðmarsson (1989). Byggðin undir Borginni. Saga Skagastrandar og Höfðahrepps, bls. 219. Akureyri: Höfðahreppur; Guðmundur St. Sigurðarson og Bryndís Zoëga (2012). Fornleifaskráning Skagabyggðar: Kálfshamar, Saurar og Ós, bls. 24-25. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsóknaskýrslur. 2012/122.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023