Hvolsvegur 30, Hvolsvelli
Saga:
Í Hallgeirsey í Austur-Landeyjum við ós Affallsins var löggiltur verslunarstaður árið 1897. Þar var Kaupfélag Hallgeirseyjar stofnað árið 1919 og hóf þar verslun 1920. Þar var vörum skipað upp í sandinn við erfiðar aðstæður. Í fyrstu var innréttuð lítil sölubúð í hlöðuenda og reist vörugeymsla Árið 1930 var stofnað útibú á Hvolsvelli og þremur árum síðar voru aðalstöðvar kaupfélagsins fluttar þangað. Kaupfélag Hallgeirseyjar var sameinað Kaupfélagi Rangæinga árið 1948 fékk hið sameinaða félag nafnið Kaupfélag Rangæinga með aðsetur á Hvolsvelli.
Frá stofnun kaupfélagsins til ársins 1928 var kaupfélagsstjóri í Hallgeirsey Guðbrandur Magnússon (1887-1975), fyrsti ritstjóri Tímans og forstjóri Áfengisverslunar ríkisins í hart nær 30 ár. Í fyrstu bjó hann í gestastofu í sölubúðinni, en árið 1925 var reist timburhús handa kaupfélagsstjóranum á jörðinni Hallgeirseyjarhjáleigu, sem kaupfélagið hafði keypt árið 1921. Heldur rýmkaðist um fjölskylduna, en oft var þröng á þingi, því mikill gestagangur var á heimilinu því bændur voru sífellt á ferðinni til að selja afurðir sínar og kaupa nauðsynjar.1Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindósson (1981). Landið þitt Ísland, 2. bindi, bls. 21. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.; Hallfríður Guðbrandsdóttir (1999, 24. apríl). Uppvaxtarár við Landeyjasand. Lesbók Morgunblaðsins, 74. árg., bls. 14; Matthías Pétursson (2007). Verslun og þéttbýli í Rangárþingi í 1100 ár. Goðasteinn, 43. árg., bls. 98-132, bls. 113.

Hvolsvegur 30 í júní 2023. Ljósm.: Ja.is.
Þegar Guðbrandur varð forstjóri Áfengisverslunar ríkisins árið 1928 tók Ágúst Einarsson (1898-1988) við kaupfélagsstjórastöðunni. Árið 1933 lét hann flytja íbúðarhús kaupfélagsins á Hvolsvöll, þar sem það stendur enn við Hvolsveg 30. Húsið nefndi hann Arnarhvol.2Forstöðumenn samvinnufélaganna (1933, 1. febrúar). Samvinnan, XXVII. árg, 1. tbl., bls. 91. Ritstjóri: Jónas Jónsson; Miðbær Hvolsvallar. Deiliskipulag miðbæjar Hvolsvallar. Húsakönnun (2019), bls. 4. Landmótun.
Þetta var þriggja hæða hús, kjallari með tveimur herbergjum og þvottahúsi, fimm tröppur voru að eldhúsdyrum og snyrting fyrir allt húsið til hægri handar. Inn af eldhúsinu var borðstofan og úr borðstofunni fengið inn í stofu kaupfélagsstjórans og úr stofunni gengið inn í lítið herbergi sem lá að ganginum. Aðaldyr hússins voru mót vestri og stiginn upp á loftið. Á loftinu var eitt stór herbergi mót suðri og annað lítið móti norði. Milli herbergjanna var baðherbergi sem reyndar var lítið notað vegna vatnsskorts.3Margrét Jóna Ísleifsdóttir (2007). Landnám á Hvolsvelli. Goðasteinn, 43. árg., bls. 133-138, bls. 134.
Ekki er ósennilegt að húsið hafi eitthvað verið stækkað þegar það var sett niður á nýjum stað, a.m.k. fannst Hallfríði Guðbrandsdóttur, sem búið hafði í húsinu með foreldrum sínum í þrjú ár í Hallgeirseyjarhjáleigu, það óþekkjanlegt þegar hún skoðaði það á Hvolsvelli tæpum 40 árum síðar.4Hallfríður Guðbrandsdóttir (1999, 24. apríl), bls. 14. Verið getur að múrhúðun hússins hafi einnig breytt því mikið.
Leitarorð: Hvolsvöllur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindósson (1981). Landið þitt Ísland, 2. bindi, bls. 21. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.; Hallfríður Guðbrandsdóttir (1999, 24. apríl). Uppvaxtarár við Landeyjasand. Lesbók Morgunblaðsins, 74. árg., bls. 14; Matthías Pétursson (2007). Verslun og þéttbýli í Rangárþingi í 1100 ár. Goðasteinn, 43. árg., bls. 98-132, bls. 113.
- 2Forstöðumenn samvinnufélaganna (1933, 1. febrúar). Samvinnan, XXVII. árg, 1. tbl., bls. 91. Ritstjóri: Jónas Jónsson; Miðbær Hvolsvallar. Deiliskipulag miðbæjar Hvolsvallar. Húsakönnun (2019), bls. 4. Landmótun.
- 3Margrét Jóna Ísleifsdóttir (2007). Landnám á Hvolsvelli. Goðasteinn, 43. árg., bls. 133-138, bls. 134.
- 4Hallfríður Guðbrandsdóttir (1999, 24. apríl), bls. 14.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. desember, 2023