Hverfisgata 86a, Reykjavík
Laugavegur 73, Reykjavík, á árunum 1975 til 1987. Ljósm.: Kristinn Guðmundsson. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. KG-195. Sótt 6. maí 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1733007.
Laugavegur 73, Reykjavík, á árunum 1980-1995. Ljósm. ekki þekktur. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. BSK 9 2739.
Laugavegur 73, Reykjavík, árið 2005. Ljósm.: Ómar Óskarsson. Sótt 6. maí 2025 af https://www.mbl.is/myndasafn/mynd/136808/.
Laugavegur 73 hífður af grunni sínum í nóvember 2018. Ljósm.: Vísir/Vilhelm. Sótt 6. maí 2025 af https://www.visir.is/g/2018181128986/f/f/skodanir.
Saga:
Í skýrslu sem Hanna Rósa Sveinsdóttir gerði um byggingasögu húsa við Laugaveg í Reykjavík árið 1991 kom eftirfarandi fram um húsið við Laugaveg 73:
Múrhúðað timburhús. Húsið er einlyft á niðurgröfnum kjallara og með risi. Við norðurhlið þess er járnklæddur inngönguskúr með skáþaki. Hann er að hluta til felldur inn í lága viðbyggingu úr timbri með skáþaki. Austurhluti hennar er múrhúðaður en aðrar hliðar eru klæddar bárujárni. Aftan úr kjallara hússins er niðurgrafin viðbygging úr steinsteypu með sléttu þaki og nær hún yfir mestalla lóðina aftan við húsið. Austan við húsið og fast upp við það er viðbygging úr gleri með risi.
Jón Magnusson kaupmaður lét byggja húsið árið 1903. Í gegnum tíðina hefur húsið tekið miklum breytingum og er nú langt frá upprunalegu útliti sínu. Inngönguskúrinn við norðurhlið þess virðist hafa verið frá upphafi en á timabili var annar inngönguskúr úr steinsteypu við austurgafl hússins. Inngönguskúrinn við norðurhliðina var seinna felldur inn í timburviðbyggingu sem líklega var byggð um 1917 eða jafnvel fyrr. Austan við hana var áður geymsluhús úr timbri sem byggt var árð 1903. Árið 1944 var byggð einlyft viðbygging austan við gamla geymsluhúsið og náði hún út í lóðamörk að norðan. Hún var úr steinsteypu og hleðslusteini með skáþaki og var innangengt í hana úr geymsluhúsinu. Hún var síðan stækkuð til suðurs árið 1953 og gamla geymslubyggingin frá 1903 rifin. Árið 1964 voru gerðar breytingar á neðri hæð hússins og því breytt í verslunarhúsnæði. Þá voru fjórir krossgluggar á framhliðinni fjarlægðir og í staðinn settir tveir stór verslunargluggar. Póstar voru fjarlægðir úr öðrum gluggum hússin og hurð sett syðst á austurgafl hússins.
Árið 1982 var kjallari hússins stækkaður og árið 1985 var hann stækkaður enn frekar og gler með risi byggt austan úr honum og upp með austurgafli hússins. Lóðin er aflíðandi til suðurs sem gerir það að verkum að kjallari hússins stendur jafnhátt byggingunni við bakhlið hússins. Sameiginlega mynda nú kjallari hússins og einlyfta byggingin aftan við húsið, eina byggingu sem nær undir húsið og yfir alla lóðina norðan við það.
Húsið var í fyrstu klætt utan bárujárni en var seinna múrhúðað. Ekki er vitað hvaða ár það var gert.
Húsið var upphaflega byggt sem íbúðarhús en seinn var því breytt í iðnaðar- og verslunarhúsnæði. Í því var á tímabili rekin pípugerðarverksmiðja og lengi vel eða til 1982 var Töskubúðin þar til húsa. Í viðbyggingunni bak við húsið var efnalaugin Stjarnan rekin um langt skeið. 1Hanna Rósa Sveinsdóttir (1991). Byggingasaga. Skýrslur Arbæjarsafns VII, bls. 23-34.
Í manntali sem tekið var árið 1910 eru 16 skráð þar til heimilis í þremur fjölskyldum.2Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Laugavegur 73, Reykjavíkursókn, Reykjavíkurkaupstað í Reykjavík 1901. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 6. maí 2025 frá https://smb.mshl.is/m/baer/65456.
Síðan þetta var skrifað hefur húsið eflaust oft skipt um eigendur og ýmis starfsemi verið rekin í húsinu um lengri eða skemmri tíma, m.a. fataverslun, veitingahús og bar.
Árið 2013 var farið að huga að nýrri uppbyggingu húsa á því svæði við Laugaveginn sem húsið númer 73 stóð. Fjórum árum síðar var óskað eftir því færa húsið á lóðina númer 86a við Hverfisgötu, þ.e. um 50 metra norðar og vestar. Þar yrði húsinu lyft um eina hæð og stækkað. Tillaga þessi var samþykkt með ákveðnum skilyrðum um utanhússfrágang og endurnýtingu.3Gögn úr gagnasafni húsafriðunarnefndar.
Í nóvember 2018 var húsið híft í heilu lagi af grunni sínum við Laugaveg yfir á lóðina númer 92 við Hverfisgötu. Sá flutningur tók um eina klukkustund. Á meðan var Laugavegurinn lokaðu fyrir bílaumferð. Daginn eftir var húsið svo híft á endanlegan grunn sinn á Hverfisgötu 86a.4Jóhann Bjarni Kolbeinsson (2018, 27. nóbvember). Tók aðeins klukkutíma að flytja húsið. Sótt 6. maí 2025 af https://www.ruv.is/frettir/innlent/tok-adeins-klukkutima-ad-flytja-husid.
Þegar þetta er skrifað, í maí 2025, hefur enn ekki verið reist nýtt hús á lóðinni númer 73 við Laugaveg.
Hér má sjá myndband þegar húsið var híft af grunni sínum: https://www.ruv.is/frettir/innlent/tok-adeins-klukkutima-ad-flytja-husid
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. maí, 2025
Heimildaskrá
- 1Hanna Rósa Sveinsdóttir (1991). Byggingasaga. Skýrslur Arbæjarsafns VII, bls. 23-34.
- 2Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Laugavegur 73, Reykjavíkursókn, Reykjavíkurkaupstað í Reykjavík 1901. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 6. maí 2025 frá https://smb.mshl.is/m/baer/65456.
- 3Gögn úr gagnasafni húsafriðunarnefndar.
- 4Jóhann Bjarni Kolbeinsson (2018, 27. nóbvember). Tók aðeins klukkutíma að flytja húsið. Sótt 6. maí 2025 af https://www.ruv.is/frettir/innlent/tok-adeins-klukkutima-ad-flytja-husid.
Deila færslu
Síðast uppfært 6. maí, 2025



