Hverfisgata 4, Hafnarfirði
Saga:
Í Fasteignaskrá Íslands er þetta hús sagt byggt árið 1860. Það mun upphaflega hafa staðið nær sjónum en það gerir nú, á þeim slóðum þar sem hús númer 7 við Strandgötu í Hafnarfirði stóð, en nú (2023) er þar bílastæði vestan við hús númer 9. Húsið var ýmist nefnt Mathiesenshús eða Árnahús eftir eiganda sínum Árna J. Mathiesen, sem reisti það og bjó í því. Húsið var fremur langt og mjótt og sneri gafli að sjó.1Strandgata 5, Hafnarfirði, verknr. 2685 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Um 1880 eignuðust hjónin Þorlákur Þorláksson (1843-1915) skipstjóri og Margrét Guðnadóttir (1843-1922) húsið. Þau létu hluta það sundur og reisa aftur þar sem húsið númer 6 B við Hverfisgötu stendur nú (2023). Eftir eiganda sínum var húsið kallað Þorlákshús.2Hafnarfjörður (2002, 1. nóvember). Úthlutun húsverndarstyrkja 2002. Sótt 14. janúar 2010 af http://hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/nanar_forsidu/?cat_id=3&ew_0_a_id =4951; Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 78 og 84. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur; Karl Rúnar Þórsson, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2010, 4. ágúst). Tölvupóstur. Einnig var talað um húsið á stakkstæðinu. Við Hverfisgötuna stóð húsið hátt miðað við aðra byggð og líklegt að þar hafi verið breiddur fiskur. En einnig getur verið að málvenjan um stakkstæðin hafi fylgt húsinu frá svæðinu við Strandgötuna, því þar var voru mörg stakkstæði.3Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 92. Hafnarfjörður. Sótt 30. október 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_113.pdf.
Ólafía, dóttir Þorláks og Margrétar hefur lýst húsinu þannig: „Húsið var allt af timbri, en fyrir stopp var notaður hellusteinn, sóttur suður í hraun. Síðan voru hellurnar lagaðar til og lagðar í steinlím í veggina og milli bitanna. Var það kallað að hús væri múrað upp í bindingsverk.“4Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 93.
Til er brunavirðing á húsinu frá 1917, þegar Margrét Guðnadóttir, sem þá var orðin ekkja, átti húsið. Þar kemur fram:
Íbúðarhúsið er einlyft með risi, hæð 2.80 m. Því er skipt niðri í þrjár stofur , eldhús og anddyri, 2 stofur fóðraðar, allt klætt panel , allt málað. Uppi er húsinu skipt i tvö herbergi, klætt panel.
Stærð hússins: 7.60 x 6.10 m. Hæð 2.80 m. Útveggir: Járn, steinar. Þakefni: Timbur, skífur yst. Gluggar: 8. Eldavélar: 2. Ofnar: 2. Við austurhlið hússins er skúr með vatnshallaþaki notaður til inngöngu í húsið. Stærð: 3.10 x 2.10 m, hæð 2.10 m. Gluggar: 1. Útveggir og þak: Timbur járnvarið.5Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 92.
„Nokkru eftir að Hverfisgatan var lögð, var það aftur flutt og þá upp að henni og í heilu lagi.“6Magnús Jónsson (1970), bls. 84. Í seinna skiptið, væntanlega um 1960, var húsið ekki flutt nema örfáar húsbreiddir, þar sem það stendur enn og er númer 4 við Hverfisgötu.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Strandgata 5, Hafnarfirði, verknr. 2685 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 2Hafnarfjörður (2002, 1. nóvember). Úthlutun húsverndarstyrkja 2002. Sótt 14. janúar 2010 af http://hafnarfjordur.is/hafnarfjordur/nanar_forsidu/?cat_id=3&ew_0_a_id =4951; Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 78 og 84. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur; Karl Rúnar Þórsson, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2010, 4. ágúst). Tölvupóstur.
- 3Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 92. Hafnarfjörður. Sótt 30. október 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_113.pdf.
- 4Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 93.
- 5Húsaskráning Miðbær Hraun vestur (2015), bls. 92.
- 6Magnús Jónsson (1970), bls. 84.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. desember, 2023
