Hjarðarholt í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík. Heimild: Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 86. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172.
Hjarðarholt í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík. Heimild: Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 86. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172.

Hvassahraun 6, Grindavík

Heiti: Hjarðarholt
Byggingarár: 1935
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bergur Bjarnason og Jóhanna Guðleif Vilhjálmsdóttir
Aðrir eigendur:
1991: Guðbergur og Hinrik Bergssynir
Upphafleg staðsetning: Við Þórkötlustaðaveg í Grindavík
Flutt: 1962 að Hvassahrauni 6 í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík

Saga:

Árið 1935 fluttu hjónin Bergur Bjarnason (1903-1997) og Jóhanna Guðleif Vilhjálmsdóttir (1900-1984) frá Ísólfsskála austan Grindavíkur til Þórkötlustaðahverfisins í Grindavík. Einn sona þeirra var Guðbergur (1932-2023), sem þá var þriggja, en hann átti síðar eftir að verða frægur rithöfundur og þýðandi og heiðursborgari Grindavíkur.

Bergur, sem var smiður góður, hóf strax handa við að byggja hús fyrir fjölskylduna. Hann varð þó að sinna sjómennsku til að hafa ofan í fjölskylduna og á, og gat því ekki sinnt smíðinni nema í „frístundum“ og vildi aldrei þiggja neina aðstoð við verkið. Á meðan bjó fjölskyldan í skólahúsinu í Þórkötlustaðahverfi. Síðan fékk Bergur réttindi sem húsasmiður og byggði fjölda húsa.

Húsið, sem nefnt var Hjarðarholt, stóð skammt sunnan steinhlöðnu fjárréttarinnar sem enn stendur í Þórkötlustaðahverfi við Þórkötlustaðaveg og enn má sjá móta fyrir grunni hússins.1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 86. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172.

Hvassahraun 6, Grindavík í ágúst 2022. Þar sem pallurinn er vinstra megin við húsið var áður olíutankur. Bergur smíðaði lítinn pall yfir tankinn. Þar lá hann stundum í sólbaði í síðum brókum sem sumum fannst skondið (Sólrún Auður Katarínusardóttir (2025, 2. september). Tölvupóstur). Ljósm.: Ja.is.

Um og upp úr miðri síðustu öld tók íbúum í Þórkötlustaðahverfi að fækka vegna aukinna umsvifa í Járngerðarstaðahverfi sem varð þungamiðja athafnalífsins í Grindavík m.a. með uppbyggingu hafnarmannvirkja og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki sem reist voru þar. Árið 1966 höfðu a.m.k. 6 íbúðarhús verið flutt úr Þórkötlustaðahverfinu yfir í Járngerðarstaðahverfi og nokkur til viðbótar verið rifin.2Efla verkfræðistofa (2019, 16. september). Verndarsvæði í byggð, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, bls. 16.

Hjarðarholt var eitt þeirra húsa sem var flutt í Járngerðarstaðahverfið og varð númer 6 við Hvassahraun. Þegar Bergur flutti á sínar bernskuslóðir árið 1991 keyptu bræðurnir Guðbergur og Hinrik Bergssynir húsið og enn er það í eigu afkomenda Bergs og Jóhönnu og vel er hlúð að því.3Auk skráðra heimilda er stuðst við viðtalsþátt með Guðbergi Bergssyni sem sýndur var á Stöð 2 7. nóvember 2021 og skáldævisöguna Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar eftir Guðberg Bergsson.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025