Hús Guðmundar borgara Jónssonar, Blönduósi
1887 til Akureyrar
Saga:
Árið 1881 byggði Guðmundur borgari Jónsson (1851-1899) veglegt hús á Blönduósi. Guðmundur var hómópati sem hugðist stunda lyfsölu og hafði keypt mikið magn lyfja í þeim tilgangi. Þetta framtak var þó ekki litið hýru augu, því héraðslæknirinn sem sat á Sauðárkróki kærði hann fyrir ólöglega lyfsölu árið eftir og hrökklaðist þá Guðmundur slippur og snauður frá Blönduósi, fyrst til Stykkishólms og síðar til Reykjavíkur. Húsið var selt á uppboði að ósk Guðmundar árið 1885, en andvirði þess nægði engan veginn fyrir skuldum Guðmundar sem voru aðallega við C. W. Salomons í Kaupmannahöfn. Þá er húsið sagt 12 x 8 álnir með gólfi og lofti, tveimur herbergjum uppi og einu niðri. Húsið var slegið Jósefi Einarssyni (1836-1916) bónda á Hjallalandi, sem reyndar var innheimtumaður uppboðsins. Árið 1887 var húsið tekið niður og flutt til Akureyrar.1Pétur Sæmundsen (1975). Blönduós. Drög að sögu fram um 1940, bls. 427. Í Sigurður Líndal og Stefán Á. Jónsson (ritstjórar), Húnaþing I, bls. 420-473. [Akureyri:] Búnaðarsamband Austur-Húnvetninga; Jón Arason (2010, 17. júlí). Tölvupóstur. Ekki er vitað hver átti húsið þá. Ekki er heldur ljóst hvar húsið var sett niður á Akureyri eða hvort það standi þar enn.
Þess má geta að eiginkona Guðmundar var Una Gísladóttir (1854-1924), sú sem Unuhús er nefnt eftir, en þau hjón byggðu það hús árið 1896 eftir að þau fluttu til Reykjavíkur.2Freyja Jónsdóttir (2000, 10. júní). Una í Unuhúsi. Dagur – Íslendingaþættir, 83. og 84. árg., 22. tbl., bls. 2-3.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. september, 2026
Heimildaskrá
- 1Pétur Sæmundsen (1975). Blönduós. Drög að sögu fram um 1940, bls. 427. Í Sigurður Líndal og Stefán Á. Jónsson (ritstjórar), Húnaþing I, bls. 420-473. [Akureyri:] Búnaðarsamband Austur-Húnvetninga; Jón Arason (2010, 17. júlí). Tölvupóstur. ↩︎
- 2Freyja Jónsdóttir (2000, 10. júní). Una í Unuhúsi. Dagur – Íslendingaþættir, 83. og 84. árg., 22. tbl., bls. 2-3. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 14. september, 2026