Framar á myndinni er Faktorshúsið á upphaflegum stað, trúleg um 1914. Heimild: Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 62. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.
Framar á myndinni er Faktorshúsið á upphaflegum stað, trúleg um 1914. Heimild: Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 62. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.

Húnabraut 6, Hvammstanga

Heiti: Riishús (1902-1912) - Faktorshúsið (1913-1935) - Hvammur (frá 1936)
Byggingarár: 1902
Rifið: 1962 og 2010
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: R. P. Riis
Aðrir eigendur:
1919: Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
1921: Stefán Eggertsson
1935: Hannes Jónsson
Upphafleg staðsetning: Á Tanganum á Hvammstanga
Fyrst flutt: 1923 að Húnabraut 6, Hvammstanga
Flutt: 1962 var hluti hússins fluttur að Saurum í Miðfirði
Hvernig flutt: Dregið í heilu lagi á gangspili
Húnabraut 6 3

Hvammur við Húnabraut 6 árið 1964. Skúrinn sem sést í til vinstri við húsið var gamla Búðin. Heimild: Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 64. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.

Húnabraut 6 2

Geymslan á Saurum í Miðfirði, Byrjað að rífa geymsluna í júlí 2010. Ljósm.: Þorvaldur Böðvarsson.

Saga:

Sumarið 1900 hóf R. P. Riis (um 1860-1920) kaupmaður á Borðeyri verslunarrekstur á Hvammstanga. Hann byrjaði á því að byggja verslunarhús á Tanganum en árið 1902 byggði hann íbúðarhús skammt austan við verslunarhúsið fyrir faktor verslunarinnar. Það var 3,76 x 7,52 metra timburhús sem Sigvaldi Björnsson smiður frá Bjargi í Miðfirði byggði. Húsið stóð rétt suðaustan við Kaupfélagshúsið. Fyrsti faktor Riis kaupmanns var Sigurbjarni Jóhannesson (1866-1947), sem starfað hafði við Riis-verslun hans á Borðeyri frá 1893. Hann var gerður að faktor á Hvammstanga um aldamótin, en fluttist þangað ekki búferlum fyrr en árið 1902 og var hann því fyrsti íbúi nýja hússins.1Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Saga Hvammstanga II 1938-1998, bls. 15-16. [Hvammstanga:] Húnaþing vestra. Árið 1919 hætti Riisverslun allri starfsemi á Hvammstanga og keypti þá Kaupfélag Vestur-Húnvetninga allar eignir hennar þar.2Steingrímur Steinþórsson (1995). Saga Hvammstanga og hins forna Kirkjuhvammshrepps I, bls. 2011. [Hvammstanga:] Hvammstangahreppur; Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 62-64. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.

Árið 1923 lét þáverandi eigandi hússins, Stefán Eggertsson, flytja Faktorshúsið ofar í þorpið, á lóð númer 6 við Húnabraut. Var húsið dregið á gangspili. Eftir það var húsið nefnt Hvammur. Hann rak litla verslun um tíma í skúr sem áfastur var húsinu.3Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Bls. 38-39; Þórður Skúlason (2021), bls. 62-64.

Í fasteignamati sem gert var á Hvammstanga á árunum 1916 til 1918 kemur fram að íbúðarhús þetta hafi verið úr timbri …

… 6 x 12 al., hæð undir loft 3,5 al., port um 1 al. Að utan, standandi klæðning, pappi á tvo vegu, járnþak. Steinlímdur kjallari undir öllu húsinu, tvö herbergi og gangur, á gólfi eru tvö herbergi og gangur, á lofti tvö herbergi og gangur. Herbergi á gólfi máluð. … Þak, grunnur og kjallarinn, gallað, veggir signir frá fótstykki á kafla, þak farið að ryðga. Reykháfur úr steini.4Þórður Skúlason (2021), bls. 62.

Í fasteignamati 1930, þegar húsið hefur verið flutt að Húnabraut 6, kveður við örlítið annar tónn. Húsið er sagt dável byggt, rakalaust og hlýtt. Þar er þá einn ofn og ein eldavél. Timburskúr, 34 fermetra með steyptu gólfi að hluta er þá við húsið. Hann var kallaður Búðin því Stefán Eggertsson var þar með litla verslun.5Þórður Skúlason (2021), bls. 62.

Árið 1935 keypti Hannes Jónsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, húsið og notaði það fyrir sig og fjölskyldu sína þegar með þurfti en leigði það stundum öðru fólki. Síðast bjuggu í Hvammi Helgi Benediktsson og Kristín Jónsdóttir en húsið var að hluta til flutt fram að Saurum í Miðfirði þegar nýtt hús var byggt á lóðinni 1962.6Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Bls. 39.

Gamla húsið stóð á lóðinni um tíma eftir að nýja húsið var byggt og bjuggu þá leigjendur í gamla húsinu, en að lokum var það rifið en skúrinn sem kallaður var Búðin fluttur að Saurum.

Veggflekar eða hlutar úr veggjum voru settir saman á Saurum og byggð geymsla, sem á var sett skúrþak og tvær vélgengar dyr fyrir litlar dráttarvélar. Árið 2010 var geymsla þessi rifin.7Þorvaldur Böðvarsson (2010, 13. júlí). Tölvupóstur; Þórður Skúlason (2021), bls. 64.

 

Leitarorð: Hvammstangi

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. nóvember, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Saga Hvammstanga II 1938-1998, bls. 15-16. [Hvammstanga:] Húnaþing vestra.
  • 2
    Steingrímur Steinþórsson (1995). Saga Hvammstanga og hins forna Kirkjuhvammshrepps I, bls. 2011. [Hvammstanga:] Hvammstangahreppur; Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 62-64. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.
  • 3
    Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Bls. 38-39; Þórður Skúlason (2021), bls. 62-64.
  • 4
    Þórður Skúlason (2021), bls. 62.
  • 5
    Þórður Skúlason (2021), bls. 62.
  • 6
    Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Bls. 39.
  • 7
    Þorvaldur Böðvarsson (2010, 13. júlí). Tölvupóstur; Þórður Skúlason (2021), bls. 64.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. nóvember, 2025