Hrísholt 4, Selfossi
Hlaðir, Austurvegi 24, Selfossi á árunum 1981-1990. Ljósm.: Magnús Aðalbjarnarson. Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Mynd nr. 2007_35_MAÞF_00009. Sótt 22. júní 2025 af https://myndir.myndasetur.is/.
Hlaðir híft af grunni sínum við Austurveg 24 á Selfossi árið 1993. Ljósm.: Sigurður Jónsson. Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Mynd nr. 2010_92_SJ_08147. Sótt 22. júní 2025 af https://myndir.myndasetur.is/.
Hlaðir híft af grunni sínum við Austurveg 24 á Selfossi árið 1993. Ljósm.: DV/Kristján. Heimild: Kristján Einarsson (1993, 7. september). Frægt hús á Selfossi fært af aðalgötunni. Dagblaðið Vísir, 83. og 19. árg., 201. tbl., bls. 5.
Saga:
Á kortasjá verkefnisins „Söfnun upplýsinga um húseignir í Sveitarfélaginu Árborg“ er fjallað um húsið sem nú stendur við Hrísholt 4 á Selfossi.
Húsið byggðu þau Jóhann Kristinn Ólafsson (1883-1967) frá Smjördalakoti og Kristín Guðnadóttir (1891-1942) frá Kolviðarhóli árið 1934 við Austurveg 24 á Selfossi.1Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
Um húsið segir á fyrrnefndri kortasjá:
„Þegar Jóhann og Kristín settust að á Selfossi árið 1932 fluttu þau fyrst inn í heyhlöður Gunnars [Sigurðssonar] á Selalæk, alþingismanns og bjuggu þar í tvö ár. Gunnar hafði áður hugsað sér að starfrækja þar heybanka fyrir bændur en það gekk ekki eftir og aldrei var sett neitt hey í hlöðurnar en útbúnar þar íbúðir í staðin. Hlöður Gunnars urðu þó hvað þekktastar fyrir Hlöðufundinn 1930 en þá var haldinn í Hlöðunum stjórnmálafundur vegna landkjörskosninga. Þar voru margir góðir ræðumenn saman komnir t.d. Jón Þorláksson, Jónas frá Hriflu, Jón Baldvinsson og fleiri. Sumarið 1934 ákveður Jóhann að rífa mið- og austur álmu Hlöðunnar og úr timbrinu reisti hann sér íbúðarhúsið Hlaðir. Húsið er nefnt Hlaðir eftir aðsetri jarlanna á Hlöðum í Noregi. Hlaðir er íslenskt bárujárnshús með tveimur hæðum og á steyptum kjallara.
Í lok ágúst 1993 var húsið Hlaðir tekið upp af grunninum og flutt frá Austurvegi 24 og yfir í Hrísholt 4 þar sem byggja átti nýjan grunn undir það og gera íbúðarhæft eftir langan tíma sem verslunarhús. Tveir kranar lyftu húsinu af grunninum á flutningabifreið sem flutti það eftir Austurvegi að lóðinni við Hrísholt. Fjöldi fólks fylgdist með flutningunum þegar þeir áttu sér stað. Ástæða þess að húsið var flutt um set voru aukin umsvif Pósts og síma en til stóð að byggja við húsnæði þeirra sem stóð við hlið Hlaða. Eftir flutningana var húsið gert upp og er nú hið glæsilegasta.
Jóhann og Kristín bjuggu í húsinu til ársins 1939 ásamt átta börnum sínum. Árið 1939 fluttu í húsið Jón Pálsson [1891-1988] dýralæknir frá Tungu í Fáskrúðsfirði og konan hans Áslaug Ólafsdóttur [1895-1981] frá Lágafelli í Mosfellssveit. Þau fluttu þangað ásamt stálpuðum sonum sínum; Garðari, Ólafi, Páli og Helga. Einnig ólu þau upp sem sína eigin dóttur Steinunni Helgu systurdóttur Áslaugar. Þau bjuggu í húsinu til ársins 1961 en þá fluttu í það Ólafur Jónsson og Hugborg Benediktsdóttir ásamt sonum sínum; Jóni, Kjartani og Benedikt. Því næst flytur í húsið Herborg Friðjónsdóttir ásamt börnum sínum; Ólafi Stefáni, Ernu Maríu, Önnu Maríu og Friðjóni. Einnig bjó Einar St. Bjarnason í húsinu á árunum 1972-1981 en hætt var að búa í því árið 1982 og því breytt í verslunar og skrifstofuhúsnæði. Raftækjaverslunin Radíóver opnaði í húsinu árið 1982. Einnig hýsti húsið skrifstofu fréttablaðsins Suðurlands á tímabili og auk þess var Alþýðuflokkurinn með kosningaskrifstofu í húsinu árið 1987. Það er ekki fyrr en húsið var fært árið 1993, eftir að húsið er fært í Hrísholt að aftur er búið í húsinu. Þau sem létu flytja húsið voru ung hjón, Guðjón Ægir Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður og Þórdís Erla Þórðardóttir snyrtifræðingur. Þau ólu sínu börn Hjört Leó og Hörpu Hlíf upp í húsinu. Fjölskyldan býr enn í Hlöðum þó hoggið hafi verið stórt skarð í hana árið 2009 þegar Guðjón lést af slysförum. Þórdís Erla hefur opnað snyrtistofuna Myrru í bílskúr hússins og er þar með sjálfstæðan rekstur og í kjallara hússins hefur verið útbúin íbúð.
Jóhann Ólafsson hafði numið húsasmíðar í Reykjavík og réðst árið 1912 til Jóns Þorlákssonar landsverkfræðings sem brúarsmiður og starfaði þar til ársins 1924. Hann brúaði margar ár og má þar sem dæmi nefna Þverá í Borgarfirði, Jökulsá á Sólheimasandi og austurós Héraðsvatna. Einnig byggði hann allmargar bryggjur s.s. Shellbryggju í Skerjafirði og Viðeyjarbryggju. Eftir að Jóhann og Kristín höfðu byggt Hlaðir útbjó Jóhann trésmíðaverkstæði í kjallaranum sem var útbúið miklum vélakosti. Þar hafði hann til dæmis sambyggða vél sem var allt í senn, fræsari, hjólsög, þykktarhefill og bandsög til þess að saga hringinn í vagnhjólin. Í kjallaranum smíðaði hann á næstu árum mikið af hestvögnum, vagnhjólum, hurðum og gluggum. Jóhann var mjög ráðagóður og smíðaði margar nýjungar s.s. keðjudrifinn mykjudreifara sem þó hafði sína galla. Smíðavélarnar voru knúðar áfram af glóðarhausamótor, sem hafður var í skoti austur af húsinu og lágu þaðan langar reimar að vélunum, enda var ekki rafmagn komið þá til þess að knýja vélar.
Árið 1939 hætti Jóhann rekstri trésmíðaverkstæðisins og seldi Jóni Pálssyni dýralækni húsið. Jón Pálsson nam dýralækningar í Kaupmannahöfn og hóf störf við dýralækningar á Austfjörðum með búsetu á Reyðarfirði. Hann fluttist að Selfossi vorið 1934 og tók við nýstofnuðu dýralæknisumdæmi Suðurlands en það náði þá yfir þrjár sýslur, auk Vestmannaeyja. Þau hjónin bjuggu fyrst í lítilli íbúð í Bankahúsinu, leigðu svo í tvö ár í Núpi, fluttu þá aftur í Bankahúsið og keyptu svo loks Hlaðir í desember 1939. Árið 1950 var dýralæknaumdæminu svo skipt þannig að Jón sá einungis um Árnessýslu. Þau hjónin bjuggu í Hlöðum til ársins 1961 en þá byggðu þau sér hús á Hlaðavöllunum og höfðu þá margir aðilar leigt hjá þeim á Hlöðum um lengri og skemmri tíma. Jón dýri eins og hann var alltaf kallaður lét af störfum sjötugur að aldri og lést 1988, 97 ára gamall. Jón lét ekki sitt eftir liggja í félagsmálum en hann var lengi viðloðandi sveitarstjórnarmál, var formaður hestamannafélagsins Sleipnis um tíma og einnig formaður hrossaræktarfélags Suðurlands. Jón var einnig sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín. Jón dýri fékk ekki viðurnefnið sitt vegna þess hve dýrt var að kaupa þjónustu hans heldur einfaldlega vegna þess að hann var dýralæknir. Jón þótti mjög örlátur á vinnu sína og rukkaði yfirleitt minna en uppsett verð var fyrir dýralæknaþjónustuna, honum fannst nefnilega furðulegt að gera veikar kýr bænda að gróðastíu. Af þessum sökum fékk eftirmaður og nafni Jóns í dýralæknisembættinu viðurnefnið Jón rándýri en það eina sem hann gerði til þess að hljóta það nafn var að rukka bændur eftir viðurkenndum töxtum.
Áslaug kona Jóns stóð alla tíð þétt við hlið bónda síns og minnti hennar líf óneitanlega á líf sjómannskonunnar þar sem Jón þurfti að vera mikið á ferðalögum sökum starfs síns. Á þeim tíma sem hann þjónustaði allt suðurlandið voru samgöngur bágar og hann varð að fara um allt á hestum en það gefur auga leið að ferðalögin hafa af þeim sökum verið löng og tímafrek. Áslaug var vel inní störfum síns manns og gat séð um að afgreiða ýmis lyf til bænda á meðan hann var í burtu.“2Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
Á húsavef Árborgar kemur fram að eftirtaldar heimildir voru notaðar þegar greinin um Hrísholt 4 var rituð:
Áslaug Stephensen Selfossi- minning. Morgunblaðið, 6. nóvember 1981. 25.
Guðmundur Kristinsson. Saga Selfoss, 1-2. Selfoss: Selfosskaupstaður, 1991.
Jón Pálsson héraðsdýralæknir. Morgunblaðið, 28. desember 1988. 40.
Kristján Einarsson. Frægt hús á Selfossi fært af aðalgötunni. Dagblaðið Vísir, 7. September 1993. 5.
Sigurður Jónsson. Húsið Hlaðir flutt frá Austurvegi Selfossi. Mbl.is, 2. september 1993. Sótt 31. maí 2013 á: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/111368/
Þórdís Erla Þórðardóttir. Munnleg heimild, 4. júní 2013.3Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
- 2Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
- 3Húsavefur Árborgar. Hlaðir – Hrísholt 4 (Stóð áður við Austurveg 24). Sótt 21. júní 2025 af https://husavefur.arborg.is/.
Deila færslu
Síðast uppfært 22. júní, 2025



