Jófríðarstaðir, Hafnarfirði. Ljósm.: Sigurður Guðmundsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. SiG3-3071. Sótt 6. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=731018.
Jófríðarstaðir, Hafnarfirði. Ljósm.: Sigurður Guðmundsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. SiG3-3071. Sótt 6. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=731018.

Hringbraut 51, Hafnarfirði

Heiti: Jófríðarstaðir – Rauða húsið
Byggingarár: 1915
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Hinrik (Hendrik) A. Hansen og Signý Ólafsdóttir
Aðrir eigendur:
1922: Kaþólska trúboðið
Upphafleg staðsetning: Jófríðarstaðir, Hafnarfirði, þar sem nú stendur St. Jósefskirkja (kaþólska kirkjan í Hafnarfirði)
Flutt: 1990 að Hringbraut 21, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Hringbraut 51 2

Jófríðarstaðir í „lausu lofti“ og bíða flutnings. Heimild: Vill selja bænum allt land sitt (1990, 6. september). Fjarðarpósturinn, 8. árg., 18. tbl., bls. 2.

Hringbraut 51

Hringbraut 51, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Árið 1915 fékk Hinrik A. Hansen (1859-1940), bóndi og sjómaður, Ásgeir G. Stefánsson (1890-1965) yfirsmið til að byggja fyrir sig nýtt íbúðarhús á jörð sinni Jófríðarstöðum í Hafnarfirði. Í nóvember það ár gengu dóttir hans, Helga Steinunn (1889-1916), og Guðmundur Jónsson (1890-1957) í hjónaband og hélt faðir brúðarinnar veglega brúðkaupsveislu á Jófríðarstöðum. Helga lést af barnsförum árið eftir. Eiginkona Hinriks var þá Signý Ólafsdóttir (f. 1854). Hún andaðist árið 1919 og tveimur árum síðar brá Hinrik búi á Jófríðarstöðum. Eignaðist þá kaþólska trúboðið jörðina og húsið sem markaði upphaf að umfangsmiklu starfi kaþólska safnaðarins í Hafnarfirði. Rauða húsið, eins og sumir kölluðu það, var prestsbústaður og þurfti að víkja þegar St. Jósefskirkja var byggð 1991.1Gifting (1915, 28. nóvember). Morgunblaðið, 3. árg., 28. tbl., bls. 6;  Morgunblaðið (1916, 4. apríl). 3. árg., 152. tbl., bls. 1; Hinrik A. Hansen (1940, 13. janúar). Vísir, 30. árg., 10. tbl., bls. 3; Sigurður H. Þorsteinsson (2003, 18. desember). Kaþólskt trúboð í Hafnarfirði. Fjarðarpósturinn, 21. árg., 49. tbl., bls. 18-19.

Húsið var þá flutt að Hringbraut 51 í Hafnarfirði, þar sem það stendur enn og er málað rautt (í apríl 2024).

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. júní, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. júní, 2024