Suðurgata 29, Hafnarfirði um 1960 fyrir miðri mynd. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 0005-2306. Sótt 11. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1598125.
Suðurgata 29, Hafnarfirði um 1960 fyrir miðri mynd. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 0005-2306. Sótt 11. júní 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1598125.

Holtsgata 9, Hafnarfirði

Byggingarár: 1906
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ólafur Jónsson og Pálína Eysteinsdóttir
Aðrir eigendur:
1968: Hafnarfjarðarbær
Upphafleg staðsetning: Suðurgata 29 (áður Suðurgata 3), Hafnarfirði
Flutt: 1968 að Holtsgötu 9, Hafnarfirði
Holtsgata 9 3

Suðurgata 29 í Hafnarfirði. Teikning árið 1968. Sótt 11. júní 2024 af https://teikningar.hafnarfjordur.is/data/Holtsgata_9_0019.pdf.

Holtsgata 9 2

Saga:

Árið 1906 byggði Ólafur Jónsson (1856-1945) snoturt timburhús við Suðurgötuna í Hafnarfirði. Fyrst fékk húsið númerið 3, en síðar varð það númer 29 við Suðurgötu.

Árið 1910 bjó Ólafur í húsinu ásamt eiginkonu sinni, Pálínu Eysteinsdóttur (1866-1936). Þar bjó þá einnig einn lausamaður og Böðvar Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir ásamt tveimur börnum þeirra. Þá var húsið nefnt hús Ólafs Jónssonar Garða, eða Ólafshús, og Ólafur einnig nefndur Ólafur Jónsson Garða, en hann var kenndur við Garða á Álftanesi, þar sem hann bjó áður sem ráðsmaður og formaður hjá Þórarni Böðvarssyni prófasti.

Tíu árum síðar var húsið nefnt Suðurgata 3. Þá bjuggu þau Ólafur og Pálína enn í húsinu ásamt Ingibjörgu Sveinsdóttur, en þá voru fimm nýir einstaklingar komnir í húsið.1Húsakönnun Suðurbær (2013), bls. 52; Manntal 1910. Sótt 11. júní 2024 af https://manntal.is/; Manntal 1920. Sótt 11. júní 2024 af https://manntal.is/; Íslendingabók. Sótt 11. júní 2024 af https://islendingabok.is/; Garðar Þorsteinsson (1945, 7. júlí). Minningarorð: Ólafur Jónsson Garða. Alþýðublaðið, 25. árg., 147. tbl., bls. 7.

Eftir að Ólafur settist að í Hafnarfirði sótti hann sjó sem áður, og fór þá hvert sumar um langt skeið austur á Fjörðu og hafði þar formennsku á hendi, Var hann einn af fyrstu formönnum á vélbáti þar eystra, og fór þar, sem annarsstaðar, að honum brást ekki veiðiför, og var hann talinn manna hugkvæmastur í því, að finna ný mið, þegar veiðitregða varð á venjulegum slóðum.
Laust fyrir heimsstyrjöldina fyrri var Ólafur ráðinn flatningsmaður um nokkurt árabil á erlendum botnvörpuskipum til þess að kenna meðhöndlun fiskjar, og sóttust erlendir skipstjórar mjög eftir honum til þess starfa, þótt hann væri þá hátt á sextugs aldri. Er það til marks um hæfileika hans og dugnað. …

Ólafur Jónsson kvæntist árið 1896 Pálínu Eysteinsdóttur frá Hraunsholti, hinni mestu ágætis konu. Var hún manni sínum samhent í hvívetna, dugnaðarkona hin, mesta og fyrirmyndar móðir. Hún lézt árið 1936.
Heimili. þeirra hjóna var rómað fyrir gestrisni og rausnarskap. Voru það þeim báðum hinar mestu ónægjustundir, að veita gestum móttöku, og var aldrei neitt til sparað, að veita þeim það hezta, sem föng voru á. Eru mörgum minnistæðar þær hlýju viðtökur, er þeir áttu hjá þeim hjónum að fagna, eftir erfiða för á svölum vetrardegi.2Garðar Þorsteinsson (1945, 7. júlí). Minningarorð: Ólafur Jónsson Garða. Alþýðublaðið, 25. árg., 147. tbl., bls. 7.

Til er brunavirðing hússins frá árinu 1917. Þá var húsinu lýst þannig:

Húsið er einlyft með risi og porti, rishæð 2 m. Niðri er því skipt í 3 stofur, anddyri og eldhús allt klætt innan með panel. 2 stofurnar eru fóðraðar allt málað.
Uppi er því skipt í 2 herbergi og eldhús klætt innan með panel og málað.
Húsið er notað til íbúðar.
Undir öllu húsinu er kjallari notaður til geymslu, hæð 1.35 m. Gluggar: 2.
Grunnflötur hússins 6.40 x 5.50 m, hæð 3.75 m.
Gluggar 10. Eldavélar: 2. Ofnar: 4.
Inngönguskúr áfastur við húsið einlyftur með vatnshallaþaki. Klæddur innan með panel og málaður. Efni timbur, járnvarið. Stærð 2.50 x 3.25 m, hæð 2.20 m. Gluggar 2.
Geynmluskúr einlyftur með vatnshallaþaki. Stærð 3.30 x 3.25 m, hæð 2.20 m.
Gluggi 1. Efni timbur og þak pappalagt
.3Húsakönnun Suðurbær (2013), bls. 52.

Í maí 1968 auglýsti bæjarstjórinn í Hafnarfirði húseignina Suðurgötu 29 í Hafnarfirði til sölu til brottflutnings eða niðurrifs.4Tilboð (1968, 7. maí). Morgunblaðið, 55. árg., 91. tbl., bls. 22. Í september sama ár auglýsti bæjarstjórinn húseignina aftur til sölu, en nú var hún á steyptum kjallara við Holtsgötu 9 í Hafnarfirði, þar sem það stendur enn.5Hús í Hafnarfirði (1968, 24. september). Morgunlaðið, 55. árg., 208. tbl., bls. 29.

Á teikningum sést að húsinu var mjög lítið breytt þegar það var flutt, en því snúið, þ.e. gamla vesturhliðin varð nú suðurhlið.6Teikning af Holtsgötu 9, Hafnarfirði, samþykkt í júní 1968. Sótt 11. júní 2024 af https://teikningar.hafnarfjordur.is/data/Holtsgata_9_0019.pdf Og enn heldur húsið sinni upprunalegu mynd, þó settar hafa verið svalið yfir inngönguskúr á vesturgafli.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júní, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júní, 2024