Hólsgata 4, Neskaupstað
Saga:
Kolableikseyri er við sunnanverðan Mjóafjörð, örskammt utan við Askeyri. Þar var
einskonar fiskimannaþorp á tímabilinu 1880-1920 þegar þar bjuggu nokkrar fjölskyldur í tveimur íbúðarhúsum við litla grasnyt. Flest mun hafa orðið hér heimilisfast um 35 manns og á sumrum bættust við vermenn að sunnan sem streymdu til Austfjarðar nálægt aldamótum.1Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók Ferðafélag Íslands 2005, bls. 159. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
Árið 1910 flutti Norðmaðurinn Peter Andersen, Pétur norski eins og hann var kallaður, ásamt konu sinni Þórstínu Árnadóttur á Kolableikseyri. Pétur stundaði aðallega sjósókn en þau hjón höfðu einnig eina kú og fáeinar kindur, þó erfitt væri um heyskap. Pétur byggði nýtt íbúðarhús árið 1914, 9,45 metra langt og 7,56 m breitt með háu risi. Virðist fjölskyldan hafa verið ein um húsið.
Pétur var mikill gleðimaður í góðum skilningi og að minnsta kosti árlega efndu hjónin til fagnaðar á heimili sínu með súkkulaði, kaffi og dúndrandi balli þar sem allir voru velkomnir. Haustið 1919 var samkoman svo fjölmenn að Pétur reif skilrúm milli tveggja herbergja í öðrum enda hússins svo rýmra yrði um dansinn. Hafði hann þá að orði að rétt væri að búa svo um að fyrirhafnarminna yrði að opna á milli næst þegar þess gerðist þörf.
Í febrúar 1920 fórst Pétur ásamt 30 manna áhöfn með fiskiskipinu Valtý, sem gerði út frá Reykjavík. Um vorið flutti Þórstína til Norðfjarðar ásamt móður sinni og dætrum og um sumarið var haldið uppboð á Kolableikseyri og gerði ekkjan upp allar skuldir sínar.2Vilhjálmur Hjálmarsson (1988). Mjófirðingasögur. Annar hluti, bls. 194-197. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Íbúðarhúsið keyptu þeir Helgi Jónsson og Vigfús Sigurðsson, rifu það og fluttu til Norðfjarðar, þar sem það stendur enn á lóð númer 4 við Hólsgötu og nefnist Hóll.3Vilhjálmur Hjálmarsson (1988), bls. 197; Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar), bls. 17.Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar). Byggingarár húsa í Neskaupstað, bls. 17. Reykjavík: Veðurstofa Íslands.
Í Norðfjarðarsögu kemur fram að Hóll var byggður úr viðum hússins í Mjóafirði eftir að eldra hús með sama heiti og á sama stað brann. Helgi Jónsson rak skóverslun í litlu rými í kjallara hússins, en hann var skósmiður. Á húsinu var því skilti sem á stóð: Skóverzlun Helga Jónssonar.4Smári Geirsson (2009). Norðfjarðarsaga II. Frá 1895-1929. Frá löggildingu verslunarstaðar til kaupstaðarréttinda. Saga sveitar og þorps. Fyrri hluti, bls. 193-194. [Útg.staðar ekki getið:] Fjarðabyggð og Hólar.
Leitarorð: Mjóifjörður – Neskaupstaður – Norðfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Árbók Ferðafélag Íslands 2005, bls. 159. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
- 2Vilhjálmur Hjálmarsson (1988). Mjófirðingasögur. Annar hluti, bls. 194-197. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
- 3Vilhjálmur Hjálmarsson (1988), bls. 197; Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar), bls. 17.Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar). Byggingarár húsa í Neskaupstað, bls. 17. Reykjavík: Veðurstofa Íslands.
- 4Smári Geirsson (2009). Norðfjarðarsaga II. Frá 1895-1929. Frá löggildingu verslunarstaðar til kaupstaðarréttinda. Saga sveitar og þorps. Fyrri hluti, bls. 193-194. [Útg.staðar ekki getið:] Fjarðabyggð og Hólar.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. desember, 2023
