Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2023. Ljósm.: Ja.is
Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2023. Ljósm.: Ja.is

Hlíðargata 4, Neskaupstað

Heiti: Viðfjörður - Tunga
Byggingarár: 1916
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bjarni Sveinsson og Guðrún Friðbjörnsdóttir
Upphafleg staðsetning: Viðfjörður
Flutt: 1920 að Hlíðargötu 4, Neskaupstað

Saga:

Bjarni Sveinsson (1894-1978) fæddist í Viðfirði 5. ágúst 1894. Árið 1914 kvæntist hann Guðrúnu Friðbjörnsdóttur (1893-1989) frá Þingmúla í Skriðdal. Þau byggðu sér þar hús og stofnuðu heimili. Viðfjörður er syðsti fjörðurinn sem gengur inn af Norðfjarðarflóa.

Árið 1920 fluttu þau með dætur sínar þrjár í Nesþorp í Norðfirði og einnig húsið sem þau höfðu reist í Viðfirði. Því var komið fyrir á lóðinni sem nú (2023) er númer 4 við Hlíðargötu í Neskaupstað og nefnt Tunga. Þar bjuggu þau allan sinn búskap.1Sigurður Aðalgeirsson (1978, 3. desember). Bjarni Sveinsson frá Viðfirði – Minning. Morgunblaðið, 65. árg., 278. tbl., bls. 26.

Guðrún hafði lært  karlmannafatasaum hjá Guðrúnu Gísladóttur saumakonu á Seyðisfirði á árunum 1910 til 1912. „Guðrún vann við saumaskap allt til um 1930 ásamt því að sinna heimilisstörfum. Reyndar sá hún alveg fyrir heimilinu með saumaskap um tveggja ára skeið þegar maður hennar fékk spænsku veikina og átti við alvarlegan heilsubrest að stríða.“2Smári Geirsson (2009). Norðfjarðarsaga II. Frá 1895-1929, bls. 381. Reykjavík: Hólar.

Fyrstu árin í Neskaupstað stundaði Bjarni sjómennsku en vann einnig við bátasmíði. Síðan vann hann við Dráttarbrautina í Neskaupstað og vann samhliða því talsvert við húsasmíði. Í smíðahúsi sem hann kom sér upp á lóðinni við Tungu smíðaði hann m.a. trillur og vann við ýmsar viðgerðir.

Árið 1952 byggði Unnur yngsta dóttir þeirra Guðrúnar og Bjarna ásamt manni sínum Áseiri Lárussyni við Tungu og bjó þar með sinni fjölskyldu.3Sigurður Aðalgeirsson (1978, 3. desember).

 

Leitarorð: Neskaupstaður – Norðfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. febrúar, 2024