Hermannshús, Ólafsfirði
Um 1960 vestur fyrir ós Ólafsfjarðarár
Saga:
Um Hermannshús á Ólafsfirði segir í bókinni Hundrað ár í Horninu eftir Friðrik G. Olgeirsson:
Árið 1925 byggði Hermann Þorgrímsson [1877-1943] lítið timburhús, nánast kofa, sunnan við byggðina sem þá var komin. Húsið kallaði hann Hermannshús. Var oft glatt á hjalla hjá Hermanni næstu árin og kölluðu gárungarnir húsið Litla Lander og var þar höfðað til stærðar hússins og spilamennsku sem þar fór fram.1Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944 þéttbýlismyndun, fiskveiðar og fiskvinnsla, bls. 139. Ólafsfirði: Ólafsfjarðarkaupstaður.
Í sóknarmanntölum er Hermann skráður til heimilis í Hermannshúsi, en árið 1939 hefur húsið fengið skráninguna Aðalgata 16a. Hermann er ýmist skráður sem lausamaður, verkamaður eða tómhúsmaður.2Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Hermann Þorgrímsson. Ólafsfjarðarprestakall.
Húsið stóð þar sem verslunin Valberg var reist við Aðalgötu 16 um 1960 og þurfti Hermannshús að víkja fyrir hinu nýja stórhýsi líkt og húsið Sæbali, sem lesa má um hér: Kirkjuvegur 19, Sæbali, Ólafsfirði – Húsaflutningar. Þá var Hermannshús flutt vestur fyrir Ósinn á tún sem Guðmundur Þorsteinsson (Mummi í Mummabúð) átti, skammt frá veginum að Héðinsfjarðargöngunum og notað þar sem áhaldahús.3Friðrik G. Olgeirsson (2026, 5. maí). Tölvupóstur. Væntanlega hefur húsið þá verið komið í eigu Ólafsfjarðarkaupstaðar. Ekki er vitað hvenær húsið hvarf af sjónarsviðinu.
Leitarorð: Ólafsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2026
Heimildaskrá
- 1Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944 þéttbýlismyndun, fiskveiðar og fiskvinnsla, bls. 139. Ólafsfirði: Ólafsfjarðarkaupstaður. ↩︎
- 2Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Hermann Þorgrímsson. Ólafsfjarðarprestakall. ↩︎
- 3Friðrik G. Olgeirsson (2026, 5. maí). Tölvupóstur. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 5. maí, 2026