Hellisgata 26, Hafnarfirði
Saga:
Húsið, sem nú stendur við Hellisgötu 26 í Hafnarfirði, er sagt byggt árið 1985 í fasteignaskrá, en húsið á sér mun lengri sögu. Húsið var upphaflega byggt árið 1904 við Strandgötu, þar sem nú er lóð númer 37, en upphaflega var lóðin nr. 31. Fyrsti eigandi hússins var Lárus Bjarnason kennari, en árið 1917 virðist Einar Þórðarson úrsmiður hafa keypt húsið og var þá húsið brunavirt. Þá er húsinu lýst svo:
a) Húsið er einlyft með porti og risi 2,20m. Því er skipt niðri í 3 stofur, eldhús og anddyri, 2 stofur fóðraðar, annar klætt panel og málað. Uppi er húsinu skipt í 2 herbergi og gang, klætt panel, málað, í einni stofunni niðri er bókaverslun, annars er húsið notað til íbúðar. 8 gluggar á húsinu. Undir húsinu er 1,30m hár kjallari með 3 gluggum, grjóthlaðinn á 3 vegu og á 1 veg timbur járnvarið, honum er skipt í 2 herbergi og geymslu, í herbergjunum eru skósmíðavinnustofur. Við Norðurhlið hússins er skúr með vatnshallaþaki og 1 glugga, notaður til inngöngu í húsið. stærð: L. 2,10m. B. 2,50m. H.2,40m. 1 eldavél og 3 ofnar í húsinu. Allt virt á 6790kr.1Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Þegar Einar hugðist reisa nýtt hús á lóðinni árið 1925 auglýsti hann gamla húsið til flutnings. Í nýja húsinu, sem enn stendur, hafði Einar úrsmíðaverslun sína til margra ára.2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson og Rósa Karen Borgþórsdóttir (2019). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun [ekkert bls.tal]. Hafnarfirði: Hafnarfjarðarkaupstaður.
Húsið var flutt á baklóð við Strandgötu, sem þá var númer 29b, en er nú númer 35b.
Árið 1982 var húsið enn fyrir þegar nýbygging var í undirbúningi og aftur auglýst til flutnings, nú af Hafnarfjarðarbæ, sem eignast hafði húsið. Nú var húsið flutt að Hellisgötu 26, þar sem húsið stendur enn. Kaupandi hússins, Valdimar Erlingsson (f. 1956) húsasmíðameistari, sá sjálfur um flutning þess, en á nýju lóðinni var húsið stækkað töluvert.3Valdimar Erlingsson (2020, 9. júní). Munnleg heimild.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
- 2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson og Rósa Karen Borgþórsdóttir (2019). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun [ekkert bls.tal]. Hafnarfirði: Hafnarfjarðarkaupstaður.
- 3Valdimar Erlingsson (2020, 9. júní). Munnleg heimild.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. maí, 2024
