Hellisgata 15, Hafnarfirði
Saga:
Líklega er ekki rétt að tala um að húsið sem nú stendur við Hellisgötu 15 í Hafnarfirði hafi verið flutt, en það á sér sérkennilega byggingarsögu og því er fjallað um það hér.
Hjónin Sigríður Árnadóttir (1858-1942) og Þórarinn Eyjólfsson (1863-1951) útvegsbóndi voru síðustu ábúendur í Kóngsgerði í Leiru í Garði. Kóngsgerði var í landi Gufuskála í Garði. Þaðan var konungsútgerð á tímabili og fékk bærinn nafn sitt af því. Um aldamótin 1900 bjuggu Sigríður og Þórarinn í Kóngsgerði ásamt 6 börnum. Sigríður hafði ráðist til Þórarins árið 1893 til að taka að sér bústjórn hjá honum, en hann hafði þá nýlega misst fyrri konu sína.
Árið 1915 ákváðu hjónin að flytja með fjölskyldu sína til Hafnarfjarðar og fór þá Kóngsgerði í eyði. Þau tóku hús sitt niður, sem líklega var reist á árunum 1890-1900, og fluttu með sér til Hafnarfjarðar og fylgdi nafnið húsinu. Enn má sjá móta fyrir grunni hússins í Kóngsgerði, 5 x 3 m að stærð (þ.e. 2024).1Njáll Benediktsson (1991, 1. júní). Mannlíf í Leiru. Faxi, 51. árg., 4. tbl., bls. 126-128; Adolf Friðriksson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Kristborg Þórsdóttir (2010). Fornleifaskráning í sveitarfélaginu Garði II: Fornleifar frá Gufuskálum að Hrúðursnesi, bls. 14-15. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands; Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 89. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið; Helgi Þórarinsson, Hafnarfirði – Minning (1992, 6. febrúar). Morgunblaðið, 79. árg., 30. tbl., bls. 33; Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019). Minnisblað Byggðasafns Hafnarfjarðar. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Minning. Sigríður Árnadóttir (1942, 16. apríl). Morgunblaðið, 29. árg., 54. tbl., bls. 12.
Í Hafnarfirði höfðu þau Sigríður og Þórarinn keypt hús sem nefnt var Illugahús og stóð við Kirkjuveg 19. Það hús hafði Illugi Þorvarðarson (1852-1910) byggt árið 1902. Þau rifu Illugahús og notuðu viði þess ásamt viðunum úr Kóngsgerði í hús það sem enn kallast Kóngsgerði og er nú skráð við Hellisgötu 15 í Hafnarfirði. „Um 1930 var byrjað að reisa hús við nýja götu kennda við Hellisgerði og nefnd Hellisgata. Í fyrstu voru aðeins örfá hús við þá götu en um 1960 var Kirkjuvegurinn styttur og Hellisgatan lengd. Síðan þá hefur húsið verið númer 15 við Hellisgötu.“2Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
Í fasteignamati sem gert var árið 1916 var húsinu lýst þannig:
1. Íbúðarhús, stærð 6,45×4,25m. hæð 2,50m. einlyft með porti og risi, byggt úr timbri járnvarið, niðri skipt í 2 herbergi og eldhús, þiljað panel. Uppi skipt í 2 herbergi og gang, þiljað panel. Inngönguskúr, stærð: 2×1,80m hæð: 2m. með vatnshallaþaki, byggður úr sama og húsið. Undir öllu húsinu er kjallari hæð 0,80m. byggður úr grjóti, notaður til geymslu.
2. Geymsluskúr, stærð 2,50×1,90m. hæð, 2m. byggður úr timbri, þak pappavarið.
3. Lóðin, stærð: 100 alin faðm. Ræktað að nokkru til matjurta og gras girt með grjótgarði.3Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
Seinna á sama ári var kominn tveggja hæða inngönguskúr við húsið.
Salerni var komið fyrir í húsinu um 1965 þá fyrst á efri hæðina, en fram að því stóðu tveir útikamrar við austurhlið hússins, síðar voru þar gróðursett tré. Þegar einkarekin barnagæsla hóf starfsemi sína í húsinu árið 1976 var reist grindverk á stéttinni á milli efri og neðri inngangana og náði grindverk þetta út að næstu lóðum við Vesturbrú. Um 1970, eru gerðar gluggabreytingar á suður og austurhlið og húsið málað í grænum lit.4Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. mars, 2025
Heimildaskrá
- 1Njáll Benediktsson (1991, 1. júní). Mannlíf í Leiru. Faxi, 51. árg., 4. tbl., bls. 126-128; Adolf Friðriksson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Kristborg Þórsdóttir (2010). Fornleifaskráning í sveitarfélaginu Garði II: Fornleifar frá Gufuskálum að Hrúðursnesi, bls. 14-15. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands; Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 89. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið; Helgi Þórarinsson, Hafnarfirði – Minning (1992, 6. febrúar). Morgunblaðið, 79. árg., 30. tbl., bls. 33; Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019). Minnisblað Byggðasafns Hafnarfjarðar. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Minning. Sigríður Árnadóttir (1942, 16. apríl). Morgunblaðið, 29. árg., 54. tbl., bls. 12.
- 2Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
- 3Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
- 4Hellisgata 15 – Kóngsgerði – Kirkjuvegur 19 (2019).
Deila færslu
Síðast uppfært 18. mars, 2025

