Hallveigarstígur 10, Reykjavík
Saga:
Jón Jasonarson (f. 1835) hóf veitingasölu á Borðeyri um 1880. Þegar hann lést árið 1902 hélt Þóra Guðjónsdóttir (f. 1867), ekkja hans, veitingarekstrinum áfram. Hún lét rífa veitingahúsið sem maður hennar hafði látið reisa um 1880 og byggði annað stærra hús, sem þótti afar glæsilegt, tvílyft með svölum á móti suðri. Húsið þótti mikil staðarprýði.1Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst). Borðeyri, bls. 26. Sótt 21. febrúar 2011 af http://bordeyri.is/sidur/greinar-efni; Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst). Sjötug: Frú Þóra Guðjónsdóttir. Morgunblaðið, 24. árg., 196. tbl., bls. 7.
Það orð lék á starfsemi Vertshússins að þegar menn færu að þreyta fast drykkju og sitja lengi við og væru orðnir ölvaðir, léti Þóra vert, eins og hún var kölluð, þynna vínið með vatni. Vínið var sótt í könnu í kjallara undir litlu timburhúsi er stóð á lækjarbakkanum. Í kjallaranum stóðu víntunnurnar á stokkum og stutt var í lækinn til að bæta í vatninu.2Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 26.
Þóra stundaði ekki lengi veitingasölu í húsinu því þegar áfengissala var bönnuð árið 1915 var grunninum kippt undan starfseminni og Þóra flutti til Reykjavíkur. Hún seldi Gunnari Sigurðssyni frá Selalæk húsið.3Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 27. Í júlí 1918 óskaði Gunnar eftir því við byggingarnefnd Reykjavíkur að fá að reisa húsið á lóðum sem hann átti við Bergstaðastræti og voru númer 8 og 10. Hann hafði þá um vorið fengið smiði úr Reykjavík til að fara norður á Borðeyri til að rífa húsið niður til að vera viss um að yrði rétt gert svo auðveldara yrði að reisa það aftur. Húsið var 10 x 7,5 m að grunnfleti. Hann segir í bréfi sínu að húsið bæti úr því húsnæðisleysi sem sé í Reykjavík og muni verulega um húsið sem hann geti leigt 5 til 6 fjölskyldum.4Gunnar Sigurðsson frá Selalæk – Minning (1962, 18. desember). Vísir, 52. árg., 285. tbl., bls. 7. Gunnar fékk leyfið og húsið var reist, að vísu talsvert breytt. Síðar varð það númer 10 við Hallveigarstíg, þar sem það stendur enn. Í febrúar 1919 var húsið virt til brunabóta. Í virðingunni kemur fram að húsið sé tvílyft og á hvorri hæð eru 5 herbergi, eldhús, WC og 2 gangar. Í kjallara voru 6 herbergi, 2 gangar og 2 fastir skápar.5Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Hallveigarstígur 10; Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 27; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar. Bók 23-11-1917 til 13-11-1920. Aðfnr. 739. Brunavirðingarnúmer: 1426. Sótt 20. desember 2023 af borgarskjalasafn.is.
Það vekur eftirtekt að það verður ekki betur séð en það hafi verið kona sem byggði þetta glæsilega hús. Þess skal þó getið að þegar gamall Húnvetningur skrifaði um Þóru Guðjónsdóttur í tilefni af sjötugsafmæli hennar í Morgunblaðið árið 1937 segir hann að eiginmaður hennar, Jón Jasonarson, hafi byggt húsið, en Þóra var þriðja eiginkona hans.6Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst). Þetta stenst þó ekki við aðrar heimildir um húsið. Annað í þessari grein vekur athygli. Þar kemur fram að þegar greinin var skrifuð var Þóra til heimilis að Hallveigarstíg 8, næsta húsi við stórhýsið sem hún hafði byggt.
Um Þóru og er sagt meðal annars í fyrrnefndri afmælisgrein:
Við erum margir eldri mennirnir, sjerstaklega Norðlendingar, sem minnumst með virðingu og þakklæti húsfreyjunnar á Vertshúsinu á Borðeyri, fyrir þá gestrisni og látlausu prúðmensku, sem við ávalt mættum þar. Og þar var sama göfuga viðmótið sýnt örsnauðum fátæklingnum sem hæsta höfðingja. Um það hvort gesturinn gæti greitt fyrir sig, var ekki spurt, heldur þess hvers hann þarfnaðist.7Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst).
Gunnar Sigurðsson frá Selalæk var lögfræðingur og alþingismaður um tíma. Hann fékkst við margt, gaf meðal annars út tímaritið Íslenzk fyndni, stundaði búrekstur, ritstjórn, síldarútgerð og fasteignaviðskipti og hefur væntanlega keypt og flutt húsið á Borðeyri í viðskiptalegum tilgangi.8Gunnar Sigurðsson frá Selalæk – Minning (1962, 18. desember).
Húsinu var breytt mikið árið 1941, það múrhúðað og gluggaskipan breytt, en nú hefur það verið fært nær upprunalegu útliti.9Hallveigarstígur 10, Reykjavík, verknr. 1257 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst). Borðeyri, bls. 26. Sótt 21. febrúar 2011 af http://bordeyri.is/sidur/greinar-efni; Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst). Sjötug: Frú Þóra Guðjónsdóttir. Morgunblaðið, 24. árg., 196. tbl., bls. 7.
- 2Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 26.
- 3Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 27.
- 4Gunnar Sigurðsson frá Selalæk – Minning (1962, 18. desember). Vísir, 52. árg., 285. tbl., bls. 7.
- 5Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Hallveigarstígur 10; Georg Jón Jónsson (2010, 31. ágúst), bls. 27; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar. Bók 23-11-1917 til 13-11-1920. Aðfnr. 739. Brunavirðingarnúmer: 1426. Sótt 20. desember 2023 af borgarskjalasafn.is.
- 6Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst).
- 7Gamall Húnvetningur (1937, 27. ágúst).
- 8Gunnar Sigurðsson frá Selalæk – Minning (1962, 18. desember).
- 9Hallveigarstígur 10, Reykjavík, verknr. 1257 í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. desember, 2023

