
Hafnargata, Keflavík
Saga:
Árið 1902 fluttu hjónin Helgi Eiríksson bakari (1878-1940) og Sesselja Árnadóttir (1879-1963) frá Eskifirði til Keflavíkur til að starfrækja brauðgerðarhús og höfðu í farteskinu þetta reisulega hús.1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 771. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur. Um þetta segir Marta Valgerður Jónsdóttir:
Þau komu ekki tómhent ungu hjónin, því þau fluttu með sér stórt og myndarlegt hús, er þau höfðu átt og búið í á Eskifirði. Þótti þetta í mikið ráðist, en allt blessaðist þetta vel. Þegar húsið var rifið eystra, var hverju stykki, stóru og smáu, raðað niður í búnt og allt tölusett. Man ég, að þeir, er skipuðu öllu þessu efni upp í Keflavík, dáðust að, hve vel var gengið frá efni hússins og spáðu að fljótlega mundi húsið rísa af grunni, enda varð sú raunin á. Húsinu var valinn staður ofan við Hafnargötuna, rétt við Klapparstíginn. Var nú byggður grunnur og steypt stétt, eða rammi umhverfis allt húsið. Var þetta furðu stór flötur á mælikvarða Keflvíkinga, sem á þeim árum byggðu ósköp smá hús. Húsið var tvílyft. Í austurenda niðri, var sölubúð, sem sneri að Hafnargötunni, þar inn af jafnstórt herbergi, sem sneri í suður og innst skrifstofa, einnig á móti suðri. Í vestari enda var brauðgerðarhús, ásamt sölubúð og skrifstofu. Á miðri hlið hússins, sem sneri að götu, var sameiginlegur inngangur, en dyr til hægri í búðina og til vinstri í bakaríið. Efri hæðin var öll notuð til íbúðar. Þar voru stórar og skemmtilegar stofur, eldhús og nokkur svefnherbergi, mjög vistleg íbúð. Efst var lágt ris, sem aðallega var notað til geymslu, þó voru þar tvö smáherbergi.2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 771-772.
Ólafur Ásbjarnarson kaupmaður tók verslunarhúsnæðið á leigu og höndlaði þar með nýlendu- og vefnaðarvöru. Einnig var póstafgreiðsla í húsinu, sem Helgi sá um.
Heimili þeirra hjóna Helga og Sesselju var alltaf mannmargt, því þau voru gestrisin og dvöldu sumir gestir langdvölum og auk þriggja eða fjögurra barna þeirra voru bakari, bakaralærlingur og þjónustustúlkur til heimilis í húsinu.
Húsið stóð ekki lengi í Keflavík, því það brann til kaldra kola 22. janúar 1908. Eftir það fluttu þau hjón til Ísafjarðar.3Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 772-774.
Leitarorð: Eskifjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 771. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
- 2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 771-772.
- 3Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 772-774.
Deila færslu
Síðast uppfært 16. apríl, 2024