Fremsta húsið á þessari mynd er Hörmung. Heimild: Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 277. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Fremsta húsið á þessari mynd er Hörmung. Heimild: Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 277. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Hafnargata 59, Seyðisfirði

Heiti: Fornustekkir - Fornistekkur - Nýi-Fornistekkur - Hörmung
Byggingarár: 1907 ?
Rifið: 1958 eftir að aurskriða féll á húsið
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jóhann Steinholt ?
Aðrir eigendur:
1912: Friðþór Stefánsson
1912: Framtíðin hf.
1922: Stefán Th. Jónsson
1930: Útvegsbanki Íslands
1930: Einar Einarsson
1954: Síldarbræðslan hf.
Upphafleg staðsetning: Í Nautabási undir Bjólfi við norðanverðan Seyðisfjörð
Flutt: 1914 að Hafnargötu 59, Seyðisfirði
Hafnargata 59 2

Hörmung við Hafnargötu. Heimild: Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 276. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Hafnargata 59 3

Hörmung eftir að aurskriða féll á húsið árið 1958. Heimild: Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 276. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Saga:

Fornistekkur hét lítill bær sem var úti í Nautabás, undir Bjólfinum, skammt utan við Seyðisfjarðarkaupstað norðanmegin í firðinum.

Ekki liggur fyrir byggingarár bæjarins, en fyrstu heimildar um húsið eru frá árinu 1907 þegar Jóhann Steinholt  var eigandi þess. Árið 1914 var húsið flutt og byggt við sjóhús, sem stóð á lóð nr. 59 við Hafnargötu (í Antoníusarbugt (Forvaðavík)). „Útkoman úr þessum framkvæmdum var kölluð „Nýi-Fornistekkur“ og þótti nafngiftin svo hörmuleg að hið sérkennilega heiti Hörmung festist við húsið ….“1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 276-277. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður. Ekki er ósennilegt að ákveðið hafi verið að flytja húsið því 3. febrúar 1914 féll snjóflóð á það, sem olli það miklum skemmdum að íbúarnir urðu að flytja úr því. Um þetta snjóflóð segir í bókinni Skriðuföll og snjóflóð:

Snjóflóð hljóp á Fornastekk í Seyðisfirði aðfaranótt 3. febrúar [1914], braut fjósið og skemmdi íbúðarhúsið, svo að fólkið varð að flytja úr því. Fornistekkur er undir Bjólfinum, en allmiklu utan er Fjarðaraldan. Áður mun hann hafa verið nefndur Fornustekkir.2Ólafur Jónsson (1957). Skriðuföll og snjóflóð. Annað bindi, bls. 358. Akureyri: Bókaútgáfan Norðri.

Árið 1917 er hinu sambyggða húsi við Hafnargötu 59 lýst svo í virðingu:

Íbúðarhús, einlyft, portbyggt, úr timbri, báðir gaflar og önnur hliðin járnvarin.
Niðri: 2 stofur, 2 eldhús, gangur og geymsluherbergi. Húsið er málað og raflýst.3Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 277.

Ekki er laust við að saga hússins sé hálfgerð hörmungarsaga, því ekki vildi betur til en svo að tvisvar féllu aurskriður á húsið á hinum nýja stað. Í fyrra skiptið 16. september 1935, þegar Einar Einarsson útgerðarmaður átti húsið. Skriðan, sem hljóp fyrir dyr hússins svo íbúarnir urðu að bjarga sér út um glugga, skemmdi neðri hæð hússins og geymsluhús þess allmikið.4Skriðuhlaup á Austfjörðum valda miklu tjóni (1935, 17. september). Morgunblaðið, 22. árg., 213. tbl., bls. 6.

Aftur féll aurskriða úr Strandatindi á húsið 30. september 1958. Þá höfðu íbúar hússins yfirgefið það, því nokkrar smáskriður höfðu þegar fallið eftir 6 til 7 klukkustunda skýfall. Húsið varð fyrir svo miklum skemmdum að ekki var gert við það.5Óhugnanleg morgunstund á Seyðisfirði – Skriðuföll eftir úrhellis-regn (1958, 1. október). Morgunblaðið, 45. árg., 223. tbl., bls. 2.

Eigendalisti hússins hér að ofan er fenginn úr bók Þóru B. Guðmundsdóttur, Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar.6Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 276.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. júní, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 276-277. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
  • 2
    Ólafur Jónsson (1957). Skriðuföll og snjóflóð. Annað bindi, bls. 358. Akureyri: Bókaútgáfan Norðri.
  • 3
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 277.
  • 4
    Skriðuhlaup á Austfjörðum valda miklu tjóni (1935, 17. september). Morgunblaðið, 22. árg., 213. tbl., bls. 6.
  • 5
    Óhugnanleg morgunstund á Seyðisfirði – Skriðuföll eftir úrhellis-regn (1958, 1. október). Morgunblaðið, 45. árg., 223. tbl., bls. 2.
  • 6
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 276.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. júní, 2025