Hafnargata 48 um 1915. Þóra B. Guðmundsdóttir (1995).  Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar., bls. 264. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Hafnargata 48 um 1915. Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar., bls. 264. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Hafnargata 48, Seyðisfirði

Heiti: Wathneshús - Stóra-Wathneshús
Byggingarár: 1896
Rifið: 1992
Fyrsti eigandi: Friðrik Wathne kaupmaður
Upphafleg staðsetning: Reyðarfjörður
Flutt: 1906 að Hafnargötu 48, Seyðisfirði
Hafnargata 48 2

Hafnargata 48 skömmu áður en kviknaði í því. Þóra B. Guðmundsdóttir (1995).  Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 264. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austur­lands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Hafnargata 48 3

Hafnargata 48 eftir eldsvoðann 1992. Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 275. 2. útg. Seyðisfirði: Seyðisfjarðarkaupstaður.

Saga:

Friðrik Wathne hóf rekstur Wathnesverslunarinnar á Reyðarfirði árið 1891. Verslunin átti m.a. verslunar­hús og hús fyrir síldveiðifólk. Bróðir hans, Ottó, hafði þá rekið umfangsmikla starfssemi á Seyðisfirði frá árinu 1880. Árið 1894 eða 1895 lét Friðrik reisa sér glæsilegt íbúðarhús, sem fjölskyldan flutti í árið 1895.1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 265. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Guðmundur Magnússon (2003). Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, bls. 74-77. Fjarðabyggð: Fjarðabyggð. Í húsavirðingu árið 1896 var húsinu lýst þannig:

Stærð hússins er 23×14 álnir, vegghæð 6 ál. öll hæð 12,5 álnir.
Það er úr bindingsverki af 5 tommu trjám, allt klætt utan með plægðum borðum og járni. Milli bindingsins eru plægðir 2 þumlunga plankar.
Kjallari er undir öllu, 3 ál á hæð. Annar endi hans er innréttaður með 4 herbergjum og gangi í gegnum húsið. Hinn helmingurinn á að vera til að geyma í timbur.
Á fyrstu hæð eru 4 stofur, eldhús og borðstofa og gangur. Öll herbergin eru þiljuð, betrekt og máluð, og í þeim 4 magasínofnar. Í eldhúsi er kabyssa með bakaraofni.
Á annarri hæð eru 5 svefnherbergi, öll þiljuð, betrekt og máluð, með 3 magasínofnum, 4 hliðarherbergi, gangur og trappa upp á efsta loft. Tveir skorsteinar eru í húsinu. Allir gluggar eru með hlerum til að draga fyrir. Vatnsrör eru í húsið og má taka vatnið bæði uppi og niðri, heitt og kalt. Gufuofn og vatnsketill eru í kjallara, og eitt af herbergjunum er baðhús. Kjallarinn er allur af sementssteypu. Steyptur garður með borðum og trjám ofan á steypunni er á 3 vegu út frá húsinu.2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266.

Af þessari lýsingu má sjá að húsið hefur verið afar vandað og hugsað fyrir öllu. Það hefur því ekki verið neitt smá fyrirtæki að flytja húsið, líklega með því að taka það niður, en það var gert árið 1906 þegar eigandi þess lét flytja það til Seyðisfjarðar, á lóð sem er nr. 48 við Hafnargötu. Ottó, bróðir Friðriks, hafði látist í október 1898 og varð þá Friðrik að taka við stjórn fyrirtækja þeirra bræðra á Seyðisfirði og hafði hann flutt með fjölskyldu sína til Seyðisfjarðar strax árið eftir (1899). Húsið var ýmist kallað Wathneshús eða Stóra-Wathneshús, því á næstu lóð fyrir sunnan var minna hús sem Ottó Wathne hafði látið reisa.3Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266; Guðmundur Magnússon (2003), bls. 78.

Af húsavirðingu sem gerð var eftir að húsið var flutt, má sjá að húsinu hefur ekki verið mikið breytt við flutninginn. Kjallarinn er þó svolítið hærri á nýja staðnum en nú aðeins undir helmingi hússins.4Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266. „Í kringum húsið var skipulagður glæsilegur trjágarður og opinni verönd í klassískum stíl var komið fyrir við suðurgafl þess.“5Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266.

Þó húsið væri glæsilegt beið þess hálf dapurleg endalok.

Haustið 1991 þurftu íbúar þess að flytjast á brott vegna reykskemmda frá olíukyndingu. Stóð húsið því tómt þann 28. janúar 1992 er drukkinn maður lagði eld að því.
Húsið stórskemmdist í eldinum. Það var þá mat húsafriðunarnefndar að það bæri að byggja það upp að nýju.
Af því varð þó ekki þar sem eigendur þess létu rífa það til grunna í trássi við bygginga- og minjalög, 1. ágúst 1992. Mikill sjónarsviptir er að Wathneshúsi.6Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 265.

 

Leitarorð: Seyðisfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023

Heimildaskrá

  • 1
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 265. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður; Guðmundur Magnússon (2003). Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, bls. 74-77. Fjarðabyggð: Fjarðabyggð.
  • 2
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266.
  • 3
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266; Guðmundur Magnússon (2003), bls. 78.
  • 4
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266.
  • 5
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 266.
  • 6
    Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 265.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023