Hafnagata 31b, Höfnum, Reykjanesbæ
Suðurgata 19, Keflavík, sett á nýjan grunn við Hafnagötu 31b í Höfnum. Heimild: Sjö ára ferðalag milli bæjarhluta (2020, 30. apríl). Víkurfréttir, 41. árg., 18. tbl., bls. 10-13.
Hafnagata 31b, Höfnum, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Í Víkurfréttum í lok apríl 2020 var birt myndasyrpa sem sýndi þegar gömlu timburhúsi var komið fyrir á nýjum steinsteyptum grunni sem stóð við Hafnagötu 31b, Höfnum, Reykjanesbæ. Eftirfarandi texti fylgdi myndunum:
Suðurgata 19 í Keflavík lagði upp í ferðalag í byrjun sumars árið 2013 þegar húsinu var lyft af grunni sínum og það sett á flutningabíl. Síðan þá hefur húsið verið á geymslusvæði á Ásbrú. Núna, rétt tæpum sjö árum síðar, er húsið komið með nýtt heimilisfang að Hafnagötu 31b í Höfnum. Ferðalagið í Hafnir hófst þann 24. maí 2013 þegar húsinu var lyft af grunni sínum á Suðurgötunni í Keflavík. Á þeirri stundu var ekki ljóst hver framtíð hússins yrði. Innviðir þess voru góðir og vilji til þess að húsið myndi öðlast framhaldslíf. Húsið er, samkvæmt eiganda, þess byggt frostaveturinn mikla árið 1918. Þá geisaði líka heimsfaraldur, spænska veikin. Það er því kannski við hæfi að nýta tímann í heimsfaraldri til að koma húsinu fyrir á sínum framtíðarstað. Sveinn Enok Jóhannsson og Maja Potkrajac ætla að vera flutt inn í húsið eftir mánuð. Nýir gluggar verða settir í húsið í næstu viku og svo verður innréttað af kappi næstu vikur en frágangur hússins mun taka einhverja mánuði.1Sjö ára ferðalag milli bæjarhluta (2020, 30. apríl). Víkurfréttir, 41. árg., 18. tbl., bls. 10-13.
Þess má geta að í júlí 2001 kom upp eldur í húsinu við Suðurgötu 19, sem talinn var hafa átt upptök sín í uppþvottavél. Töluverðar skemmdir urðu á eldhúsinnréttingu en engan sakaði.2Móðir flúði út með tvö börn (2001, 24. júlí). Morgunblaðið, 89. árg., 166. tbl., bls. 15.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Sjö ára ferðalag milli bæjarhluta (2020, 30. apríl). Víkurfréttir, 41. árg., 18. tbl., bls. 10-13.
- 2Móðir flúði út með tvö börn (2001, 24. júlí). Morgunblaðið, 89. árg., 166. tbl., bls. 15.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

