Gunnarsbraut 6, Búðardal
Skólahúsið í Hjarðarholti er til hægri á þessari mynd. Ljósm.: Byggðasafn Dalamanna - Héraðsskjalasafn Dalasýslu. Sótt 16. febrúar 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=403313343039700&set=a.139076662796704.
Skólahúsið í Hjarðarholti á leið til Búðardals. Ljósm. Bjarni F. Finnbogason. Ljósmynd í eigu Bjarna Bjarnasonar.
Saga:
Séra Ólafur Ólafsson (1860-1935) var prestur í Hjarðarholti í Dölum frá 1901 til 1920 og prófastur Dalaprófastsdæmis frá 1905. Hann var síðasti presturinn sem þar bjó. Hann keypti Hjarðarholt af ríkinu vorið 1910. Sama ár lét hann reisa skólahús á staðnum og rak þar unglingaskóla til vorsins 1917.1Árni Björnsson (2011). Í Dali vestur, bls. 26. Árbók Ferðafélags Íslands 2011. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
Hann „… samdi við Thor Jensen kaupmann að hann lánaði efni til byggingar skólahúss gegn greiðslu eftir hentugleikum.
Byggingarefnið kom skömmu síðar til Búðardals og var fljótlega byrjað á byggingunni. Hinn 11. september 1910 var skólahúsið vígt á silfurbrúðkaupsdegi þeirra Ólafs og Ingibjargar [Pálsdóttur (1855-1929)] og giftingardegi Guðrúnar dóttur þeirra …“2Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl). Ólafur prófastur Ólafsson Hjarðarholti Dölum, bls. 59. Breiðfirðingur, 43. árg., bls. 58-74.
Skólahúsið var „… 20 álna langt og 6 álna breitt [tæpir 48 fermetrar] tvílyft með góðu risi. Steinsteyptur kjallari var undir öllu skólahúsinu. Fullgert kostaði húsið tæpar 6.000 krónur. Þar sem húsið stóð hærra en vatnsbólið, var í kjallaranum vatnsdæla, því að ógerningur hefði verið að bera allt vatnið að húsinu. Á neðri hæðinni var kennslustofan. Var hún rúmgóð, björt og hátt undir loft og nægur hiti. Gluggar voru á báðum hliðum. Gluggarnir í svefnherbergjunum voru upp undir þaki og voru hafðir opnir allan sólarhringinn. Það var aldrei úrfelli inn um þá. Úr kennslustofunni lá stigi upp á efri hæðina. Þaðan var eirmig inngangur úr íbúðarhúsinu. Á efri hæðinni voru 3 herbergi, stórt piltaherbergi, minna stúlknaherbergi og kennaraherbergi.“3Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 59-60.
Skólinn tók til starfa haustið 1910 og stóð til vorsins 1917, fimm mánuði hvern vetur. Skólinn tók til starfa upp úr veturnóttum og jólaleyfið stóð ekki nema 10 daga, en skólanum lauk svo seint í mars. Langflestir nemendur voru aðeins einn vetur í skólanum, þó munu nokkrir hafa verið tvo. Kennslustundirnar byrjuðu að morgninum og var kennt fram eftir degi með matarhléum og hafa þær sennilega verið fleiri en 6.4Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 59.
Í skólanum gátu verið 18 til 20 nemendur hverju sinni, bæði drengir og stúlkur.
Námsgreinarnar í skólanum voru móðurmál, Íslandssaga, landafræði, náttúrufræði, mannkynssaga, reikningur, enska og danska og kenndi séra Ólafur reikning, ensku, dönsku og Íslandssögu. Á vorin var prófað munnlega í öllum námsgreinum nema reikningi og voru þá fengnir prófdómarar sem kosnir voru af sýslunefnd.5Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 61-62.
Frú Ingibjörg kona Ólafs prófasts sá um allt af hreinustu snilld, sem í hennar valdi stóð skólanum viðkomandi. Það var alltaf úrvalsfæði, sérstök regla á öllu og prýðilegur frágangur á öllu þjónustunni viðkomandi. Það var aldrei vöntun á neinu til skólans. Skólahaldið var með mikilli reisn að öllu leyti. … Fórnfýsi hennar, tryggð, trúmennska og ábyrgðartilfinning mátti lesa úr hverju hennar spori.6Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 60.
Næsti bóndi í Hjarðarholti, Björn H. Jónsson (1888-1862) rak skólann til ársins 1924. Hann var bæði skólastjóri og kennari við skólann. Þegar Theodór Johnson bryti tók við Hjarðarholti af Birni breytti hann skólahúsinu í íbúðarhús.
Árið 1957 eða 1958 keyptu hjónin Bjarni Fanndal Finnbogason (1918-1975) og Sigurlaug Indriðadóttr (1928-2014) gamla skólahúsið í Hjarðarholti og fluttu það að Gunnarsbraut 6 í Búðardal. Bjarni var þá nýráðinn búnaðarráðunautur Dalasýslu, sá fyrsti í sýslunni. Þegar flutningabíll sem flutti húsið nálgaðist ákvörðunarstað sinn í Búðardal vildi ekki betur til en svo að húsið valt af vagninum. Nota þurfti jarðýtu til að koma húsinu aftur á vagninn auk fleiri tækja og skemmdist húsið ekki mikið við þessa byltu. Bjarni og Sigurlaug bjuggu í Gamla skóla, eins og húsið er stundum nefnt í Búðardal, með börnum sínum til ársins 1972.7Bjarni Bjarnason (2025, 17. febrúar). Tölvupóstur; Ásgeir Bjarnason (1975, 8. mars). Minning: Bjarni Fanndal Finnbogason héraðsráðunautur Búðardal. Íslendingaþættir Tímans, 8. árg., 8. tbl., bls. 10-12.; Leifur Steinn Elísson (2025, 16. febrúar). Sótt 17. febrúar 2025 af https://www.facebook.com/groups/746351968813033/posts/9508566475924828/?comment_id=9509028459211963&reply_comment_id=9512884255493050¬if_id=1739750023384780¬if_t=group_comment.
Húsið stendur enn við Gunnarsbraut 6 og ber svipmót upprunalega skólahússins.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Árni Björnsson (2011). Í Dali vestur, bls. 26. Árbók Ferðafélags Íslands 2011. Reykjavík: Ferðafélag Íslands.
- 2Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl). Ólafur prófastur Ólafsson Hjarðarholti Dölum, bls. 59. Breiðfirðingur, 43. árg., bls. 58-74.
- 3Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 59-60.
- 4Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 59.
- 5Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 61-62.
- 6Pétur Ólafsson (1985, 1. apríl), bls. 60.
- 7Bjarni Bjarnason (2025, 17. febrúar). Tölvupóstur; Ásgeir Bjarnason (1975, 8. mars). Minning: Bjarni Fanndal Finnbogason héraðsráðunautur Búðardal. Íslendingaþættir Tímans, 8. árg., 8. tbl., bls. 10-12.; Leifur Steinn Elísson (2025, 16. febrúar). Sótt 17. febrúar 2025 af https://www.facebook.com/groups/746351968813033/posts/9508566475924828/?comment_id=9509028459211963&reply_comment_id=9512884255493050¬if_id=1739750023384780¬if_t=group_comment.
Deila færslu
Síðast uppfært 3. september, 2025




