Hamar, Grundargata 6, Drangsnesi. Fyrir framan húsið stendur Áskell Torfi Bjarnason, sonur Bjarna og Önnu. Ljósm. í eigu Árna Áskelssonar. Sótt 28. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/1737347376485982/permalink/2941760919377949/.
Hamar, Grundargata 6, Drangsnesi. Fyrir framan húsið stendur Áskell Torfi Bjarnason, sonur Bjarna og Önnu. Ljósm. í eigu Árna Áskelssonar. Sótt 28. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/1737347376485982/permalink/2941760919377949/.

Grundargata 6, Drangsnesi

Heiti: Gautshamar - Hamar
Byggingarár: ≈ 1933
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bjarni Bjarnason og Anna Guðrún Áskelsdóttir
Upphafleg staðsetning: Gautshamar á Selströnd við Steingrímsfjörð
Flutt: 1944 að Grundargötu 6, Drangsnesi við Streingrímsfjörð
Hvernig flutt: Dregið af hestum niður að sjó og síðan fleytt með tunnum og dregið af bát

Saga:

Í grein Björns H. Björnssonar um húsagang við Húnaflóa segir hann m.a.:

Árið 1944 mun Bjarni Bjarnason á Gautshamri hafa flutt hús sitt frá Hamri út að Drangsnesi, en ekki var mér kunnugt um hvort því var fleytt á tunnum eða rifið. En húsið var flutt á sliskjum niður að sjó á Gautshamri og síðan fleytt á tunnum út að Drangsnesi, sagði Þorvaldur Loftsson mér þann 15. júlí 2009.1Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 36. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36.

Í hópnum „Gamlar Strandamyndir“ á Facebook kemur fram að húsið hafi verið dregið af hestum með talíum niður að sjó á Gautshamri og síðan fleytt með tunnum og dregið af út á Drangsnes og þar standi húsið enn. Húsið var nefnt Gautshamar meðan það stóð þar, en hefur heitið Hamar síðan það kom á Drangsnes.2Árni Áskelsson (2022, 4. maí). Gamlar Strandamyndir. Sótt 27. nóvember 2025 af Facebook. Húsið er nú (2025) númer 6 við Grundargötu á Drangsnesi.

Bjarni Bjarnason (1889-1952) og kona hans Anna Guðrún Áskelsdóttir (1896-1977) keyptu hálfa Gautshamarsjörðina árið 1932, en þau hófu búskap um 1915 og voru börn þeirra orðin tólf talsins þegar þau komu til Gautshamars og það þrettánda á leiðinni. Þau fluttu með barnaskarann í gamlan torfbæ, en fljótlega byggði Bjarni nýtt hús sem þau fluttu með sér að Drangsnesi þegar þau fluttu þangað árið 1944 eða 1945.3Þuríður Guðmundsdóttir (1977, 10. mars). Minning: Anna Guðrún Áskelsdóttir. Morgunblaðið, 64. árg., 55. tbl., bls. 31.

Hamar, Grundargötu 6, Drangsnesi, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025