Gránufélagsgata 35, Akureyri
Saga:
Á Oddeyrartanga á Akureyri stóð á árum áður sögufrægt hús sem nefnt var Norðurpóll. Húsið var byggt um 1907 á lóð sem síðar fékk númerið 57 við Gránufélagsgötu. Það var rifið árið 1980.
Árið 1916 byggði annar eigenda Norðurpóls, Sigríður Ingimundardóttir (1884-1959), þurrkhjall á lóðinni norðan við húsið. Honum var breytt í íbúðarhús fimm árum síðar. Þegar hjallurinn var virtur sama ár og hann var byggður var hann sagður ein lofthæð með háu risi á lágum steingrunni. Þegar honum hafði verið breytt í íbúðarhús var húsið sagt vera einlyft timburhús úr timbri, með porti og háu risi. Húsið gekk alltaf undir nafninu Litli Póll.

Gránufélagsgata 35, Akureyri, árið 2012. Ljósm.: Arnór Bliki Hallmundsson. Sótt 11. febrúar 2026 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1219417/.
Um 1970 var Litli Póll fluttur Gránufélagsgötu 35, Akureyri, líklega vegna framkvæmda KEA neðar á Oddeyrinni. Þar stendur húsið enn.1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 90-92. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
Húsið er einlyft timburhús á lágum grunni, fram úr suðurhlið gengur kvistur sem stendur á stólpum og gefur þessi útbyggingu húsinu sérstakan svip. Við norðurhlið er skúrbygging. Húsið er klætt steinblikki.2Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 90.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. febrúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 90-92. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
- 2Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 90.
Deila færslu
Síðast uppfært 11. febrúar, 2026