Gránufélagsgata 31 á Akureyri árið 1989. Ljósm.: Hörður Geirsson. Heimild: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 89. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.
Gránufélagsgata 31 á Akureyri árið 1989. Ljósm.: Hörður Geirsson. Heimild: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 89. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.

Gránufélagsgata 31, Akureyri

Heiti: Kristjánshús
Byggingarár: 1903-1909
Horfið: 1916 / 2002 ?
Upphafleg notkun: Veiðarfærageymsla
Fyrsti eigandi: Eiríkur Halldórsson
Aðrir eigendur:
1914: Kristján Kristjánsson og Arndís Níelsdóttir
Upphafleg staðsetning: Veigastaðabás, Svalbarðsströnd, Eyjafirði
Flutt: 1914 að Gránufélagsgötu 31, Akureyri

Saga:

Veigastaðabás er við austanverðan Eyjafjörð, gegnt Akureyri. Þar var bátauppsátur jarðarinnar Veigastaða. „Eiríkur Halldórsson [1871-1909] byggði þar frammi á klöppum timburhús að geyma í veiðarfæri sín. Er hann var fallinn frá, var húsið flutt til Oddeyrar og innréttað til íbúðar. Stendur það enn [þ.e. um 1964] með nokkurri viðbyggingu. Er það Gránufélagsgata 31.“1Júlíus Jóhannesson (1964). Svalbarðsstrandarbók, bls. 10. Útg.staðar ekki getið: Svalbarðsstrandarhreppur.

Eiríkur bjó á hluta Veigastaða á árunum 1903 til 1909. Hann drukknaði fram af Veigastaðabás ásamt öðrum manni í september 1909.2Júlíus Jóhannesson (1964), bls. 161.

Aðeins aðra sögu um húsið úr Veigastaðabás má lesa í gögnum Akureyrarbæjar á árunum 1914 til 1916. Í fundargerð bygginganefndar Akureyrar 9. október 1914 fékk Kristján Kristjánsson leyfi til „… að láta standa til næsta sumars hús er hann hafi flutt úr Veigastaðabás á lóð á Oddeyri norðan Gránufjelagsgötu og vestan Hríseyjargötu en þá lóð hafi hann leigt af hinum Sameinuðu íslensku verslunum. En hús þetta má hann því aðeins nota til íbúðar að hann, áður en það er tekið til notkunar, fái vottorð læknis eða heilbrygðisnefndar um að það sje hæft til íbúðar, einnig að búið sje um eldstæði samkvæmt lögum um brunamál.“ Á sama fundi var sama manni leyft að byggja íbúðarhús á sama grunni að stærð 7,5 x 5 metrar.3Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðarbók 1902-1921. A-26/2.

Í lok árs 1916 var svo virt hús sem Kristján Kristjánsson byggði sjálfur við Gránufélagsgötu. Það var einlyft íbúðarhús með porti og háu risi á lágum steingrunni og skúr við suðurenda. Á jarðhæð voru 2 stofur, eldhús og forstofa, en í risi voru 2 íbúðarherbergi. Húsið var 6,9 x 5,2 m. Skúrinn var óinnréttaður, en notaður sem geymsla. Einn skorsteinn var á húsinu.4Brunabótafélag Íslands, Akureyrarumboð. Virðingabók 1916-1916. F-117/1. Bls. 185. Ekki er nefnt að rekja megi uppruna hússins til Veigastaða.

Kristján Kristjánsson (1875-1959) símaviðgerðarmaður og kona hans Arndís Níelsdóttir (1877-1943) fluttu til Akureyrar árið 1903. Fyrstu árin bjuggu þau á nokkrum stöðum, en fluttu í Gránufélagsgötu árið 1914 og voru þar til heimilis næstu ár á eftir. Hús þeirra var nefnt Kristjánshús áður en það fékk númerið 31 við Gránufélagsgötu. Kristján og Arndís eignuðust fjóra syni, en þrír þeirra létust ungir úr berklum. Kristján (1899-1968) elsti sonur þeirra stofnaði Bifreiðastöð Akureyrar árið 1923.5Lára Ágústa Ólafsdóttir, héraðsskjalavörður (2024, 4. nóvember). Tölvupóstur; Merkir Íslendingar. Kristján Kristjánsson (2013, 19. júní). Morgunblaðið, 101. árg., 141. tbl., bls. 35

Þegar gerð var húsakönnun á Oddeyri á árunum 1990-1994 hafði húsinu verið lítið breytt. Það hafði þó verið klætt að utan með steinblikki og skúr við vesturenda hafði verið lengdur. Vestasti hluti hans var þá klæddur með sléttu járni.6Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 89. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar.

Í Fasteignaskrá Íslands kemur fram að nú stendur á þessari lóð hús sem byggt var árið 2003 og þegar fundargerðir Akureyrarbæjar eru skoðaðar kemur í ljós að árið 2001 átti Akureyrarbær gamla húsið, en árið eftir virðist vera búið að rífa það og úthluta lóðinni til nýbyggingar.7Vefur Akureyrarbæjar 2001 og 2002; Fasteignaskrá Íslands (ódags.). Gránufélagsgata 31, Akureyri.

Hér stangast heimildir á og verður ekki tekin afstaða til þess hvort húsið úr Veigastaðabás hafi einungis staðið við Gránufélagsgötu til ársins 1916 eða hvort það hafi verið það til ársins 2002, en minnt á að mörg dæmi eru um að ekki sé nefnt í fyrstu virðingu að hús sé aðflutt eða það byggt úr viðum eldra húss.

Getur verið að húsið á myndinni sé húsið sem flutt var frá Veigastaðabás? Ljósm.: Arthur Charles Cook. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Gook-435. Sótt 6. nóvember 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=2334205.

Það er svolítið freistandi að velta fyrir sér hvort húsið sem hér sést á floti á Pollinum sé húsið úr Veigastaðabás sem Kristján og Arndís fengu að setja við Gránufélagsgötu 1914 og búið í þar til þau reistu nýtt húsið árið 1916.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. nóvember, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. nóvember, 2024