Garðavegur 11 árið 1997. Heimild: Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Garðavegur 11 árið 1997. Heimild: Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Garðavegur 11, Hafnarfirði

Byggingarár: 1906
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sveinn Sigurðsson
Aðrir eigendur:
?: Elías Halldórsson
1917: Sigurjón Jónsson og Guðlaug Gunnarsdóttir
1943: Ragnhildur Bjarnadóttir og Guðbjartur Bergþór Jóhannsson
1998: Jóhann Guðbjartsson
Upphafleg staðsetning: Kirkjuvegur 12 (áður Kirkjuvegur 16b), Hafnarfirði
Flutt: 1943 að Garðavegi 11, Hafnarfirði
Garðavegur 11 3

Ragnhildur Bjarnadóttir fyrir framan hús sitt um 1990. Heimild: Árni Gunnlaugsson (1992). Fólkið í Firðinum, III. bindi, bls. 185. Útg.: Höfundur.

Garðavegur 11 4

Húsið stækkað árið 1998. Vel sést gamla húsið innan í því nýja. Ljósm.: Jóhann Guðbjartsson. Ljósmynd í eigu Ragnhildar Jóhannsdóttur.

Garðavegur 11 5

Húsið stækkað árið 1998. Vel sést gamla húsið innan í því nýja. Ljósm.: Jóhann Guðbjartsson. Ljósmynd í eigu Ragnhildar Jóhannsdóttur.

Garðavegur 11 2

Garðavegur 11 árið 2018. Húsið var stækkað töluvert árið 1998. Heimild: Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Saga:

Hús þetta byggði Sveinn Sigurðsson á lóð númer 16b við Kirkjuveg árið 1907. Árið 1943 var húsið flutt á hlaðinn kjallara, sem gerður hafði verið við Garðaveg 11.1Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Árið 1917 var húsið brunavirt en þá hafði lóðin sem húsið stóð á við Kirkjuveg fengið númerið 12. Í brunavirðingunni segir m.a.:

Kirkjuvegur 12. Núv. eigandi: Sigurjón Jónsson (d. 1918) síðasti eig: Elías Halldórsson. a) Húsið er einlyft með risi 0,75m. Því er skipt í 2 herbergi og eldhús, allt klætt innan með panel og málað, notað til íbúðar. Stærð L. 5,80m. B. 4,50m. H. 2,60m. 5 gluggar, 1 eldavél og 1 ofn. Undir öllu húsinu er 1,20m hár kjallari úr grjóti önnur hlið úr timbri járnvörðu, notaður til geymslu.  2 gluggar.2Gláma-Kím (2021, 15. janúar), bls. 174.

Þess má geta að Kirkjuvegur fékk nafn sitt af því að hann lá vestur að Görðum á Álftanesi þangað sem Hafnfirðingar sóttu kirkju áður en kirkjur risu í Hafnarfirði.3Gláma-Kím (2021, 15. janúar), bls. 3.

Þegar húsið var flutt árið 1943 voru hjónin Ragnhildur Bjarnadóttir (1906-2000) og Guðbjartur  Bergþór Jóhannsson (1907-1992) líklega eigendur þess, a.m.k. fluttu þau í húsið það ár, með syni sínum Jóhanni (1941-2019), sem fæðst hafði tveimur árum áður. Hann eignaðist síðar húsið.

Árið 1998 stækkaði Jóhann húsið verulega, bæði til norðurs og vesturs. Páll V. Bjarnason arkitekt teiknaði viðbygginguna við húsið. Á ljósmyndum sem teknar voru meðan á framkvæmdum stóð sést að gamla húsið var í raun inni í hinu nýja húsi og að bætt var við gluggum á austur- og suðurhlið gamla hússins. Ekki er vitað hversu mikið var nýtt úr gamla húsinu, en ljóst er að grunnur þess stendur a.m.k. enn.4Árni Gunnlaugsson (1992). Fólkið í Firðinum, III. bindi, bls. 185. Útg.: Höfundur; Páll V. Bjarnason, arkitekt (2024, 6. febrúar). Tölvupóstur; Ragnhildur Jóhannsdóttir (2024, 6. febrúar). Skilaboð á Facebook.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. mars, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
  • 2
    Gláma-Kím (2021, 15. janúar), bls. 174.
  • 3
    Gláma-Kím (2021, 15. janúar), bls. 3.
  • 4
    Árni Gunnlaugsson (1992). Fólkið í Firðinum, III. bindi, bls. 185. Útg.: Höfundur; Páll V. Bjarnason, arkitekt (2024, 6. febrúar). Tölvupóstur; Ragnhildur Jóhannsdóttir (2024, 6. febrúar). Skilaboð á Facebook.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 17. mars, 2024