Garðarsbraut 18, Húsavík – Kaldbakshöfði, Norðurþing
Verslunarhús Ørum & Wulffs árið 1915. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 14.
Verslunarhús Ørum & Wulffs líklega á fyrri hluta 20. aldar. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 18.
Garðarsbraut 18, Húsavík, árið 2014. Ljósm.: Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.
Gamla pakkhúsið á Kaldbakshöfða nýtur sín vel í morgunsólinni. Ljósm.: Hafþór Hreiðarsson. Sótt 27. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10230061353416069&set=a.10229800666339055.
Saga:
Á gömlu ljósmyndinni frá Húsavík efst á síðunni er langt hús vinstra megin á myndinni. Hús þetta var byggt sem sölubúð verslunar Ørum og Wulff árið 1903. Síðan var húsið selt verslun S.T. Guðjohnsens, sem átti það til 1962 þegar verslunarfyrirtækið Askja tók til starfa.
Húsið stóð upprunalega spölkorn vestar og norðar en Garðarsbraut 18 stendur í dag (2025).

Pakkhúsið híft á flutningsbíl árið 1989. Til vinstri sér í suðurhlið Garðarsbrautar 18. Ljósm.: Ljósmyndasafn Þingeyinga. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 9.
Þetta hús varð síðar að tveimur húsum, sem bæði standa enn. Árið 1944 var austurhluti hússins fluttur að Garðarsbraut 18 á Húsavík. Þar hefur húsið tekið miklum breytingum í tímans rás, en á neðri hæðinni hafa alltaf verið verslanir af ýmsu tagi. Efri hæðin er nú íbúðarhúsnæði. Það voru hjónin Þorgrímur Friðrik Jónsson og Rósa Borg Halldórsdóttir, sem keyptu húsið árið 2006, sem breyttu efri hæðinni í íbúð, en þá hafði ekki verið búið í húsinu í talsverðan tíma. Þá var verslunin Garðarshólmi og Snyrtistofan Hilma á neðri hæðinni.
Vesturhluti hússins, sem pakkhúsið var í, stóð eftir á upprunalegum stað, en þegar akstursbrúin var gerð yfir Búðarárgil um 1980 var það flutt inn inn á Öskjureitinn nær gamla verslunarhúsinu, sem það hafði áður verið hluti af. Árið 1989 var húsið svo flutt á Kaldbakshöfða, skammt sunnan Húsavíkur.1Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 8, 9 og 17; Aftur verður búið í Öskju (2006, 27. mars). Morgunblaðið, 94. árg., 85. tbl., bls. F7.

Gamla pakkhúsið á leið suður á Kaldbakshöfða. Ljósm.: Þorgrímur Aðalgeirsson. Sótt 27. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=2939004846242299&set=pcb.4465908243635284.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. apríl, 2025
Heimildaskrá
- 1Arnhildur Pálmadóttir (2015). Húsakönnun. Búðarvöllur (áður Öskjureitur) í miðbæ Húsavíkur, bls. 8, 9 og 17; Aftur verður búið í Öskju (2006, 27. mars). Morgunblaðið, 94. árg., 85. tbl., bls. F7.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. apríl, 2025



