Hlíðarendi, Fossatúni, Borgarfirði
Saga:
Í Árbók Akurnesinga 2009 lýsir Gísli S. Sigurðsson húsi sem stóð við Suðurgötu 76 á Akranesi á þennan veg: „Hús þetta var lítið timburhús, ein hæð með lágu risi. Það stóð á grunni hlöðnum úr grjóti og sneri gafli að götu. Gengið var inn í húsið um trétröppur, sem lágu upp að inngangsskúr sem gekk út úr syðri hlið hússins. Það var lengst af klætt utan með tjörupappa.“1Gísli S. Sigurðsson (2009). Svipast um á Suðurgötu. Þriðji hluti. Árbók Akurnesinga 2009, 9. árg., bls. 119. Síðan segir hann að hann viti hvorki hvenær húsið var byggt né hver gerði það. Til er ljósmynd sem tekin var á Akranesi um 1910 þar sem húsið sést og nefnt Hlíðarendi. Í texta með myndinni er sagt að húsið hafi verið byggt árið 1903.
Árið 1958 var húsið komið í eigu Guðbjarna Sigmundssonar í Ívarshúsum (1897-1990). Hann flutti húsið að Fossatúni í Borgarfirði, þar sem Sturla sonur hans bjó. Þar stóð húsið um 130 m norðaustur af íbúðarhúsinu í Fossatún og var notað sem sumarbústaður og hélt nafni sínu, Hlíðarendi, en oft kallaður einfaldlega „Endinn“. Kona Guðbjarna, Guðný Magnúsdóttir (1902-1984) var alin upp í Fossatúni. Guðbjarni og Guðný voru ætíð kennd við Ívarshús á Akranesi. Lóðina þar sem Hlíðarendi hafði staðið á Akranesi nýttu þau hjón til kartöflurækar.
Eftir að bústaðurinn hafði ekki verið notaður í mörg ár var hann rifinn upp úr 1990.2Gísli S. Sigurðsson (2009), bls. 119; Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 48488. Sótt 19. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir; Daníel Ágústínusson (1982, 26. júní). Árnað heilla: Guðný Magnúsdóttir og Guðbjarni Sigmundsson frá Ívarshús á Akranesi. Tíminn, 142. tbl., bls. 7; Vignir Jóhannsson (2024, 20. janúar). Skilaboð á Facebook.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. janúar, 2024
Heimildaskrá
- 1Gísli S. Sigurðsson (2009). Svipast um á Suðurgötu. Þriðji hluti. Árbók Akurnesinga 2009, 9. árg., bls. 119.
- 2Gísli S. Sigurðsson (2009), bls. 119; Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 48488. Sótt 19. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/myndir; Daníel Ágústínusson (1982, 26. júní). Árnað heilla: Guðný Magnúsdóttir og Guðbjarni Sigmundsson frá Ívarshús á Akranesi. Tíminn, 142. tbl., bls. 7; Vignir Jóhannsson (2024, 20. janúar). Skilaboð á Facebook.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. janúar, 2024