Skólavörðustígur 20a, Reykjavík, árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 1056. Sótt 24. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn.
Skólavörðustígur 20a, Reykjavík, árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 1056. Sótt 24. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn.

Fossagata 9, Reykjavík

Byggingarár: 1914
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og málaraverkstæði
Fyrsti eigandi: Guðjón Jónsson
Upphafleg staðsetning: Skólavörðustígur 20a, Reykjavík
Flutt: 1987 að Fossagötu 9, Litla Skerjafirði, Reykjavík

Saga:

Í september 1914 var virt til brunatrygginga hús sem Guðjón Jónsson (f. 2. júlí 1872)  málari hafði byggt á lóð sinni við Skólavörðustíg 20a í Reykjavík. Það var byggt af binding, einlyft með risi. Útveggir og þak var klætt járni. Niðri í húsinu voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús, gangur og 2 fastir skápar, allt þiljað og með striga og pappa á veggjum og lofti, allt málað. Uppi voru tvö þiljuð herbergi og framloft. Kjallari með steinsteyptu gólfi var undir öllu húsinu. Í honum var málaraverkstæði, þvottahús, einn geymsluklefi, vatnssalerni og gangur. Vatns-, gas- og skolpleiðslur voru í húsinu. Húsið var um 40 fermetrar að grunnfleti.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 04-04-1911 til 20-05-1915. Aðfnr. 737. Brunav.nr.: 1336. Sótt 24. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/737-bok-04-04-1911-til-20-05-1915-adfnr-737.pdf.

Húsið stóð á horni Skólavörðustígs og Týsgötu, alveg við göturnar. Því var hornsneiðing á norðausturhorni hússins.

Í manntali frá 1914 kemur fram að Guðjón málari búi að Skólavörðustíg 20a, ásamt sex öðrum, sem ekki virðast bundin honum fjölskylduböndum. Í manntali árið eftir er allt þetta fólk flutt úr húsinu en þar skráðar aðrar 13 manneskjur í fjórum fjölskyldum.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1914. 4. hluti: Lindargata – Skólavörðustígur. Sótt 24. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1911-1920/1914/manntal-i-reykjavik-1914-4.-hluti.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1915. 4. hluti: Lindargata – Skólavörðustígur. Sótt 24. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1911-1920/1915/manntal-i-reykjavik-1915-4.-hluti.pdf.

Teikning Unnars Jónssonar af Fossagötu 9, dags. 7. apríl 1987. Sótt 24. janúar 2024 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives.

Árið 1987 þurfti húsið að víkja fyrir nýbyggingu sem reist var við Skólavörðustíg og er nú númer 20 við götuna (2025). Húsið var þá flutt á nýjan kjallara á lóð númer 9 við Fossagötu í Litla Skerjafirði. Kjallarinn var töluvert stærri en húsið, sem veitti tækifæri til að hafa svalir á húsinu og síðar stækka það. Í upphafi var hornsneiðingin ekki tekin af húsinu, en það var gert síðar.3Teikning Unnars Jónssonar, dags. 7. apríl 1987. Sótt 24. janúar 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. janúar, 2025