Lindargata 15, Reykjavík, árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 817. Sótt 10. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Lindargata+15&p=3&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgxNy5qcGciLCJwYWdlIjozfQ%3D%3D.
Lindargata 15, Reykjavík, árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 817. Sótt 10. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Lindargata+15&p=3&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgxNy5qcGciLCJwYWdlIjozfQ%3D%3D.

Fossagata 11, Reykjavík

Heiti: Tóftir (Tóttir)
Byggingarár: 1904
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Árni Jónsson og Þorbjörg Filippusdóttir / Páll Árnason og Kristín Árnadóttir
Upphafleg staðsetning: Lindargata 15 (áður Lindargata 3), Reykjavík
Flutt: 1988 að Fossagötu 11, Reykjavík

Saga:

Árið 1904 var virt hús við Lindargötu í Reykjavík sem Árni Jónsson (1844-1907) og tengdasonur hans Páll Árnason (1871-1930) lögregluþjónn höfðu byggt. Húsið var síðar skráð sem Lindargata 3 og eftir að húsnúmerum við Lindargötu var breytt um 1941 varð húsið númer 15 við Lindargötu. Það stóð þar sem nú er bílastæði og autt svæði austan Lindargötu 11 að Klapparstíg 12.

Þegar húsið var virt til brunabóta í júlí 1904 kemur m.a. fram að húsið hafið verið byggt af bindingi, klætt að utan með járni. Niðri voru 4 þiljuð íbúðarherbergi, 2 eldhús og 4 fastir skápar. Þar voru 2 ofnar og 2 eldavélar. Uppi voru 6 þiljuð herbergi og gangur. Þar voru 3 fastir skápar og 2 ofnar. Kjallari var undir öllu húsinu, hólfaður í tvö geymslurými. Við norðurhlið hússins var inn- og uppgönguskúr, sem byggður var eins og húsið, þiljaður og málaður. Í honum var einn fastur skápur.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr. 363. Sótt 10. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.

Árni var kvæntur Þorbjörgu Filippusdóttur (1844-1923). Eiginkona Páls var dóttir þeirra hjóna, Kristín Árnadóttir (1877-1958). Yngri hjónin bjuggu þó ekki lengi í húsinu því árið eftir byggingu hússins fluttu þau sig um set að Skólavörðustíg 8. Páll pólití, eins og hann var kallaður, var í hópi fyrstu lögregluþjónanna í Reykjavík, hóf störf 1902 og sinnti lögreglustarfinu til ársins 1930 þegar hann lést. Líklega hafa fleiri synir Árna og Þorbjargar komið að smíði hússins, m.a. Vigfús (1886-1964) sem var lærður smiður.

Árni lifði ekki lengi eftir að húsið var byggt, því hann lést árið 1907. Eftir hans dag bjó Þorbjörg í húsinu með sonum sínum, Jóni (1875-1961) og Sigurði (1889-1979) og fósturbarni sem fjölskyldan tók að sér árið 1901. Jón var í risinu með tvö herbergi fyrir sig og Sigurður og fjölskylda hans bjó á hæðinni með svefnherbergi og bað í risinu. Í manntali 1910 kemur fram að þá búa í húsinu alls 13 einstaklingar í fjórum fjölskyldum.2Jón H. Guðmundsson (1947, 12. júlí). Sjötug – Kristín Árnadóttir. Vísir, 37. árg., 154. tbl., bls. 4; Páll pólití ( 2024, 16. ágúst). Lögreglan. Sótt 10. janúar 2025 af https://www.logreglan.is/pall-politi/ ; Manntal 1910. Sótt 10. janúar 2025 af https://manntal.is/; Guðrún Kristinsdóttir (2018, 24. nóvember). Bernsku minningar um Jón Árnason. Sótt 10. janúar 2025 af https://musteri.is/wp-content/uploads/2023/02/Bernsku-minningar-um-Jon-Arnason.pdf.

Fossagata 11, Reykjavík, árið 2015. Ljósm.: Höfundur.

Jón Árnason var prentari að ævistarfi. Hann byrjaði prentnám í Ísafoldarprentsmiðju árið 1893. Hann var einn af stofnendum prentsmiðjunnar Gutenberg árið 1904. Einnig var hann einn af stofnfélögum Prentarafélagsins og gengdi þar ýmsum trúnaðarstörfum.3Þrjátíu ára prentarar (1927, 1. október). Prentarinn. Blað Hins íslenska prentarafélags, 8. árg., 1.-2. tbl., bls. 1-2.

Sigurður Árnason vann í 42 hjá Norðdahls-íshúinu, en tók að sér forstöðu skrifstofu Togaraafgreiðslunnar árið 1947 og vann þar til æviloka. Hann hafði mikil afskipti af félagsmálum Verslunarmannafélags Reykjavíkur og var gerður að heiðursfélaga þess.4Guðmundur H. Garðarsson ( 1979, 9. febrúar). Sigurður Árnason í Íshúsinu – Minning. Morgunblaðið, 66. árg., 33. tbl., bls. 38. https://timarit.is/page/1509480?iabr=on

Við endurskipulag Lindargötu og nágrennis hennar þurfti húsið númer 15 að víkja. Árið 1988 var húsið því flutt í Skerjafjörð eins og fleiri hús, sem voru fyrir í nýju skipulagi um svipað leyti. Það stendur nú á lóðinni Fossagata 11 í Reykjavík og ber aldurinn vel.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 10. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 10. janúar, 2025