Fjarðarbraut 66, Sólhóll, Stöðvarfirði
1944 að Fjarðarbraut 66, Stöðvarfirði
Saga:
Kambanes í Fjarðabyggð liggur á milli Stöðvarfjarðar að norðan og Breiðdalsvíkur að sunnan. Á sunnanverðu nesinu voru tveir bæir, Kambar innar og Heyklif örlítið austar. Árið 1898 hófu búskap að Kömbum hjónin Jóhannes Sigurðsson (1864-1940) og Kristín Jónsdóttir (1874-1948). Þau hjónin voru barnlaus en ólu upp þrjú fósturbörn. Þegar Jóhannes lést árið 1940 bjó Kristín áfram að Kömbum með fósturbörnum sínum og tók fóstursonur hennar, Sigfús Jónsson (1898-1987) við búsforráðum.1Hermann Jakob Hjartarson og Atli Rúnarsson (2020). Kambanes. Fornleifaskráning; Hlynur Ármannsson (2024, 2. desember). Kambar – útgáfa 1. Sótt 14. júlí 2026 af Saga Stöðvarfjarðar | Hér kemur búskaparsaga Kamba | Facebook. „Sigfús bjó á Kömbum til ársins 1944 en þá fóru Kambar í eyði og hafa verið æ síðan. Húsið á Kömbum var flutt inn í þorpið á Stöðvarfirði og er uppistaðan í Sólhól.“2Hlynur Ármannsson (2024, 2. desember).
Þegar gerð var fornleifaskráning á Kambanesi árið 2020 segir m.a. eftirfarandi um það sem þá var þar enn til vitnis um gamla íbúðarhúsið:
Bærinn Kambar, húsið var byggt árið 1928. Steinsteypt hús, efri hluti þess er farinn. Hann var fluttur í þorpið í Stöðvarfirði árið 1944 þegar bærinn fór í eyði. Veggir eru um 2,5m á hæð og um 0,5m breiðir. Tveir inngangar eru á húsinu, einn í norður og einn í suður. Fimm gluggar eru á húsinu, einn í suður, tveir í vestur og tveir í austur. Reykháfurinn liggur bæði fyrir utan og innan hússins.3Hermann Jakob Hjartarson og Atli Rúnarsson (2020), bls. 47.

Grunnur / neðri hæð Kamba á Kambsnesi árið 2020. Heimild: Hermann Jakob Hjartarson og Atli Rúnarsson (2020). Kambanes. Fornleifaskráning, bls. 47.
Þegar Sigfús á Kömbum flutti á Stöðvarfjörð ásamt fósturmóður sinni og Guðmundínu Einarsdóttur (1909-1978) fóstursystur sinni tók hann efri hæð hússins og setti niður utanlega í þorpið neðan Fjarðargötu á lóð númer 66 og gaf húsinu nafnið Sólhóll. Þar bjuggu Sigfús og Guðmundína til ársins 1978, en þá keyptu þau Guðbjartur Þórarinsson (1905-1989) og Petra Landmark (1921-1998) frá Heyklif á Kambanesi húsið. Þau byggðu bílskúr við húsið. Þau áttu Sólhól til ársins 2006 þegar tvenn hjón festu kaup á húsinu. Þá var húsið farið að láta mikið á sjá, en þau hófu strax handa við að taka húsið rækilega í gegn og er húsið nú orðin mikil bæjarprýði.4Magnús Sigurðsson (2009, 4. maí). Kambanes. Sótt 14. júlí 2025 af Kambanes. – magnuss.blog.is; Magnús Sigurðsson (2018, 9. nóvember). Hús úr bárujárni. Sótt 14. júlí 2026 af Bloggfærslur 9. nóvember 2018 – magnuss.blog.is.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. júlí, 2026
Heimildaskrá
- 1Hermann Jakob Hjartarson og Atli Rúnarsson (2020). Kambanes. Fornleifaskráning; Hlynur Ármannsson (2024, 2. desember). Kambar – útgáfa 1. Sótt 14. júlí 2026 af Saga Stöðvarfjarðar | Hér kemur búskaparsaga Kamba | Facebook. ↩︎
- 2Hlynur Ármannsson (2024, 2. desember). ↩︎
- 3Hermann Jakob Hjartarson og Atli Rúnarsson (2020), bls. 47. ↩︎
- 4Magnús Sigurðsson (2009, 4. maí). Kambanes. Sótt 14. júlí 2025 af Kambanes. – magnuss.blog.is; Magnús Sigurðsson (2018, 9. nóvember). Hús úr bárujárni. Sótt 14. júlí 2026 af Bloggfærslur 9. nóvember 2018 – magnuss.blog.is. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 15. júlí, 2026
