Stöðvarkirkja, Stöðvarfirði, 1920-1930. Mynd eftir Jón Helgason. Sarpur.is. Safnnúmer A: JH-13-24. Sótt 21. mars 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/722671/.
Stöðvarkirkja, Stöðvarfirði, 1920-1930. Mynd eftir Jón Helgason. Sarpur.is. Safnnúmer A: JH-13-24. Sótt 21. mars 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/722671/.

Fjarðarbraut 37a, Stöðvarfirði

Heiti: Stöðvarfjarðarkirkja – Stöðvarkirkja - Kirkjubær
Byggingarár: 1879
Upphafleg notkun: Kirkja
Fyrsti eigandi: Stöðvarfjarðarkirkja
Aðrir eigendur:
1997: Birgir Albertsson, Jón Karl Helgason og Þórir Jónsson Hraundal
Upphafleg staðsetning:

Stöð, Stöðvarfirði

Flutt:

1925 að Kirkjubóli, Stöðvarfirði, nú Fjarðarbraut 37a

638000020_1687679389277896_5244561276129973521_n

Stöð, Stöðvarfirði. Ljósmynd í eigu Hlyns Ármannssonar. Sótt 21. mars 2026 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1687679372611231&set=pcb.1259334889430571.

multimedia-1773590.large

Stöðvarfjarðarkirkja gamla árið 1951. Ljósm.: Guðni Þórðarson. Sarpur.is. Safnnúmer A: GÞ-4049. Sótt 21. mars 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/1773591/.

Saga:

Stöð í Stöðvarfirði er gamall kirkjustaður og prestssetur og er talið að kirkja hafi fyrst verið reist á staðnum í kringum 1300. Síðasti prestur sat þar til 1905. Kirkjan, sem þá var á staðnum, hafði verið byggt árið 1879 og var síðar flutt í þorpið, Stöðvarfjörð, og jafnframt endur byggð í kringum 1925. Kirkjan var síðan afhelguð árið 1991, en nú er þar rekið gistihús, en ný kirkja byggð í þorpinu.1Gagngerar og tímabærar endurbætur (2022, 1. maí). Bautasteinn, 27. árg., 1. tbl., bls. 18.

Þegar kirkjan var flutt úr Stöð þá var hún endurbyggð og bætt við forkirkju og turni og í henni var söngloft fyrir kirkjukórinn. Til upphitunar var fyrst stór kolaofn og nýtt orgel var keypt í kirkjuna.2Hlynur Ármannsson (2026, 18. febrúar). Sótt 19. mars 2026 af Saga Stöðvarfjarðar | Facebook.

Yfirsmiður var Hóseas Björnsson.3Rósa Þórunn Hannesdóttir (2013). Endurnýting á kirkjubyggingum, bls. 20. Listaháskóli Íslands. Arkitektúr.

Árið 1991 var vígð ný kirkja á Stöðvarfirði og sama ár var gamla kirkjan afhelguð.4Þjóðkirkjan. Stöðvarfjarðarkirkja. Sótt 21. mars 2026 af  Stöðvarfjarðarkirkja – Þjóðkirkjan. Gamla kirkjan er nú skráð sem Fjarðarbraut 37a á Stöðvarfirði.

Árið 1997 keyptu einkaaðilar kirkjuna, þeir Birgir Albertsson, Jón Karl Helgason og Þórir Jónsson Hraundal. Hefur hún verið notuð til leigu fyrir ferðamenn að gista í og sumarbústaður eigenda. Síðan 1997 hafa einhver eigendaskipti orðið á húsinu.5Sofið á kórloftinu – spjallað úr stólnum (1999, 19. febrúar). Morgunblaðið, 87. árg., 41. tbl., bls. 13.

Stöðvarfjarðarkirkja gamla. Ljósm.: Hlynur Ármannsson. Sótt 21. mars 2026 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1687679459277889&set=pcb.1259334889430571.

Árið 2013 lýsti Rósa Þórunn Hannesdóttir gistiheimilinu m.a. þannig:

Norðanmegin í kirkjuskipinu, undir loftinu, var stúkað af lítil snyrting. Lítil eldhúsaðstaða var svo sett upp við hina hlið snyrtingarinnar inn af kirkjuskipinu. Altari og predikunarstóll eru ennþá á sínum stað í kirkjunni en bekkir kirkjunnar voru hinsvegar losaðir. Þó standa ennþá þrír af þeim við eldhúsborð gistiheimilisins. Rúm eru uppi á kirkjulofti og er þar svefnpláss fyrir 5 manns, einnig er svefnsófi á neðrihæð. Pallur var að auki byggður fyrir framan forkirkjuna til að skapa útirými.6Rósa Þórunn Hannesdóttir (2013), bls. 21.

 

Hér má lesa viðtal við einn eiganda hússins: „Það er örugglega heilmikið líf þarna uppfrá“

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. mars, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. mars, 2026