Eyri, Mjóafirði
Saga:
Jóhanna Benediktsdóttir (1892-1993) frá Borgareyri í Mjóafirði réðst til starfa í Eyjafirði sumarið 1912 og um veturinn var hún við nám og störf á Akureyri. Þar nyrðra kynnist hún Jóhanni Þorvaldi Stefánssyni (1888-1973) frá Brattavöllum á Árskógsströnd sem flutti með henni til Mjóafjarðar árið 1913 og gengu þau síðan í hjónaband tveimur árum síðar. Þá hófu þau búskap í Kastala.1Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 186. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Þar stóð þá enn hús, sem nefnt var Efri Kastali, og í því þrjár litlar íbúðir. Bjuggu þau í einni þeirra næstu fimm árin. Þá var húsið falt og keypti Jóhann það, reif og byggði upp inni á Borgareyri á fallegri grasflöt út við ána. En það hafði skamma hríð staðið þegar slíkur vöxtur hljóp í Borgareyrarána í stórrigningarveðri, að hún hljóp fram með aurburði og gróf undan hálfu húsinu. Var það þá tekið ofan aftur og flutt þangað sem það stendur nú [þ.e. skammt innan Borgareyrarhússins, beint suður af kirkjunni].2Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 186-187.
„Jóhanna var sérlega myndarhúsmóðir, glöð og reif þegar fundum bar saman, heimakær. Svo var og Jóhann sem jafnframt var félagslega sinnaður, stundum frumkvöðull og alltaf stuðningsmaður þess er til framfara horfði.“3Vilhjálmur Hjálmarsson (2008). Gullastokkur gamlingjans. Minningabrot, bls.59-60. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar. Jóhann stundaði alltaf sjóinn en einnig höfðu þau hjónin eina kú, nokkur hæsn og ræktuðu rófur og kartöflur. Þau bjuggu bæði á Eyri ævina á enda.
Þau eignuðust tvö börn. Sonur þeirra, Davíð, lést úr berklum 16 ára gamall, en Ólöf (f. 1928) dóttir þeirra bjó á Eyri og enn á hún húsið (2023). Hún og maður hennar, Egill Björgvin Stefánsson, gengu í hjónaband árið 1950. Þau byggðu sér litla íbúð áfasta við eldra húsið. Egill stundaði sjósókn og tók að sér áætlunarferðir milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Ólöf kenndi við barnaskólann, aðallega handavinnu og var prófdómari.4Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 188-191.
Leitarorð: Mjóifjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. mars, 2024
Heimildaskrá
- 1Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 186. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
- 2Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 186-187.
- 3Vilhjálmur Hjálmarsson (2008). Gullastokkur gamlingjans. Minningabrot, bls.59-60. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar.
- 4Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 188-191.
Deila færslu
Síðast uppfært 12. mars, 2024