Eiríkur Hansson Beck og Margrét Guðmundsdóttir Beck. Myndin af Eiríki er fengin af islendingabok.is en myndin af Margrét birtist með minningargrein um hana (Guðmundur Magnússon (1982, 7. júlí). Margrét Guðmundsdóttir Beck frá Reyðarfirði. Minning. Íslendingaþættir Tímans, 26. tbl., bls. 1).
Eiríkur Hansson Beck og Margrét Guðmundsdóttir Beck. Myndin af Eiríki er fengin af islendingabok.is en myndin af Margrét birtist með minningargrein um hana (Guðmundur Magnússon (1982, 7. júlí). Margrét Guðmundsdóttir Beck frá Reyðarfirði. Minning. Íslendingaþættir Tímans, 26. tbl., bls. 1).

Eiríkshús, Reyðarfirði

Heiti: Eiríkshús
Byggingarár: <1917
Horfið: ?
Upphafleg notkun: Sjóhús
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1917-1919: Eiríkur Beck og Margrét Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Breiðuvík, Reyðarfirði

Saga:

Ekki er mikið vitað um hús sem nefnt var Eiríkshús á Reyðarfirði. Sagt er að húsið hafi verið reist sem sjóhús í Breiðuvík, sem er í utanverðum Reyðarfirði, norðan megin.  Þaðan var mikið útræði á árum áður, bæði frá Litlu- og Stóru-Breiðuvík og er þar að finna fjölmörg ummerki eftir sjóhús og önnur mannvirki sem tengjast sjávarútvegi. Sjóhúsið var flutt inn á Reyðarfjörð og reist „niðri í fjöru innarlega undir Oddnýjar­heiðinni út og niður af Sandgerði.“1Guðmundur Magnússon (2003). Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, bls. 100. Fjarðabyggð: Fjarða­byggð. Árin 1917 til 1919 voru hjónin Eiríkur Hansson Beck (1876-1950) og Margrét Guðmundsdóttir (1891-1982) eigendur hússins og þar til heimilis og í því bjó þá einnig Þorsteinn Pálsson og kona hans Áslaug Pétursdóttir Maack.2Guðmundur Magnússon (2003), bls. 100; Guðný Zoëga (2023). Stóra-Breiðuvík og Stóra-Breiðuvíkurhjáleiga í Reyðarfirði – fornleifaskráning; Guðný Zoëga (2023). Litla-Breiðuvík í Reyðarfirði – fornleifaskráning.

Í vesturendanum var netaloft, sett upp línutau og gengið frá ýmsum góðum hlutum. Niðri var aðgerð í austurendanum og salt og saltgeymsla í körum. Þar var fiskinum stakkað og þar var hann pakkaður. …
Í fasteignamatinu 1917 segir, að húsið sé 71 m² að grunnfleti, „… timburhús með kvist á annarri hlið, þakið járnvarið. Húsið er útbúið til íbúðar og sjósóknar með bátabryggju í flæðarmáli.“3Guðmundur Magnússon (2003), bls. 110.

Margrét og Eiríkur hófu sinn búskap uppi á lofti í sjóhúsinu, sem kennt var við Eirík og kallað Eiríkshús. Þar hafði Eiríkur komið sér upp aðstöðu til útgerðar og fiskverkunar, en hann var sjómaður og útgerðarmaður, auk þess sem hann var kennari um tíma.

„Þetta þættu sjálfsagt ekki merkileg húsakynni í dag, en þetta varð að nægja, í önnur hús var ekki að venda um sinn. Síðar fluttu fjölskyldumar svo í eigin húsnæði, Seylu og Ekru. Margrét og Eirikur eignuðust tvö börn.“4Guðmundur Magnússon (1982, 7. júlí). Margrét Guðmundsdóttir Beck frá Reyðarfirði. Minning. Íslendingaþættir Tímans, 26. tbl., bls. 1.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. febrúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. febrúar, 2026