Einland, Þórkötlustaðahverfi, Grindavík
Saga:
Í kjarna Þórkötlustaðahverfis í austanverðri Grindavík stendur lítið timburhús, sem nefnt er Einland „… ein hæð með portbyggðu risi undir bröttu mænisþaki á lágum undirstöðum …“. Útveggir eru klæddir málmplötum og steinsteyptur reykháfur er upp úr miðju þaki með leirrör upp úr. Í Fasteignaskrá Þjóðskrár er húsið sagt byggt árið 1900 en húsið mun vera eitthvað eldra en það, því heimildamenn segja að Eiríkur Ketilsson (1862-1898) útvegsbóndi á Járngerðarstöðum, frá Kotvogi í Höfnum, hafi byggt húsið í Járngerðarstaðahverfi fyrir aldamótin og búið þar með Jóhönnu Einarsdóttur konu sinni (1867-1958). Um 1910 hafi hjónin Jón Þórarinsson (1864-1939) og Guðbjörg Jónsdóttir (1867-1920) búið í húsinu og þau hafi flutt þá heimili sitt og hús í Þórkötlustaðahverfið og komið því fyrir þar sem það stendur enn.1Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2018). Húsakönnun í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, ekkert bls.tal. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses og Gullinsnið ehf.
Í myndbandi sem tekið var upp árið 1985 segir Jón Daníelsson (1904-1987) frá því að húsið hafi verið flutt í heilu lagi með því að draga það á trjábolum sem lagðir voru undir húsið.2Þórkötlustaðahverfi – Árni og Jón Dan. (1986, 26. júlí). Úr safni Ólafs Rúnars Þorvarðarsonar. Sótt 1. ágúst 2020 af https://vimeo.com/113794968.
Í fasteignamati 1916 til 1918 kemur fram að Hafliði Magnússon bóndi á Hrauni eigi jörðina Einland (England) en ábúandi hafi verið Jón Þórarinsson og hann hafi átt íbúðarhús sem sagt var járnvarið timburhús með risi, um 55,5 fermetrar sem skipt var í 5 herbergi. Jón stundaði útgerð með búskapnum.3Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 168. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
Í manntali 1910 kemur fram að í húsinu búi þau Jón og Guðbjörg ásamt fimm börnum og tveimur hjúum og 10 árum síðar búa svo til sömu einstaklingar í húsinu, en Guðbjörg lést 19. desember 1920. Jón kvæntist síðar Katrínu Ísleifsdóttur (1894-1972).4Þjóðskjalasafn Íslands. Manntöl. Sótt 1. ágúst 2020 af http://manntal.is; Ísleifur Jónsson. Minning (2017, 2. júní). Morgunblaðið, 105. árg., 129. tbl., bls. 23.
Reyndar hefur því einnig verið haldið fram að fyrrnefndur Jón Þórarinsson hafi keypt húsið í Höfnum og flutt til Grindavíkur og að húsið sé byggt úr viðum timburskipsins Jamestown sem strandaði við Hvalsnes við Hafnir 1881.5Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018), bls. 168.
Einnig er til sú saga að Einar Jónsson kaupmaður í Garðhúsum í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík hafi flutt húsið af Vatnsleysuströnd. Hann var einn þeirra sem keypti timbur á strandstað skipsins Jamestown í Höfnun árið 1881. Ætlun hans var að byggja nýtt íbúðarhús í Garðhúsum. Ekki tókst þó betur til en svo að þegar verið var að ferja timbrið sjóleiðina til Grindavíkur glataðist timbrið á haf út. Í munnlegri geymd segir að þá hafi Einar brugðið á það ráð að kaupa hús sem reist hafði verið á Vatnsleysuströnd, tekið það í sundur og reist að nýju rétt við Garðhús í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík.6Halldór Svavarsson (2021). Strand Jamestowns úti fyrir Höfnum 1881, bls. 115-116. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2018). Húsakönnun í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, ekkert bls.tal. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses og Gullinsnið ehf.
- 2Þórkötlustaðahverfi – Árni og Jón Dan. (1986, 26. júlí). Úr safni Ólafs Rúnars Þorvarðarsonar. Sótt 1. ágúst 2020 af https://vimeo.com/113794968.
- 3Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 168. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
- 4Þjóðskjalasafn Íslands. Manntöl. Sótt 1. ágúst 2020 af http://manntal.is; Ísleifur Jónsson. Minning (2017, 2. júní). Morgunblaðið, 105. árg., 129. tbl., bls. 23.
- 5Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018), bls. 168.
- 6Halldór Svavarsson (2021). Strand Jamestowns úti fyrir Höfnum 1881, bls. 115-116. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025
