Efstibær við Spítalastíg 4a, Reykjavík. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 181285-594. Sótt 24. júlí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1664609.
Efstibær við Spítalastíg 4a, Reykjavík. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. 181285-594. Sótt 24. júlí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1664609.

Efstibær, Árbæjarsafni, Reykjavík

Heiti: Eiríksbær - Hinriksbær - Litlibær - Efstibær
Byggingarár: 1883
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Eiríkur Magnússon
Upphafleg staðsetning: Spítalastígur 4a, Reykjavík
Flutt: 1967 á Árbæjarsafn, Reykjavík
Efstibær 2

Efstibær á sínum upprunalega stað við Spítalastíg 4a, Reykjavík, árið 1957. Á skilti á húsinu stendur: Helgi Jónsson skósmiður. Ljósm.: Stefán Nikulásson. Sótt 24. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/c7ffdab3-e406-417c-8317-f76470c139d4/nanar.

Efstibær 1

Efstibær á Árbæjarsafni. Sótt 24. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/c7ffdab3-e406-417c-8317-f76470c139d4.

Saga:

Á vef Árbæjarsafnsins í Reykjavík segir þetta um húsið Efstabæ, sem áður stóð á lóð númer 4a við Spítalastíg í Reykjavík:

Einhver fjölmennasta stétt Reykjavíkur á 19. öld voru tómthúsmenn.  Þeir lifðu af fiskveiðum sem þeir stunduðu á opnum bátum og daglaunavinnu en áttu fáar eða engar skepnur.  Einn þessara manna var Eiríkur Magnússon [1853-1928]. Árið 1883 reisti hann íbúðarhús fyrir fjölskyldu sína á lóð sem síðar varð Spítalastígur 4A.  Gaf hann því nafnið Efstibær, enda var það í þá tíð efsta og austasta húsið í Þingholtunum.  Torfbær með sama heiti hafði áður staðið á lóðinni og mun nýja húsið hafa sum einkenni torfbæjarins, það er t.d. einungis með glugga á göflum.

Efstibær er timburhús , hlaðið í binding, klætt láréttum borðum. Það er portbyggt, þ.e. þakið byrjar um 60 sm frá gólfi rishæðarinnar.  Við húsið er hjallur sem áður var herbergi. Þakið var líklega bárujárnsklætt upphaflega, en á því eru nú þakhellur. Undir húsinu var lágur kjallari þar sem íbúar höfðu hænsni. Kamar var skammt frá útidyrum hússins og snéru dyr hans frá húsinu.

Í Efstabæ bjuggu oftast tómthúsmanna- sjómanna- og verkamannafjölskyldur. Stundum voru tvær fjölskyldur í húsinu, ein á hvorri hæð. Á þriðja áratug 20. aldar bjuggu á neðri hæðinni hjón sem eignuðust 8 börn. Þar var um að ræða dóttur húsbyggjandans, Kristínu Eiríksdóttur, og eiginmann hennar sem var þá sjómaður. Voru þá rúm meðfram öllum veggjum í stofunni og einnig rúm sem hægt var að fella saman á miðju gólfi. Þá bjó Eiríkur gamli í herbergi þar sem hjallurinn er nú. Húsið var flutt á Árbæjarsafn 1967 og er þar sýnt sem heimili tómthúsmanns.1Árbæjarsafn. Efstibær. Sótt 24. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/c7ffdab3-e406-417c-8317-f76470c139d4/nanar.

Við endurbyggingu hússins á Árbæjarsafni var byggður hjallur í stað skúrs við húsið. Ingvar Axelsson sá um flutning á húsiu en Halldór Guðmundsson sá um smíðavinnu.2Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 182. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. júlí, 2024