Efstasund 85, Reykjavík
Flutningur Bergstaðastrætis 35 árið 1953 eða 1954.
Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Bergstaðastræti 9 – Bráðræðisholt, bls. 468. Reykjavík: Sögusteinn.
Saga:
Í brunavirðingarbók frá árinu 1905 segir m.a. um hús sem var númer 35 við Bergstaðastræti í Reykjavík:
Vigfús skipstjóri Jósepsson [1865-1907] hefur látið byggja einlyft hús með porti og 4 al risi á lóð sinni við Bergstaðastræti. Hús þetta er bygt af binding klætt utan með plægðum 1″ borðum pappa listum og járni þar yfir, og með járnþaki á plægðri 1″ borða súð með pappa á milli. Í þak og útveggi er fylt með marhálm og millum gólfi í báðum bitalögum. Niðri í húsi þessu er 3 íbúðarherbergi, eldhús og 1 fastur skápur, sem alt er þiljað, og herbergin með pappa á veggjum og 1 með pappa á lofti, en 2 með striga og pappír á loftum, alt málað. Þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 4 herbergi og gangur, sem alt er þiljað, og 3 herbergin með pappa á veggjum súð og loftum. Alt málað. Þar eru 2 ofnar. Kjallari með steinsteypugólfi 3 ál á hæð er undir öllu húsinu. …
Við suður gafl hússins er inngönguskúr með kjallara. Hann er bygður eins og húsið. Í honum eru 2 gangar, 3 fastir skápar og 2 salerni. 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905 Aðfnr. 735. Sótt 22. september 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/brunavirdingar-husa-i-reykjavik-1811-1981/brunavirdingar-1811-1953.
Eiginkona Vigfúsar var Elín H. Jónsdóttir (1877-1963). Ekki bjuggu þau lengi í húsinu því Vigfús lést í febrúar 1907. Í júlí sama ár eignaðist Elín eina barn þeirra hjóna, stúlku sem fékk nafnið Vigfúsína Unnur. Hún lést þegar hún var fjögurra ára gömul og var Elín lengi að jafna sig eftir þessi áföll. 2Ingibjörg Árnadóttir (1963, 25. október). Elín Helga Jónsdóttir. Morgunblaðið, 233. tbl., bls. 17.
Árið 1910 er Ágúst Einarsson (1878-1960) skósmiður orðinn eigandi hússins ásamt konu sinni Sigríði Ingunni Bjarnadóttur (1875-1948). Þá voru þrjár íbúðir í húsinu og í manntali það ár kemur fram að þar búi 8 manns í þremur fjölskyldum. 3Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Bergstaðastræti 9 – Bráðræðisholt, bls. 466. Reykjavík: Sögusteinn; Manntal 1910. Sótt 22. september 2023 af manntal.is.
Síðar var reist steinsteypt viðbygging norðan við húsið, þar sem ýmsar verslanir voru til húsa, t.d. ráku Ásgrímur Eyþórsson og Kristján Guðmundsson þar verslanir og verslanirnar Björninn og Brekka voru þar til húsa um tíma.4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Bergstaðastræti 35. Sótt 22. september 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb; Verslunin Bergstaðastræti 35 (1924, 28. mars). Vísir, 14. árg., 76. tbl., bls. 1; Steinolía ódýrust í borginni (1924, 17. október). Vísir, 14. árg., 244. tbl., bls. 4; Tilkynning (1934, 24. nóvember). Morgunblaðið, 21. árg., 280. tbl., bls. 1.
Þegar til stóð að Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk hæfi byggingu stórhýsis við Bergstaðastræti þurfti húsið númer 35 að víkja. Þá var það flutt á lóð númer 85 við Efstasund. Þar hafði verið byggður undir húsið steyptur grunnur sem Sigvaldi Thordarson (1911-1964) teiknaði. Einnig hafði hann teiknað nýtt anddyri með svölum ofan á. Það snéri inn í garðinn, en nú hefur verið byggt yfir þessar svalir. Teikningin var gerð fyrir Egil Ástbjörnsson (1915-1991) og við hann var gerður lóðaleigusamningur í júlí 1953. 5#sigvaldithordarson. Sótt 22. september af https://www.picuki.com/tag/sigvaldithordarson: Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Efstasund 85. Sótt 22. september 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/; Lóðaleigusamningur, dags. 8. júlí 1953 Hann var verslunarstjóri í verslunni Síld og fisk sem var til húsa í húsinu sem reist var á lóðinni sem húsið stóð á við Bergstaðastræti. Þar var svo og er reyndar enn Hótel Holt til húsa.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905 Aðfnr. 735. Sótt 22. september 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/brunavirdingar-husa-i-reykjavik-1811-1981/brunavirdingar-1811-1953.
- 2Ingibjörg Árnadóttir (1963, 25. október). Elín Helga Jónsdóttir. Morgunblaðið, 233. tbl., bls. 17.
- 3Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Bergstaðastræti 9 – Bráðræðisholt, bls. 466. Reykjavík: Sögusteinn; Manntal 1910. Sótt 22. september 2023 af manntal.is.
- 4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Bergstaðastræti 35. Sótt 22. september 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb; Verslunin Bergstaðastræti 35 (1924, 28. mars). Vísir, 14. árg., 76. tbl., bls. 1; Steinolía ódýrust í borginni (1924, 17. október). Vísir, 14. árg., 244. tbl., bls. 4; Tilkynning (1934, 24. nóvember). Morgunblaðið, 21. árg., 280. tbl., bls. 1.
- 5#sigvaldithordarson. Sótt 22. september af https://www.picuki.com/tag/sigvaldithordarson: Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Efstasund 85. Sótt 22. september 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/; Lóðaleigusamningur, dags. 8. júlí 1953
Deila færslu
Síðast uppfært 28. apríl, 2024



