Drafnarstígur 7 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. 

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd nr. SÞÓ Ábs 0304.jpg. Sótt 16. nóvember 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is.
Drafnarstígur 7 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd nr. SÞÓ Ábs 0304.jpg. Sótt 16. nóvember 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is.

Drafnarstígur 7, Reykjavík

Heiti: Sel - Steinsbær
Byggingarár: 1897
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurður Árnason og Margrét Björnsdóttir
Aðrir eigendur:
1907: Margrét Björnsdóttir
Upphafleg staðsetning: Bræðraborgarstígur 11, Reykjavík
Flutt: (1930 eða) 1938-1939 að Drafnarstíg 7 (áður nr. 5b), Reykjavík
Hvernig flutt: Rúllað á stórtrjám
100_4635

Drafnarstígur 7 árið 2007. Ljósm.: Einar Skúli Hjartarson. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Drafnarstígur 7 1

Drafnarstígur 7 í júlí 2022. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Árið 1897 var virt tvíloftað hús sem Sigurður Árnason (1854-1907) snikkari hafði byggt við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Húsið var með steinveggjum að neðan og járnvörðum timburveggjum að ofan. Húsið fékk síðar númerið 11 við Bræðraborgarstíg.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Bók 03-07-1888 til 17-02-1900. Aðfnr. 734. Brunv.númer 330. Sótt 5. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/734-bok-03-07-1888-til-17-02-1900-adfnr-734.pdf. Þá var húsinu lýst þannig:

a Íbúðarhús byggt úr binding og hliðarveggir að nokkru leyti úr höggnum grásteini. Bindingur er kl. utan borðum pappa og járni. Þak er úr borðum pappa og bárujárni.
Á neðri hæðinni eru 1 íbúðarherbergi eldhús og gangur. Allt þiljað með panelborðum og málað. Á efri hæð eru 2 íbúðarherbergi og gangur með samskonar frágangi sem er á neðri hæðinni.
b Geymsluhús byggt úr binding klætt ut. borðum og pappa og járni þar yfir á 3 hliðar. Þak er úr borðasúð pappa og járni. Þar er timburgólf og þiljur innan á binding. Þar er trésmíðavinnustofa með 2 hefilbekkjum.
c Inngönguskúr er á milli hússins liða a og b úr binding kl utan á hliðarveggjum borðum, pappa og járni. Þak er úr borðum, pappa og járni. Gólf er úr steinsteypu. Þar er geymsluklefi og gangur. Allt þiljað og málað.
L. 3,5 m, br. 3,6 m, h 2,2 m. Skáþak.2Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Bræðraborgarstígur 11.

Sigurður kvæntist Margréti Björnsdóttur (1863-1951) árið 1883. Eftir lát eiginmanns síns árið 1907 bjó Margrét áfram í húsinu ásamt Guðmundi Eiríkssyni (1889-1941) fóstursyni þeirra hjóna.3Þorsteinn Jónsson (2012). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 769. Reykjavík: Sögusteinn.

Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands kemur fram að hús þetta hafi verið flutt að Drafnarstíg 7 árið 1938 eða 1939 (eða hugsanlega árið 1930) og sett þar niður á nýjan, steyptan kjallara.4Drafnarstígur 7, Reykjavík, verknr. 1496 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands. Þegar gömul kort af Reykjavík eru skoðuð sést að húsið hefur staðið þar sem nú eru gatnamót Bárugötu og Bræðraborgarstígs og hefur húsið sennilega verið fyrir þegar Bárugata var lögð. Ljóst er að búið er að stækka húsið talsvert.

Þess skal getið að Guðjón Friðriksson segir í bók sinni Indæla Reykjavík að húsið hafi staðið „úti í miðri Öldugötu en var flutt hingað með því að rúlla því á stórtrjám og sett upp á kjallarann hér árið 1930.“5Guðjón Friðriksson (1996). Indæla Reykjavík. 6 gönguleiðir um gamla Vesturbæinn, bls. 38. Reykjavík: Iðunn.

Eins og sjá má á ljósmyndunum hefur húsið tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Glöggt má sjá að við þær framkvæmdir var vandað til verka og hugað að aldri og uppruna hússins.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. janúar, 2025