Teikningar af húsinu áður en það var stækkað. Heimild:   Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 145. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Teikningar af húsinu áður en það var stækkað. Heimild: Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 145. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Brunnstígur 1, Hafnarfirði

Byggingarár: < 1917
Upphafleg notkun: Íbúðarhús ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1917: Símon Kristjánsson lóðs og Áslaug Ásmundsdóttir húsmóðir og verkakona
Upphafleg staðsetning: Álftanes
Flutt: 1917 að Vesturbrú 17b, nú Brunnstíg 1, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Tekið í sundur

Saga:

Í húsakönnun sem gefin var út árið 2021 segir um húsið sem nú er númer 1 við Brunnstíg í Hafnarfirði:

Á byggingarnefndarfundi 4. júní 1917 lagði Símon Kristjánsson fram umsókn um byggingarleyfi á nýútmældri lóð sinni við Vesturbrú. Efniviðinn í húsið hafði hann fengið úr húsi er hann hafði rifið og flutt af Álftanesi. Í fyrstu var húsið nr. 17b við Vesturbrú en árið 1932 er það orðið Brunnstígur 1. Brunavirðing nr. 3062, 18. ágúst 1917. Ótölusett við Vesturbrú. Núv. eig: Símon Kristjánsson / ekki selt. Húsið er einlyft með risi 1,35m. Því er skipt í 2 stofur og eldhús, stofurnar fóðraðar, allt málað. Notað til íbúðar. Undir öllu húsinu er kjallari úr grjóti,  1,50m á hæð, 1 gluggi, notaður til geymslu.  Inngönguskúr 1,60 x 1,60m, 2,35 á hæð, er áfastur við húsið, fóðraður og málaður. 1 eldavél og 1 ofn í húsinu.1Gláma Kím arkitektar (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 145.

Brunnstígur 1 árið 2018. Heimild: Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 145. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Símon var fæddur 29. ágúst 1880 og lést 18. mars 1955 og var hann þá til heimilis að Brunnstíg 1. Eiginkona hans var Áslaug Ásmundsdóttir (1887-1985), en þau gengu í hjónaband árið 1907. Þeirra fyrsta heimili var að Vesturgötu 17 í Hafnarfirði, en lengst af bjuggu þau í húsinu við Brunnstíg 1. Um svipað leyti og þau hjón reistu húsið við Brunnstíg gerðist Símon hafnsögumaður, en 25 ára gamall hafði hann tekið stýrimannspróf og verið ýmist stýrimaður eða skipstjóri fram að því, en hafnsögumannsstarfinu gegndi hann í 30 ár. Símon sinnti ýmsum félagsmálum, var m.a. einn af stofnendum skipstjórafélagsins Kára.2Árni Gunnlaugsson (1984). Fólkið í Firðinum. Ljósmyndir og æviágrip. Fyrra bindi, bls. 30. Útgefandi: Höfundur; Símon Kristjánsson hafnsögumaður og fjölskylda Brunnstíg 1 (2013, 18. janúar). Hafnarfjörður, Garðabær/Vogar, 2. tbl., 3. árg., bls. 14; Þorleifur Jónsson (1950, 29. ágúst). Morgunblaðið, 37. árg., 196.tbl., bls. 10.

Árið 1926 var húsið stækkað og þak þess hækkað.3Gláma-Kím (2021, 15. janúar), bls. 145.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. febrúar, 2024