Brekkugata 5, Þingeyri
Saga:
Gísli Oddsson, bóndi á Lækjarósi, Mýrahreppi í Dýrafirði, byggði þetta hús um 1896. Eftir lát hans var húsinu fleytt í heilu lagi yfir Dýrafjörð og sett niður á lóð sem nú er númer 5 við Brekkugötu á Þingeyri, þar sem það stendur enn. Líklega hefur þetta verið árið 1903, því þá er húsið sagt byggt í Fasteignaskrá Íslands. Fyrsti íbúi hússins eftir flutninginn var líklega héraðslæknirinn á Þingeyri, Andrés Fjeldsted (1875-1923). Seinna eignuðust hjónin Ólafur Ragnar Hjartarson Hjartar (1892-1974) járnsteypumaður og Sigríður Kristín Egilsdóttir (1893-1980) húsið. Þau voru móðurforeldrar Ólafs Ragnars Grímssonar (f. 1943), sem var forseti Íslands á árunum 1996 til 2016. Hann dvaldi hjá ömmu sinni og afa á Þingeyri vegna veikinda móður hans í sex ár frá þriggja ára aldri. Þá bjuggu þau í Gulahúsi eins og húsið við Brekkugötu 5 var kallað.1Þórir Guðmundsson (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild; Þórir Guðmundsson (2010, 4. nóvember). Tölvupóstur; Ólafur Ragnar Grímsson (2021). Rætur. Á æskuslóðum minninga og mótunar. Reykjavík: Mál og menning. Í bókinni Rætur eftir Ólaf Ragnar Grímsson má lesa um dvöl hans á Þingeyri og þar lýsir hann húsinu m.a. þannig:
Húsið hafði staðið hinum megin fjarðarins en var flutt til Þingeyrar. Lítið timburhús klætt bárujárni. Niðri var eldhús, borðstofa fyrir fáeina; lítil betri stofa sem aðallega var notuð þegar gestir komu í heimsókn. Þar hafði afi skrifborð og bækur í hillum; líka fínan dívan. Inn af henni var útskáli, matargeymsla. Annars voru vistirnar í kjallaranum. … Eldhúsið og borðstofan voru helstu vistarverur. … Kynt var með olú en áður með kolum. Fyrsta verk á hverjum morgni að kveikja undir eldavél og hita vatnið. …
Á heimilinu var klósett niðri en hvorki baðkar né sturta. Þegar við böðuðum okkur var sett vatn í bala; hitað á eldavélinni …
Húsið var ein hæð og ris; þröngur og brattur stigi úr eldhúsinu upp á loftið; hleri yfir. Í risinu voru engir ofnar. Heitt vatn sett í hitapoka á kvöldin og þeir teknir með í háttinn. Fyrstu árin svaf ég í litlu trérúmi við hliðina á afa og ömmu. Glugginn sneri út fjörðinn. Á sumarkvöldum lýsti birta sólarlagsins upp herbergið. Það var ekki stórt. Rúmin tvö tóku nær allt plássið. …
Nokkrum árum síðar var ég fluttur í litla kompu inn af svefnherberginu; ekki hurð á milli. Þar komst rúm en varla borð.
Tvö önnur lítil herbergi voru uppi; frekar lítið notuð þegar ég var á Þingeyri. Annað hafði mamma haft á unglingsárum. … Pallur var fyrir framan, undir þakinu. Fullorðnir urðu að beygja sig þegar komið var upp og gengið inn í herbergin.
Húsið var með þeim minnstu á Þingeyri. Vinalegt og fóstraði góðar minningar.2Ólafur Ragnar Grímsson (2021), bls. 57-60.
Þess má geta að árið 2008 skemmdist húsið verulega í eldi, en gert var við það.3Brekkugata 5, Þingeyri, verknr. 0484 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Árið 2014 keypti Trésmiður ehf. húsið, en að því fyrirtæki standa hjónin Magnús H. Alfreðsson húsasmíðameistari og Áslaug J. Jensdóttir húsið. Fjórum árum síðar fluttu þau húsið til á lóð sinni.
Þótti þeim húsið standa óþarflega mikið út á götuna svo Magnús brá á það ráð að steypa nýjar undirstöður undir það, tveim metrum frá götunni. Á dögunum var svo kranabíll fenginn til að færa það. Íbúar sýndu þessu mikinn áhuga þó framkvæmdin stæði yfir á miðjum vinnudegi. „Við vorum umkringt nágrönnum hússins og öðrum áhugasömum íbúum á Þingeyri. Það sem meira er þá stukku fram aðstoðarmenn sem hjálpuðu við að stýra húsinu ofan á nýja staðinn“ sagði Áslaug í samtali við Þingeyrarvefinn. „Það voru margir sem gáfu sig á tal við okkur eftir flutninginn, sem lýstu yfir ánægju og áhuga fyrir verkefninu.“4Þingeyrarvefurinn (2018, 17. október). Hús á ferð og flugi. Sótt 6. september 2023 af Þingeyrarvefurinn.
Leitarorð: Dýrafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Þórir Guðmundsson (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild; Þórir Guðmundsson (2010, 4. nóvember). Tölvupóstur; Ólafur Ragnar Grímsson (2021). Rætur. Á æskuslóðum minninga og mótunar. Reykjavík: Mál og menning.
- 2Ólafur Ragnar Grímsson (2021), bls. 57-60.
- 3Brekkugata 5, Þingeyri, verknr. 0484 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 4Þingeyrarvefurinn (2018, 17. október). Hús á ferð og flugi. Sótt 6. september 2023 af Þingeyrarvefurinn.
Deila færslu
Síðast uppfært 3. september, 2025


