Pöntunarskúrinn er lága, langa húsið fyrir næstum miðri mynd. Fyrir framan hann er torfhús. Myndin er tekin 1907. Heimild: órður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 152. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.
Pöntunarskúrinn er lága, langa húsið fyrir næstum miðri mynd. Fyrir framan hann er torfhús. Myndin er tekin 1907. Heimild: órður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 152. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.

Brekkugata 1, Hvammstanga

Heiti: Pöntunarskúrinn - Guðmundarhús
Byggingarár: 1902
Upphafleg notkun: Verslunar- og geymsluhús
Fyrsti eigandi: Kirkjuhvammsdeild Kaupfélags Húnvetninga
Aðrir eigendur:
1914: Guðmundur Z. Guðmundsson og Kristín Jónsdóttir
1923: Kristín Jónsdóttir
1943: Kristín Jónsdóttir og Gísli Guðmundsson
1946: Kristín Jónsdóttir
1948: Jóhann Benediktsson og Jóna Annasdóttir
Upphafleg staðsetning: Rétt austan við Kaupfélagshúsið á Hvammstanga
Flutt: 1914 að Brekkugötu 1, Hvammstanga
d9785c38-4c50-4c70-9b4f-286260359f07

Brekkugata 1, Hvammstanga, líklega skömmu eftir að húsið var reist þar. Ljósm. í eigu Hildu DeSanctis.

Brekkugata 1 1

Brekkugata 1, Hvammstanga, eftir að húsið var járnklætt milli 1930 og 1940. Ljósm. í eigu Hildu DeSanctis.

Saga:

Um tilurð hússins sem nú stendur við Brekkugötu 1 á Hvammstanga, oftast nefnd Guðmundarhús eftir fyrsta eiganda sínum, segir í Sögu Hvammstanga:

Árið 1902 reisti Kirkjuhvammsdeild Kaupfélags Húnvetninga á Blönduósi skúr á Hvammstanga sem kall­aður var Pöntunarskúrinn. Hann var notaður fyrir vörur sem deildarmenn pöntuðu hjá kaupfélaginu. Árið 1914 var skúrinn hlutaður í tvennt. Annar helmingurinn stóð um kyrrt á staðnum en hinn hlutinn var fluttur á steinsteyptan grunn á öðrum stað og nefndist eftir það Guðmundarhús …1Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Saga Hvammstanga II 1938-1998, bls. 17. [Hvammstanga:] Húnaþing vestra.

Pöntunarskúrinn stóð rétt austan við Kaupfélagshúsið á Hvammstanga.2Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 152. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.

Sá sem stóð fyrir flutningi skúrshlutans var Guðmundur Z. Guðmundsson (1880-1923) járnsmiður, eigandi hans. Eiginkona hans var Guðfinna Kristín Jónsdóttir (1876-1957).3Þórður Skúlason (2021), 50.

Þegar gert var fasteignamat húsinu á árunum 1916 til 1918 var því lýst þannig:

Íbúðarhús úr timbri (skúr). 7 x 12 al. [um 33 fermetrar], meðalhæð 3½ al. Kjallari er undir öllu húsinu, að mestu steinsteyptur, hlaðið undir á 2 vegu, steinlímdur, hæð 3¾ al. Í kjallara er skilrúm úr steinsteypu og steypt anddyri og steyptar tröppur upp af. Á gólfi anddyri og 2 herbergi. Reykháfur úr steinsteypu, 1 eldavél. Standandi klæðning á veggjum og járnþak. Heldur kalt en rakalaust. Húsið byggt 1915, að nokkru úr eldra húsi.4Þórður Skúlason (2021), 50.

Brekkugata 1, Hvammstanga, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Þegar húsið var metið aftur árið 1930 virðist húsið hafa verið stækkað og endurbætt, því nú er flatarmál þess samtals 40 fermetrar. Kjallari er sagður vandaður með þremur herbergjum og gangi. Á efri hæð eru fjögur herbergi og gangur. Vatnsleiðsla var í húsinu, en ekki salerni, miðstöð og eldavél. Húsið var þá sagt sagt hlýtt og rakalaust.

Í fasteignamati árið 1940 kemur fram að búið er að járnklæða húsið.

Eftir að Guðmundur lést árið 1923 var Kristín ekkja hans skráður eigandi hússins. Hún giftist Gísla Guðmundssyni (1877-1946) árið 1943, en hann lést þremur áður síðar. Kristín seldi Jóhanni Benediktssyni (1907-1962) og Jónu Annasdóttur (1021-2008) húsið árið 1948 og átti Jóna það til ársins 2008 þegar hún lést.5Þórður Skúlason (2021), 50.

 

Leitarorð: Hvammstangi

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. nóvember, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Friðrik G. Olgeirsson og Steingrímur Steinþórsson (2008). Saga Hvammstanga II 1938-1998, bls. 17. [Hvammstanga:] Húnaþing vestra.
  • 2
    Þórður Skúlason (2021). Hús og híbýli á Hvammstanga, bls. 152. Hvammstanga: Skriða bókaútgáfa.
  • 3
    Þórður Skúlason (2021), 50.
  • 4
    Þórður Skúlason (2021), 50.
  • 5
    Þórður Skúlason (2021), 50.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. nóvember, 2025