Breiðagerði, Melgötu 9, Keflavík
Saga:
Í bókum Mörtu Valgerðar Jónsdóttur (1889-1969), Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, segir frá húsi sem stóð við Melgötu 9 í Keflavík (nú Reykjanesbæ). Faðir hennar, Jón Jónsson (1843-1921) byggði húsið þegar hann flutti af Vatnsleysuströnd, þar sem hann hafði búið í Landakoti (þar sem Marta fæddist), Breiðagerði og Hellnum. Flutt var húsið í sumarið 1901. Marta nefnir ekki að húsið hafi verið flutt en minnist þess að vinir og kunningjar föður hennar hjálpuðu honum við smíðina án þess að þiggja laun fyrir. Bjó Jón í húsinu þar til hann lést árið 1921 og fluttist þá kona hans, Guðrún Hannesdóttir, til dóttur þeirra. Jón vann hjá Duusverslun við tunnusmíði og annað sem til féll úti eða inni.1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík. Þrjú bindi, bls. 133-136. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
Á öðrum stað í sömu bók segir frá því að hjónin Jón Oddsson og Guðleif Oddsdóttir hafi keypt húsið Breiðagerði eða Melgötu 9 árið 1922. Þar kemur fram að húsið hafi fyrst staðið á Vatnsleysuströnd, en rifið og byggt upp aftur við Melgötu rétt eftir aldamótin 1900.2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 901-902.
Húsið stóð á þeim slóðum þar sem húsið númer 4 við Vallargötu í Keflavík stendur nú (2025).

Stórhýsið fremst á þessari mynd er Félagsbíó í Keflavík, sem hóf kvikmyndasýningar árið 1955. Í framhaldi af bíóhúsinu sjá þrjú lágreist gulleit hús. Breiðagerði er miðjuhúsið með reykháfi á lágu risþaki. Ljósm.: Davíð Smári Jónatansson. Sótt 23. júní 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10224131516218205&set=gm.10157450787642213.
Melgata er ekki lengur til í Keflavík, en líklega hafa húsin sem við hana stóðu verið skráð við Kirkjuveg og Vallargötu þegar Melgötunafnið var lagt niður. Mörg hús á þessu svæði, þ.e. norðan og austan við húsið sem nú (2025) hýsir ráðhús Reykjanesbæjar, þurftu að hverfa þegar það hús var byggt um 1984 (þá Sparisjóður Keflavíkur).
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík. Þrjú bindi, bls. 133-136. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
- 2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 901-902.
Deila færslu
Síðast uppfært 23. júní, 2025