Á Sarpi, menningarsögulegu gagnasafni, er þessi mynd sögð vera af Reykjavíkurvegi 6 í Hafnarfirði. Sé það rétt hefur dyra- og gluggaskipan verið breytt, eins og sjá má á næstu mynd. Sótt 3. maí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1400240.
Á Sarpi, menningarsögulegu gagnasafni, er þessi mynd sögð vera af Reykjavíkurvegi 6 í Hafnarfirði. Sé það rétt hefur dyra- og gluggaskipan verið breytt, eins og sjá má á næstu mynd. Sótt 3. maí 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1400240.

Brattakinn 33, Hafnarfirði

Heiti: Vegamót
Byggingarár: 1908
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og símstöð
Fyrsti eigandi: Jóhanna Jórunn Stefánsdóttir
Aðrir eigendur:
1916: Guðmundur Eyjólfsson
1947: Guðrún Sigurðardóttir
Upphafleg staðsetning: Reykjavíkurvegur 6, Hafnarfirði
Flutt: 1962 að Bröttukinn 33, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Brattakinn 33 4

Reykjavíkurvegur 6 þegar verslunin Vegamót var í húsinu. Mynd sem Helga Ólafsdóttir setti á Facebook. Sótt 3. maí 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10223446705706999&set=p.10223446705706999&type=3

20240430_122004

Brattakinn 33 í Hafnarfirði í apríl 2024. Enn sést gamla gluggaskipanin á suðurhlið hússins. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Árið 1908 lét Jóhanna Stefánsdóttir (1867-1944) byggja fyrir sig dágott timburhús við Reykjavíkurveg 6 í Hafnarfirði. Húsið var alltaf nefnt Vegamót, enda stóð það á mótum Reykjavíkurvegar og Hverfisgötu, neðan Hverfisgötu. 1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 43.

Í manntali sem tekið var árið 1910 kemur fram að Jóhanna búi í Landsímastöðinni í Hafnarfirði og ásamt fjórum börnum sínum.2Manntal 1910. Sótt 3. maí 2024 af https://manntal.is/. Árið 1907 missti Jóhanna mann sinn, Guðmund Einarsson (f. 1865), af heilablóðfalli, en hann var þá verslunarstjóri Gránufélagsins á Siglufirði.3Frú Jóhanna Stefánsdóttir. Minningarorð (1944, 18. júlí). Morgunblaðið, 31. árg., 158. tbl., bls. 11.

Flutti hún þá með fjórum börnum sínum, Kristínu, Stefáni, Jórunni og Einari til Hafnarfjarðar og annaðist, með aðstoð eldri barna sinna, símastöð Hafnarfjarðar. Hjelt hún því starfi uns hún flutti hingað til Reykjavíkur á heimili Kristínar dóttur sinnar og tengdasonar, Ólafs Þorsteinssonar læknis.
Frú Jóhanna var frábær dugnaðar og fyrirhyggjukona, enda reyndi á það, er hún misti mann sinn frá fjórum börnum. Henni fjell aldrei verk úr hendi, meðan heilsan entist, og hafði hún alla tíð vakandi auga með velferð barna sinna, meðan þau nutu hennar umsjár. Jórunn dóttir hennar dó 12 ára gömul, en Stefán dó 1915, mesti efnispiltur, var þá í 6. bekk Mentaskólans. Svo sorgin fór ekki framhjá hennar dyrum í lífinu.4Frú Jóhanna Stefánsdóttir. Minningarorð (1944, 18. júlí). Morgunblaðið, 31. árg., 158. tbl., bls. 11.

Hattaverzlun Hafnarfjarðar (1948, 15. október). Vísir, 38. árg., 235. tbl., bls. 2.

Margvísleg starfsemi fór fram í húsinu á meðan það stóð við Reykjavíkurveg. Eins og áður segir var þar símstöð í fyrstu og var Jóhanna stöðvarstjóri þar til hún flutti til Reykjavíkur, en stöðin var rekin í húsinu til ársins 1921. Þar var einnig rekin hattaverslun, brauðstofa og ýmislegt fleira.

Brauðstofan (1962, 8. apríl). Alþýðublaðið, 43. árg., 83. tbl., bls. 6.

Guðrún Sigurðardóttir (1907-1989) rak m.a. hattaverslun í húsinu og verslaði með ýmislegt annað líka. Hún keypti húsið eftir að hún missti mann sinn, Guðmund Sveinsson (f. 1907) árið 1947 frá fimm ungum börnum. Hún átti húsið þegar til stóð að breikka Reykjavíkurveginn og húsið varð að víkja.  Það var flutt að Bröttukinn 33 um 1962 og Guðrún hélt áfram að reka verslun sína þar um tíma.

Steyptur var nýr kjallari sem húsið var sett á við Bröttukinn. Meðan sú vinna fór fram stóð húsið á tunnum á lóðinni. Jafnframt var byggt við húsið til norðurs.5Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 43; Hattaverzlun Hafnarfjarðar (1948, 15. október). Vísir, 38. árg., 235. tbl., bls. 2; Brauðstofan (1962, 8. apríl). Alþýðublaðið, 43. árg., 83. tbl., bls. 6; Hafnarfjörður og Hafnfirðingar. Ýmsar umræður. Sótt 3. maí 2024 af https://www.facebook.com/groups/247258775368224; Minning: Bragi Guðmundsson (2008, 29. febrúar). Morgunblaðið, 96. árg., 59. tbl., bls. 34.

 

 

Brattakinn 33, Hafnarfirði. Hluti úr teikningu Jóns P. Guðmundssonar, dags. 17. ágúst 1960.

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. maí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. maí, 2024