Brattakinn 31, Hafnarfirði
Brattakinn 31 í Hafnarfirði eftir stækkun árið 1955. Höf.: Sigursveinn. Heimild: Sigursveinn H. Jóhannesson (2013, 19. desember). Sparisjóðurinn. Fjarðarpósturinn, 31. árg., 47. tbl., bls. 21. Sótt 28. apríl 2024 af https://timarit.is/page/5841533?iabr=on.
Brattakinn 31 í Hafnarfirði árið 2015. Ljósm.: Rósa Karen Borgþórsdóttir. Sótt 26. apríl 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10206439070125415&set=oa.852767801483982.
Saga:
Um húsið númer 31 við Bröttukinn í Hafnarfirði segir í húsakönnun fyrir Kinnarnar í Hafnarfirði:
Þetta hús var áður á Reykjavíkurvegi nr. 10. Samkvæmt manntali er húsið byggt 1907. Árið 1916 er Sigurður Magnússon eigandi en áður hafði Kristín Bjarnadóttir átt húsið. Í því voru þá tvö herbergi og eldhús. Við austurhlið var inngönguskúr og 1.6 m hár kjallari undir öllu húsinu.
1955 átti húsið Sigursvein Jóhannessonar [sic], fær hann leyfi til að flytja það af Reykjavíkurvegi.
Hann breytti húsinu eftir að það var flutt í Bröttukinn og var Finnbogi Hallsson húsasmíðameistari.
Teikningar samþykktar í bygginganefnd 4.11.1955, 1958 er því lýst sem einbýlishúsi.
Eftir stækkun 1955 var lengd hússins 8.9 m og 1975 13.4 m.
Fundagerð bygginganefndar 4.11.1955 samþykkir að heimila Sigursveini Jóhannssyni að byggja íbúðarhús á lóðinni samkvæmt teikningu Garðars Finnbogasonar dagsett 22.10.1955.1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 42.
Í manntali árið 1910 kemur fram að í húsi Sigurðar Magnússonar í Hafnarfirði hafi búið hjónin Sigurður Magnússon (1864-1914) sjó- og daglaunamaður og Kristín Bjarnadóttir (f. 1858), ásamt Hermundi Þórðarsyni (1903-1992) fóstursyni þeirra, en hann var bróðursonur Kristínar, og Ragnheiði Illugadóttur (1855-1917) sem var leigjandi í húsinu.2Manntal 1910. Sótt 28. apríl 2024 af https://manntal.is/; Guðmundur Guðgeirsson (23. ágúst 1963). Hermundur Þórðarson sextugur. Morgunblaðið, 50. árg., 179. tbl., bls. 11. Allar líkur benda til að hér sé átt við húsið númer 10 við Reykjavíkurveg.
Í desember 2013 skrifaði Sigursveinn H. Jóhannesson athyglisverða grein í Fjarðarpóstinn um húsið við Reykjavíkurveg 10, flutning þess að Bröttukinn og hvernig hann fjármagnaði kaupin. Þar segir m.a.:
Húsið við Reykjavíkurveg 10 í Hafnarfirði árið 1954 var u.þ.b. 30 m² og staðsett á stórri lóð. Inngangur í húsið var um viðbyggingu sem var forstofa og búr. Frá forstofu var gengið inn í eldhús. Á hægri hönd var borðskápur undir glugga með vaski og kaldri vatnslögn. Rafha eldavél var í horni milli dyra til tveggja herbergja. Það voru tveir rafmagnsþilofnar til upphitunar í húsinu. Það var ekkert rennandi heitt vatn og engin baðaðstaða. Undir inngangi var útikamar sem var tæmdur með jöfnu millibili. Óeinangrað timburgólf var í húsinu. Aðstaða til þvotta var í kjallara. Þar var raflögn fyrir þvottavél og suðupott. Lofthæð þar var manngeng. Veggir voru grjóthlaðnir og engin upphitun. Þetta hús leigði ég og bjó þar í nokkur ár. Einn daginn var mér tilkynnt að verktaki væri búin að kaupa húsið og lóðina sem það stóð á. Það var ákveðið að byggja þar stórt einbýlishús.
Til að bygging þessa einbýlishúss gæti hafist varð að færa húsið nr. 10 innar á lóðina. Til bráðabirgða var húsið svo flutt tvær breiddir sínar innar á lóðina og sett niður á lausar undirstöður 60 cm á hæð. Timbri og tjörupappa var slegið utan á til að forða trekk. Þannig stóð það í rúmt ár meðan beðið var eftir lóð til að flytja það á.
Þessi húsfærsla var framkvæmd á einum degi og engin ástæða að flytja úr húsinu meðan á flutningnum stæði. Síðar varð það að samkomulagi að ég keypti húsið til flutnings á 25 þús. krónur með engri útborgun en greiddi 1.000 kr. mánaðarlega Nú var málið að fá lán fyrir þessum kaupum, undirbúa flutning, fá lóð, láta teikna og gera sökkul. Ég fékk lóð í Bröttukinn og þegar ég hafði gert sökkulinn kláran var húsið flutt út á milli húsanna á Hverfisgötu og sett niður á grunninn upp í Bröttukinn. … Húsmunir voru í húsinu í flutningunum svo það var fljótlegt að flytja aftur inn þegar húsið var komið á grunninn og rafmagn og vatnslögn tengd. Bráðabirgðakamri var slegið upp og látinn duga fyrir næstu mánuði. …
Reykjavíkurveg 10, sem ég hafði keypt til flutnings og stækkað um rúman helming, var staðsett í Bröttukinn 31. Það tók mig nokkur ár að fullklára húsið með endalausum vinnuskiptum og eigin vinnu. Fjölskyldan hafði stækkað og húsið var því alltof lítið og það var um tvennt að ræða hjá mér, að stækka eða að selja og kaupa stærra, sem varð ofan á. Ég auglýsti svo húsið og byrjaði að leita að stærra húsnæði.3Sigursveinn H. Jóhannesson (2013, 19. desember). Sparisjóðurinn. Fjarðarpósturinn, 31. árg., 47. tbl., bls. 21.
Um fjármögnun húsakaupa Sigursveins má lesa í nefndri grein.

Teikning Garðars Finnbogasonar að stækkun á húsi nr. 31 við Bröttukinn, dags. 23. október 1955. Sótt 28. apríl 2024 af https://teikningar.hafnarfjordur.is/data/Brattakinn_31_1_0091.pdf.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 42.
- 2Manntal 1910. Sótt 28. apríl 2024 af https://manntal.is/; Guðmundur Guðgeirsson (23. ágúst 1963). Hermundur Þórðarson sextugur. Morgunblaðið, 50. árg., 179. tbl., bls. 11.
- 3Sigursveinn H. Jóhannesson (2013, 19. desember). Sparisjóðurinn. Fjarðarpósturinn, 31. árg., 47. tbl., bls. 21.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. apríl, 2024

