Brattakinn 29, Hafnarfirði
Saga:
Árið 1908 komu til Hafnarfjarðar hjónin Halldór Sigurðsson [1850-1920] frá Merkinesi í Höfnum og Pálína Pálsdóttir [1859-1925]. Bjuggu þau fyrst í Gesthúsum. En þau vildu, eins og aðrir, búa undir eigin þaki og létu nægja lágreist bæjarlag á þeirri byggingu, þótt þá væri komið árið 1919. Gata var lögð framhjá bænum þrem árum síðar og þá lögð í hann vatnsleiðsla. Jafnframt hlaut hann númerið Krosseyrarvegur 5. Halldór dó árið 1920, en kona hans fimm árum síðar. Fóstursonur þeirra, Janus Gíslason [1899-1965], bjó áfram í bænum, ásamt dótturdóttur þeirra hjóna, Pálínu Árnadóttur [1910-1972]. Hún giftist Hallbergi Péturssyni [árið 1930 (1908-1960)], og bjuggu þau í þessum bæ allt til ársins 1953. Þá var hann seldur Ottó W. Björnssyni [1904-1992] og fluttur burt og stendur nú í góðu yfirlæti sem Brattakinn 29. Jafnframt var inngönguskúrinn lengdur, svo að nú er hann sem viðbygging jafnlöng bænum. Kjallarinn varð einnig allur ofanjarðar. Lengd bæjarins er 5,8 m, en breidd hans hefur upphaflega verið um 3,8 m. Með viðbyggingunni er hún orðin yfir 5 m. Hjá bænum hefur Ottó byggt útihús vegna atvinnu sinnar.1Magnús Jónsson (1962, 15. desember). Bæir í bænum. Alþýðublað Hafnarfjarðar, 21. árg., jólablað, bls. 16-17.
Þess má geta að þegar gamli bærinn var fluttur burt byggðu fóstursystkinin Janus og Pálína og Hallberg eiginmaður Pálínu nýtt steinsteypt hús á lóðinni sem þau settust að í.2Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2015, 10. apríl). Tölvupóstur.
Segja má að uppbygging Kinnahverfisins hafi hafist árið 1947 þegar fyrstu húsin voru byggð við Köldukinn. Flutningshús voru flutt á svæðið og sett niður árið 1949 en formlegt skipulag fyrir hverfið var ekki samþykkt fyrr en í desember 1951. Í frétt í Alþýðublaðinu frá þeim tíma segir meðal annars: „Milli 40 og 50 umsóknir um smáhúsalóðir í Hafnarfirði. Sérstakt hverfi ætlað húsunum, en bærinn leggur til teikningar ókeypis. /…/ Hafnarfjarðarbær hefur skipulagt sérstakt hverfi fyrir þessi hús ofarlega í bænum þar, sem eru svo kallaðar Kinnar. /…/ Þeir sem þess óska geta fengið ókeypis teikningar að húsum þessum hjá bænum, en einnig er þeim leyfilegt að láta teikna hús eftir eigin fyrirsöng.“ Nokkuð var um að eldri hús í bænum væru flutt í hverfið og olli það í sumum tilfellum deildum [sic]. Dæmi um það er hús sem áður var Reykjavíkurvegur 4 en það þurfti að víkja þaðan vegna breikkunar götunnar. Þá sendu fjöldi íbúa hverfisins bréf til bæjarins til að mótmæla þeim flutningi en í frétt Alþýðublaðsins sagði meðal annars um það mál „Hafnarfjörður fer að verða furðulegur bær. Ætli menn að byggja bílskúr, verða þeir að hlíta ströngum reglum byggingarsamþykktar en Pétur og Páll viðrast geta dröslað aflógahjöllum eftirlitslaust á grunna, a.m.k. í Kinnahverfinu.3Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 2.
Flest eða öll húsin sem bera oddatölunúmer við Bröttukinn eru aðflutt hús.
Ottó Wathne Björnsson fluttist til Hafnarfjarðar árið 1920. Hann var einsetumaður, sem þótti sérstakur og sérsinna, en hrekklaus og góð sál, barngóður og vinur vina sinna. Framan af ævi vann hann við ýmis sveitastörf og almenna verkamannavinnu, en síðustu 30 ár ævinnar var hann flöskukaupmaður og því kallaður Otti flaska.
Í þá daga voru flöskur í verði og sérstaklega brennivínsflöskur. Það var ekki ósjaldan að við á lögreglustöðinni ókum Otta heim með pokana sína fulla af flöskum. Hann kom stundum með nokkra poka í strætó í síðasta vagni. Voru strætóbílstjórar góðir við Otta og leyfðu honum að flytja þessa poka í vögnunum. Síðan bar hann þá á sjálfum sér að lögreglustöðinni. Eftir klukkan 3 á nóttunni þegar um hægðist í bænum og allt var orðið rólegt var honum hjálpað heim með varning sinn í hús sitt og inn í kjallara. Þá lá vel á karli og stundum bauð hann upp á flotta vindla og maltöl.4Sveinn Björnsson (1992, 4. júní). Ottó Wathne Björnsson – Minning. Morgunblaðið, 79. árg., 125. tbl., bls. 47.

Húfa Otta flösku er varðveitt í Byggðasafni Hafnarfjarðar. Á húfunni stendur: “Kaupi og sel flöskur. Flöskusali”
Þeim sem vilja vita meira um Bröttukinn 29 og Otta flösku er bent á þessa grein: Brattakinn 29 – Ottó Wathne Björnsson (Otti flaska).
Þegar húsið var auglýst til sölu árið 2015 var því lýst þannig:
Komið er inn í forstofu með dúk á gólfi. Stofa og eldhús eru með viðarborðum á gólfi. Gengið er niður stiga á neðri hæð. Þar er lítið hol með máluðu steingólfi, Herbergi með steingólfi, skápur. Inn af herbergi er lítil hitakompa. Baðherbergi og þvottahús með flísum á gólfi, sturta er á baði. Á lóð er ca. 19 fm. geymsla, geymslan er ónýt og þarf að endurbyggja hana frá grunni.5Fasteignavefurinn Fastinn. Sótt 22. apríl 2024 af https://fastinn.is/details?assetId=715511#715511-2.
Að lokum má geta þess að húsið við Bröttukinn 29 er eina húsið af þremur sem enn standa í Hafnarfirði með þessu gamla bæjarlagi, sem einkenndi áður mörg hús í bænum. Hinir bæirnir eru Siggubær við Kirkjuveg 10 og Reykjavíkurvegur 15b í Hellisgerði.6Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2015, 10. apríl). Tölvupóstur.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Magnús Jónsson (1962, 15. desember). Bæir í bænum. Alþýðublað Hafnarfjarðar, 21. árg., jólablað, bls. 16-17.
- 2Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2015, 10. apríl). Tölvupóstur.
- 3Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 2.
- 4Sveinn Björnsson (1992, 4. júní). Ottó Wathne Björnsson – Minning. Morgunblaðið, 79. árg., 125. tbl., bls. 47.
- 5Fasteignavefurinn Fastinn. Sótt 22. apríl 2024 af https://fastinn.is/details?assetId=715511#715511-2.
- 6Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2015, 10. apríl). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. maí, 2024