Bergstaðastræti 50. Teikning P. Ingimundarsonar í júlí 1933. Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Bergstaðastræti 50. Sótt 6. október 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
Bergstaðastræti 50. Teikning P. Ingimundarsonar í júlí 1933. Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Bergstaðastræti 50. Sótt 6. október 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Brattakinn 27, Hafnarfirði

Byggingarár: 1903
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Grímur Grímsson
Aðrir eigendur:
1933: Jón Guðjónsson
1958: Ólafur Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Bergstaðastræti 50, Reykjavík
Flutt: 1959 að Bröttukinn 27 í Hafnarfirði
Brattakinn 27 3

Brattakinn 27 í júlí 2013. Ljósm.: https://www.google.com/maps/.

Brattakinn 27

Brattakinn 27, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Um hús þetta hús segir Málfríður Kristjánsdóttir arkitekt í húsakönnun um íbúðahverfið Kinnar í Hafnarfirði:

Húsið sem var flutt af Bergstaðastræti 50, byggt 1903 og þá var Grímur Grímsson eigandi hússins. Húsið er bindingshús, klætt að utan með gólfborðum og pappa og þar yfir á tvo vegu járn og með járnþaki á gólfborðasúð með pappa á milli. Í öllum útveggjum er marhálmsstopp. Í húsinu eru 3 íbúðaherbergi og eldhús, allt er þiljað og málað. Kjallari er undir öllu húsinu 3.5 áln á hæð. Við vesturgafl er anddyri með tveimur inngöngum byggt af bindingi lengd 2 álnir, breidd 4 álnir, hæð 3.75 álnir).
Brunavirðing var aftur gerð 1936 og þá er Jón Guðjónsson eigandi en þá hafa miklar endurbætur verið gerðar á húsinu. Á hæðinni eru 2 íbúðaherbergi, steypubaðklefi með v.s. og anddyri, allt strigalagt, veggfóðrað og málað. Í kjallaranum er trésmíðastofa, þvottahús og geymsla.
Þá er stærð hússins lengd 7.2 m, breidd 5.6 m, ris 0.9 m.
Árið 1958 er tekið fyrir erindi Ólafs Guðmundssonar bifreiðastjóra varðandi flutnings íbúðarhús á lóð hans nr. 27 við Bröttukinn. Lóðinni var úthlutað 8.9.1959 og teikning Friðþjófs Sigurðssonar samþykkt 18.9.1959. Húsið var flutt af Bergstaðastræti árið 1958-9 og húsasmíðameistari var Garðar Finnbogason.
1Málfríður Kristjánsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 38. Sótt 6. október 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_110.pdf.

Við þetta má bæta að Grímur Grímsson var fæddur 1840 á Vallá á Kjalarnesi. Árið 1883 kvæntist hann Þórdísi Guðmundsdóttur (f. 1846). Hún lést árið 1890. Þau eignuðust þrjú börn, en tvö þeirra dóu mjög ung. Þegar manntal var tekið árið 1910 bjuggu tvær fjölskyldur í húsinu, alls 13 manns.2Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Bergstaðastræti 9 – Bráðræðisholt, bls. 522. Reykjavík: Sögusteinn; Þjóðskjalasafn Íslands. Manntal 1910. Sótt 6. október 2023 af https://manntal.is/

Árið 1961 var reist þriggja hæða steinsteypt hús á lóðinni við Bergstaðastræti.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Málfríður Kristjánsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 38. Sótt 6. október 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_110.pdf.
  • 2
    Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg. Bergstaðastræti 9 – Bráðræðisholt, bls. 522. Reykjavík: Sögusteinn; Þjóðskjalasafn Íslands. Manntal 1910. Sótt 6. október 2023 af https://manntal.is/

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024