Brattakinn 11, Hafnarfirði
Saga:
Húsið sem nú stendur við Bröttukinn 11 í Hafnarfirði á uppruna sinn að rekja til lítils bæjar sem Þorlákur Sigurðsson byggði árið 1890 á þeim stað í Hafnarfirði sem nú (2024) er Kirkjuvegur 4.
Þorlákur (1842-1926) kvæntist Önnu Sigríður Davíðsdóttur (1856-1930) árið 1876 að Undirfelli í Vatnsdal og voru þau fyrstu árin í húsmennsku þar nyrðra. Eftir að þau fluttu til Hafnarfjarðar annaðist Þorlákur m.a. skepnuhirðingu fyrir sýslumann.
Árið 1890 byggðu þau lítinn bæ sem stóð við Kirkjuveg 4 í Hafnarfirði, sem kenndur var við Þorlák. Líklega hafa þau hjón flutt úr Þorláksbæ í Hamarskot, sem stóð í slakkanum uppi á Hamrinum, um 1897. Þá fluttu hjónin Ólafur Sigurðsson (1848-1930) sjómaður og Geirlaug Eyjólfsdóttir (1857-1919) í bæinn og fékk þá bærinn nafnið Ólafsbær. Síðar bjó Sigríður dóttir þeirra í bænum með Jóni Halldórssyni manni sínum. 1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 23-24 og 91. Útg. Höfundur.
Um Bröttukinn 11 segir í húsakönnun íbúðahverfisins Kinna í Hafnarfirði segir:
Brattakinn 11 er að grunni til byggt fyrir aldamótin nítjánhundruð og stóð áður á Kirkjuvegi 4 en var flutt á núverandi stað árið 1950. Það var Þorlákur Sigurðsson sem byggði bæinn árið 1890 en þegar Ólafur Sigurðsson sjómaður eignaðist bæinn var hann ævinlega kenndur við hann og nefndur Ólafsbær. Bærinn stóð nánast þar sem bílskúrinn við Kirkjuveg 4 er nú.2Bílskúrnum hefur verið breytt í íbúðarhúsnæði, sem er sunnan við íbúðarhúsið og tengist húsi númer 2 við Kirkjuveg. Eftir að Snæbjörn Bjarnason eignast lóðina og bæinn byggir hann 1948 húsið sem þar stendur nú, Kirkjuveg 4 og þá auglýsir bæinn til sölu og flutnings. Árið 1950 í apríl samþykkir bygginganefnd að heimila Bjarna Ágústssyni flutning á húsinu/bænum við Kirkjuveg 4 samkvæmt teikningu dagsettri í apríl 1950 og er húsið flutt það ár. Stefán Sigurbentsson skráður byggingameistari. Nafn hans er ekki á elstu teikningunni en húsasmíðameistari skráður Sigurvin Snæbjörnsson. Bjarni er fyrsti eigandi að Bröttukinn 11. Í september 1956 sækir Bjarni Águstsson um að breyta húsi sínu samkvæmt teikningu Einars Jónssonar en það er elsta teikningin af húsinu í Bröttukinn. Byggingameistari þá var skráður Sigurbent Gíslason. Húsið var upphaflega íbúðarbær en því var breytt í hús við flutning og hefur verið stækkað síðan. Í dag er ekkert sem minnir á bæinn en áhugavert hvernig bæ var breytt í hús. Brattakinn 11 er annað af tveimur húsum sem vitað er um að bæ hafi verið breytt úr bæ í hús, en hitt húsið er Langeyrarvegur nr. 5.3Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 22.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 23-24 og 91. Útg. Höfundur.
- 2Bílskúrnum hefur verið breytt í íbúðarhúsnæði, sem er sunnan við íbúðarhúsið og tengist húsi númer 2 við Kirkjuveg.
- 3Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 22.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. maí, 2024
