Bræðratunga á Kljáströnd. Heimild: Björn Ingólfsson (2013). Brot úr byggðarsögu. Mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár, bls. 352. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar.
Bræðratunga á Kljáströnd. Heimild: Björn Ingólfsson (2013). Brot úr byggðarsögu. Mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár, bls. 352. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar.

Bræðratunga, Kljáströnd, Grýtubakkahreppi

Heiti: Þinghús - Bræðratunga
Byggingarár: 1880
Horfið: ?
Upphafleg notkun: Þinghús
Fyrsti eigandi: Grýtubakkahreppur
Upphafleg staðsetning: Bakkanes, Grýtubakkahreppi
Flutt: 1913 á Kljáströnd, Grýtubakkahreppi
Hvernig flutt: Tekið niður

Saga:

Lestrarfélag Grýtubakkahrepps var stofnað á nýársdag árið 1875. Aðalhvatamaðurinn að stofnun þess var inar Ásmundsson (1828-1893) í Nesi í Höfðahverfi, sá hinn sami og stofnaði alþýðuskóla í Laufási árið 1883. Líkt og annarra lestrarfélaga sem stofnuð voru á þessum tíma var tilgangur félagsins „[a]ð kenna mönnum að hugsa skipulega og fá góða og þjóðlega skemmtun af lestri góðra og gagnlegra bóka.“1Björn Ingólfsson (2013). Brot úr byggðarsögu. Mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár, bls. 346. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar.

„Eitt af merkari málum sem Lestrarfélagið beitti sér fyrir var bygging þinghússins.“2Björn Ingólfsson (2013), bls. 352. Málið var fyrst rætt á fundi félagsins 10. apríl 1879. Á fundi hreppsnefndar 10. júní 1879 var málið rætt og fékk góðar undirtektir, enda nánast sömu menn að ræða málið og í Lestrarfélaginu. Á fundinum var ákveðið að byggja hús sem væri 12 álna langt og 6 álna breitt.3Björn Ingólfsson (2013), bls. 352.

Ekki tók nema ár að byggja húsið því 20. júní næsta sumar hélt Lestrarfélagið fund í nýju þinghús sveitarinnar, sem stóð á svokölluðu Bakkanesi út og niður frá Grýtubakka. Í skýrslu þess árið 1881 segir m.a.:

Fundir fjelagsins eru haldnir í hinu nýja þinghúsi, er sveitarmenn byggðu í sumar, en það er 12 álna langt timburhús með lopti í, alþiljað uppi og niðri. Stendur það í miðri sveitinni, spölkorn frá bæjum, og gera því þessi tíðu fundir bindindisfjelagsins og aðrar samkomur, sem þar eru haldnar, engu heimili verulegt ónæði eða átroðning.

Helsti ágalli þessa húss var hve kalt það var. Það var byggt úr timbri, illa einangrað og hefur væntanlega gisnað með árunum. Upphitun var engin og yl fengu menn aðeins hver af öðrum. Til að nýta þann hita sem best var það ráð tekið „… að kaupa tjald um þvert þinghúsið svo þar gæti orðið hlýrra.“
Húsið stóð í Bakkanesi til 1913 þá var það rifið og reist aftur sem íbúðar í Bræðratungu á Kljáströnd.4Björn Ingólfsson (2013), bls. 353.

Hætt var að búa í húsinu árið 1943 eða 1944.5Gylfi Björn Helgason (2016). Háborgir hreppa. Félagsheimili og samkomuhús á 20. öld. Fornleifafræðileg greining á almenningsbyggingum á Íslandi, bls. 26. Ritgerð til BA-próf í fornleifafræði við Háskóla Íslands.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. febrúar, 2024