Borgarvegur 7, Njarðvík, Reykjanesbæ
Heimild: Fréttir (1990, 1. ágúst). Víkurfréttir, 11. árg., 31. tbl., bls. 7.
Hafnargata 43 nýkomin að Borgarvegi 7. Ljósm.: Kalli Herberts. Sótt 2. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=2445132055764441&set=pcb.2358486307737453.
Borgarvegur 7, Njarðvík, líklega árið 2019. Ljósm.: Tómas J. Knútsson. Sótt 2. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10218508595253890&set=p.10218508595253890&type=3.
Borgarvegur 7 í Reykjanesbæ í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Árið 1965 skrifaði Hallgrímur Th. Björnsson grein í Faxa, sem hefst með þessum orðum:
Þeir, sem leið eiga um Hafnargötuna í Keflavík, austanverða og nærliggjandi bæjarhverfi, sjá stundum á göngu sinni bregða fyrir grannleitum og hávöxnum eldri manni, fíngerðum og háttprúðan í fasi. Maður þessi er Friðrik Gunnlaugsson, fyrrum útvegsbóndi í Höfnum, en hann hefur um alllangt skeið verið búsettur hér í Keflavík og er eigandi hússins Hafnargötu 43, en það hús byggði hann 1929 af viðunum úr gamla íbúðarhúsinu sínu í Höfnum, sem hét Norðurhús og var meira en aldargamalt, þegar það var rifið og flutt til Keflavíkur.1Hallgrímur Th. Björnsson (1965, 1. desember). Hlustað á nið sögunnar, bls. 185. Faxi, 25. árg., 10. tbl., bls. 185-191.
Norðurhús stóð við norðurhlið kirkjugarðsins í Höfnum og þótti nokkuð stórt.2Sarpur Menningarsögulegt gagnasafn. Fornleifar, nr. 181033-57.
Árið 1899 gekk Friðrik (1873-1968) að eiga Sigurveigu Ketilsdóttur (1874-1960) en árið áður hófu þau búskap í Höfnum, þar sem aðalstörf Friðriks voru útgerð og formennska. Þegar þau fluttu til Keflavíkur árið 1929 stundaði Friðrik fyrst sjómennsku en eftir það fékkst hann við netagerð og -bætingar eins lengi og heilsan leyfði. Þau bjuggu bæði í húsinu til æviloka. 3Hallgrímur Th. Björnsson (1965, 1. desember).
Eftir 10 ára búskap í Kirkjuvogi, keypti Friðrik svokallað Norðurhús í Kirkjuvogshverfi af sr. Brynjólfi Gunnarssyni [1850-1910], sem þá fluttist að Stað í Grindavík. — Var þetta mikið og veglegt hús á þess tíma mælikvarða. Kaupverð hússins, kr. 800, mun vera nálægt því sem ein útidyrakrá kostar núna. — Eitthvert lán mun Friðrik hafa fengið hjá Katli í Kotvogi til þessarra húsakaupa, og alltaf minntist hann viðskipta sinna við Kotvogsfólkið með þakklæti og velvild, en sjálfsagt hefur það kunnað að meta traustleika Friðriks og mannkosti, enda munu loforð frá hans hendi hafa verið öruggari en margt það, sem nú er skjalfest.4H. G. Eyjólfsson (1968, 1. mars). Minning: Friðrik Gunnlaugsson formaður. Faxi, 28. árg., 3. tbl., bls. 42-43.
Í færslu Kalla Herberts (Karls Jóhann Herbertssonar) í hópnum Jamestown – Söguhópur um strandið og farminn á samfélagsmiðlinum Facebook kemur fram að húsið sem nú stendur við Borgarveg 7 í Njarðvík í Reykjanesbæ hafi hann flutt þangað frá Hafnargötu 43 í Keflavík árið 1991. Í Reykjanesbæjar gögnum sést einnig að árið 1989 hafi Bæjarsjóður Keflavíkur keypt húsið af Lífeyrissjóði Suðurnesja. Líklega hefur það verið gert í þeim tilgangi að fjarlægja eða rífa húsið, því nýtt skipulag við Hafnargötuna gerði ráð fyrir að húsið þyrfti að víkja. Árið 1991 undirrita hjónin Karl Jóhann og Sigrún Guðna Gunnlaugsdóttir f.h. hlutafélagsins Rokk leigusamning um lóðina nr. 7 við Borgarveg í Njarðvik til þess að byggja á henni hús.5Kalli Herberts (2019, 21. september). Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/1722879947964762/search/?q=kalli%20herberts; Gögn úr gagnasafni byggingafulltrúa Reykjanesbæjar.
Húsið var flutt milli bæjarfélaganna í lok júlí 1990 og birti Víkurfréttir myndasyrpu af því tilefni.6Fréttir (1990, 1. ágúst). Víkurfréttir, 11. árg., 31. tbl., bls. 7.
Ekki verður annað sagt en húsið beri aldur sinn vel þó ekki hafi tekist að finna nákvæmlega hvenær húsið var byggt né af hverjum.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Hallgrímur Th. Björnsson (1965, 1. desember). Hlustað á nið sögunnar, bls. 185. Faxi, 25. árg., 10. tbl., bls. 185-191.
- 2
- 3Hallgrímur Th. Björnsson (1965, 1. desember).
- 4
- 5Kalli Herberts (2019, 21. september). Sótt 1. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/1722879947964762/search/?q=kalli%20herberts; Gögn úr gagnasafni byggingafulltrúa Reykjanesbæjar.
- 6Fréttir (1990, 1. ágúst). Víkurfréttir, 11. árg., 31. tbl., bls. 7.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025



